Fréttablaðið - 13.08.2016, Síða 98

Fréttablaðið - 13.08.2016, Síða 98
Að venju efna Borgarbókasafnið, Bókmenntaborgin og Forlagið til sumarlesturs á meðal barna. Fyrir hverja lesna bók skrá lesendur nafn sitt og titil bókarinnar á þar til gerða miða og setja í pott sem dregið er úr vikulega. Lestrarhestur vikunnar hlýtur bók að launum. Leikur vikunnar Inn og út um gluggann Bragi Halldórsson 212 „Jæja þá, sudoku gáta,“ sagði Kata glottandi. „Nú er ég orðin svo góð í að leysa sudoku að við skulum koma í kapp um hver verður fyrstur til að leysa hana,“ bætti hún við. Konráð horfði á gátuna. „Allt í lagi,“ sagði hann. „Til er ég.“ Lísaloppa var líka góð í að leysa sudoku gátur svo hún var alveg til í keppni. „Við glímum öll við hana og þá kemur í ljós hversu klár þú ert orðin,“ sagði hún. „Allt í lagi,“ sagði Kata. „En ég vara ykkur við, ég er orðin mjög klár,“ sagði hún montin. Heldur þú að þú getir leyst þessa sudoku gátu hraðar en Kata? Hvað finnst þér skemmtilegast við bækur, Kristbjörg Katla? Mér finnst skemmtilegast að lesa þær og að skilja það sem er skrifað. Hvaða bók lastu síðast og um hvað var hún? Ég er núna að lesa Strákurinn í kjólnum eftir David Walliams. Hún er um strák sem á leiðnilegan pabba og enga mömmu. Strákurinn elskar að spila fótbolta og að klæða sig í alls konar föt. Manstu eftir fyrstu bókinni sem var í uppáhaldi? Já, það var Ein- hyrningurinn minn. Hverslags bækur þykir þér skemmtilegastar? Mér finnst best að lesa seríur, þar sem margar bækur eru um sömu persónur. Í hvaða skóla ertu? í Laugarnes- skóla þar sem ég byrja í 4. bekk í haust. Ferðu oft á bókasafnið? Já, við förum oft á safnið í Kringlunni og líka í Sólheimum. Hver eru helstu áhugamálin? Fótbolti, en ég er einmitt að æfa með Þrótti. Svo finnst mér líka skemmtilegt að búa til vídeó í iPad og svo hef ég gaman af því að syngja. Ef þú ætlaðir að skrifa bók, um hvað ætti hún að vera og hvað myndi hún heita? Örugglega bók um dýr en ég veit ekki alveg hvað hún myndi heita. Lestrarhestur vikunnar Kristbjörg Katla 9 ára Kristbjörg Katla Hinriksdóttir tók þátt í sumarlestrarleiknum í Borgarbóka- safninu í Kringlunni og fékk bókina Dúkka eftir Gerði Kristnýju. Eva María hefur tekið þátt í ótalmörgum íþróttamótum á lífsleiðinni, það sést þegar kíkt er í afrekaskrá Frjálsíþrótta- sambands Íslands. Á Unglinga- landsmóti UMFÍ í Borgarnesi setti hún nýtt Íslandsmet í hástökki þegar hún stökk 1,61 metra. Hún kveðst hafa stund- að íþróttir frá því hún var lítil. „Ég byrjaði í frjálsum þegar ég var svona um átta ára aldurinn, en er búin að æfa íþróttir frá því ég var fimm ára,  fótbolta og sund. Hef alltaf verið mikið fyrir að hreyfa mig.  Er góð aðstaða til æfinga á Sel- fossi? „Það er góð útiaðstaða fyrir frjálsar en ekki eins góð innanhúss, ég æfi úti á sumrin og í íþróttahúsi á veturna. Er hástökkið þín aðalgrein? Já, ég er auðvitað í öllu en aðallega hástökki. Kom þér á óvart að þú skyldir ná Íslandsmeti á landsmótinu? Já, en ég fór til Gautaborgar í sumar að keppa með félaginu mínu, HSK, og þar stökk ég 1,57, það var minn besti árangur til þess tíma. Þá var ég komin nálægt Íslandsmetinu sem var 1,60 og náði að slá það þegar ég bætti mig um fjóra sentimetra. Ég var mjög ánægð með það. Eru mörg mót fram undan núna? Að minnsta kosti bikarmót 15 ára og yngri, það verður í Reykjavík, held ég. Ég býst við að verða þar. Eru einhverjar stúlkur á Sel- fossi að veita þér samkeppni í hástökki. Ekki kannski á Sel- fossi en það er ein í Hafnarfirði og önnur á Akureyri, við erum yfirleitt þrjár á palli. Áttu góðar vinkonur í frjálsum. Já, mjög góðar. Þær eru flestar í öðrum greinum og flestar einu ári eldri en ég. Einhver fleiri áhugamál en íþróttirnar? Nei, en ég reyni að leggja mig fram í skólanum, er að byrja í 8. bekk í haust. Alltaf verið mikið fyrir að hreyfa mig Selfyssingurinn Eva María Baldursdóttir vippaði sér yfir 1,61 metra háa slá á Unglingalandsmótinu og setti þar með nýtt Íslandsmet í hástökki í flokki 13 ára stúlkna. Þó er hún ekki alveg orðin 13, en það er stutt í það. Frjálsar íþróttir eru hennar ær og kýr. Eva María býr rétt við Ölfusána. Hún segir gott að æfa frjálsar íþróttir úti á Selfossi. MynD/Svava StEinGrÍMSDóttir Nem ég staðar bak við hann Óla, nem ég staðar bak við hann Óla. nem ég staðar bak við hann Óla svo fer hann sína leið inn og út um gluggann, inn og út um gluggann, inn og út um gluggann og alltaf sömu leið. Börnin leiðast í hring og standa öll kyrr nema eitt sem er utan við hringinn og stillir sér upp aftan við Óla. Þegar þau syngja vísuna Inn og út um gluggann og halda höndunum uppi leggur Óli af stað inn í hringinn. Bilin milli krakkanna eru gluggarnir sem halarófan fer inn og út um; út um þann fyrsta til vinstri, inn um þann næsta og þannig koll af kolli. Þegar komið er að síðustu línunni í söngnum stansar Óli fyrir aftan þann sem hann er þá staddur hjá, til dæmis Kötu, og í næstu vísu er þá sungið: „Nem ég staðar bak við hana Kötu“ og þannig áfram. Settu þig í samband og fáðu Endalausan GSM ÓTAKMARKAÐ TAL, SMS OG 30 GB GAGNAMAGN* *Greitt er aukalega fyrir farsímanotkun erlendis, til útlanda og í upplýsinganúmer. Nánari upplýsingar er að finna í GSM skilmálum á 365.is *30 GB gagnamagn er innifalið í hverjum mánuði en endalaust gagnamagn fyrir 2.000 krónur bætist við ef farið er umfram 30 GB 1 3 . á g ú s t 2 0 1 6 L A U g A R D A g U R42 h e L g i n ∙ F R É t t A B L A ð i ð 1 3 -0 8 -2 0 1 6 0 4 :3 4 F B 1 2 8 s _ P 1 1 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 9 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A 4 0 -8 6 9 8 1 A 4 0 -8 5 5 C 1 A 4 0 -8 4 2 0 1 A 4 0 -8 2 E 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 1 2 8 s _ 1 2 _ 8 _ 2 0 1 6 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.