Fréttablaðið - 13.08.2016, Síða 30

Fréttablaðið - 13.08.2016, Síða 30
Þau eru í óðaönn að flokka og pakka öllum eigum sínum niður og tæma húsið, Katrín Hall og Frank Fannar, því fjöl-skyldan er öll að flytja af landinu. Hann hefur reyndar verið dansandi suður í Evrópu síðustu átta ár, fyrst á Spáni, svo í Þýskalandi, nú í Sviss en heimili hans hefur þó verið við Suðurgötuna hjá foreldrum og systur. Nú eru þau á förum til Sví- þjóðar. Það gerir dansinn. Katrín er að taka við listrænni stjórn hjá einum virtasta nútímadansflokki Evrópu, í Gautaborg. Guðjón Peder- sen, fyrrverandi leikhússtjóri, maður hennar, og dóttirin Matthea Lára, 16 ára, fylgja henni. „Maður þarf að fara í gegnum ansi margt. Það er heljar mál að koma heilli fjölskyldu út og tæma hús sem maður hefur búið í lengi,“ viður- kennir Katrín. „Ég hafði það sem for- gangsverkefni að finna góðan skóla fyrir Mattheu Láru og tókst að finna alþjóðlegan menntaskóla sem vel er látið af. Hún byrjar þar 22. ágúst.“ Frank segir aðdáunarvert hvað systir hans hafi tekið þessum breytingum á þroskaðan hátt, sextán ára og að flytja frá öllum vinunum. Minn- ist þess þegar hann hélt út í heim í dansnámið. „Ég var þó búinn með menntaskólann og fór af eigin hvöt- um, var líka að fara í mitt uppáhald – en ég var reyndar einn.“ Þetta kallar á erfiða upprifjun hjá Katrínu. „Hann byrjaði í Barcelona. Við foreldrarnir vorum með honum þar nokkra daga að finna íbúð og klára ýmsa praktíska hluti en þegar við skildum hann eftir, 18 ára, í þessari risa- stóru borg þá leið okkur skringilega og kveðjustundin var dramatísk.“ „Þetta var líka svolítið erfið borg að byrja í, aðallega töluð spænska og katalónska,“ segir Frank. „En ég var í mjög virtum flokki fyrir unga dans- ara svo það var góður stökkpallur út í lífið og atvinnumennskuna. Ég var að vinna með mjög færum dans- höfundum, hvað yngstur þeirra sem komu erlendis frá. Hélt aldrei að ég mundi komast inn.“ „Svo kom í ljós að hann þurfti að velja,“ upplýsir móðir hans. „Hann var að hugsa um að fara í skóla í Rotter dam dansakademíunni og komst þar inn. Ég var að setja upp verk í Graz í Austurríki og fékk hann með mér þangað í nokkra daga áður en hann fór til Barcelona í inn- tökuprófið, þá var honum boðinn samningur þar. Svo komst hann líka inn í Barcelona.“ Frank tekur undir þá ályktun mína að hann hafi verið þokkalegur en kveðst ekki hafa hugsað þannig á þeim tíma. Móðir hans útskýrir hvers vegna „Manni finnst maður aldrei nógu góður í þessu fagi. Aldrei fullnuma, alltaf að læra og þroskast og finna nýjar leiðir, dansinn er í eðli sínu þannig listgrein.“ Þessu er Frank sammála. „Þegar manni finnst maður orðinn nógu góður á maður að hætta því þá er leitinni hætt.“ Ljósmóðirin dró hana í dansinn Þó Frank sé Íslendingur inn  að beini  hefur hann dvalið lengur erlendis en á Íslandi á sinni ævi. Var í Köln í Þýskalandi fyrstu sex árin þar sem mamma hans starfaði á þeim tíma. Fór svo út í heim átján ára, eins og fram er komið, var í dansflokknum í Wiesbaden í þrjú ár og er nú fastráðinn í Basel í Sviss að minnsta kosti ár í viðbót. Það er ekki erfitt að giska á af hverju hann byrjaði að dansa, ver- andi sonur Katrínar Hall, dansara og stjórnanda Íslenska dansflokksins um árabil. En hvernig kynntist hún dansinum? „Ég fór með vinkonum í dans sem barn eins og gjarnan gerist og þar varð ég fyrir áhrifum. Svo skráði hún amma mín, Katrín Hall ljósmóðir, mig í inntökupróf í List- dansskóla Þjóðleikhússins og dró mig þangað svo það er fyrir hennar tilverknað að ég er það sem ég er. Ég byrjaði snemma í dansflokkn- um og var samhliða í MR. Það var Finnst maður aldrei nógu góður í þessu fagi Listdans er ástríða og atvinna mæðginanna Katrínar Hall og Franks Fannars Pedersen. Bæði eru þar að takast á við ögrandi verkefni. Hún sem stjórnandi dansflokks Gautaborgar­ óperunnar, hann sem dansari í Basel í Sviss auk þess að semja verk fyrir þýskan dansflokk. „Yfirleitt þegar við erum á æfingum saman segir mamma: „Ekki lyfta mér, ekki lyfta mér,“ en svo lyfti ég henni og við erum bæði á lífi!“ FréttabLaðið/EYþór Árnason Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is ↣ 1 3 . á g ú s t 2 0 1 6 L A U g A R D A g U R30 h e L g i n ∙ F R É t t A B L A ð i ð 1 3 -0 8 -2 0 1 6 0 4 :3 4 F B 1 2 8 s _ P 1 1 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 9 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A 4 0 -9 5 6 8 1 A 4 0 -9 4 2 C 1 A 4 0 -9 2 F 0 1 A 4 0 -9 1 B 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 1 2 8 s _ 1 2 _ 8 _ 2 0 1 6 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.