Fréttablaðið - 13.08.2016, Qupperneq 108
Líflegri Jazzhátíð Reykjavíkur lýkur um helgina en það er svo sannarlega enn af nægu að taka. Í dag er fjöldi spennandi tónleika og viðburða á
dagskrá og morgundagurinn gefur
ekkert eftir. Sunnudagurinn hefst
strax kl. 15 með tónleikum Sec
ret Swing Society með hressandi
sveiflu djassi í anda Louis Prima,
Fats Waller og Django Reinhardt.
Andri Ólafsson, kontrabassaleik
ari sveitarinnar, segir að uppruna
Secret Swing Society megi rekja til
námsára félaganna í Hollandi fyrir
einum sex árum.
„Við vorum allir í tónlistarskóla
í Amsterdam og tókum upp á því
að spila gamla svingmúsík í okkar
frítíma. Fyrst var þetta bara instrú
mental og svo fórum við að taka
upp á arma okkar fjölradda söng
gamalla sönghópa. Þetta er bara svo
mikil gleðimúsík og eiginlega popp
tónlist þess tíma frá þriðja, fjórða og
fimmta áratugnum. Þetta er eitthvað
svo aðgengileg og strangheiðarlegt.
Tónlist án allrar tilgerðar. Þetta voru
skemmtikraftar þess tíma sem við
erum að reyna að apa eftir og líka
alveg frábærir tónlistarmenn.
Þetta var 2010 og eftir því sem
árin liðu fórum við sífellt að semja
meira sjálfir. Þannig að meirihlut
inn af þessum geisladiski sem við
gáfum út fyrir skömmu er frumsam
inn. Þar er eitt lag á íslensku, restin á
ensku og svo eru þarna fjórar gamlar
lummur sem við útsettum.“
Auk Andra er Secret Swing
Society skipuð þeim Grími Helga
syni á klarínett, Guillaume Heurte
bize á gítar og banjó, Dominykas
Vysni auskas á trompet og Kristjáni
Tryggva Martinssyni á píanó og
harmónikku. Hljómsveitarmeðlimir
sjá svo allir um sönginn. Á tónleik
unum á sunnudaginn ætlar Krist
jana Stefánsdóttir svo að syngja með
sveitinni en fáar söngkonur svinga
jafn vel og þessi frábæra söngkona.
„Kristjana kemur bara inn fyrir
þessa tónleika sem sérstakur gestur.
Það breytir auðvitað talsverðu að
fá svona söngkonu með okkur. Við
setjumst svona meira í aftursætið
í bakraddirnar á meðan hún leiðir
sönginn og það er mjög skemmtileg
tilbreyting. Annars er þetta líka það
sem okkur finnst hvað skemmti
legast að gera. Þetta er svona okkar
partímúsík og svo erum við öll að
spila í alls konar verkefnum eins og
flestir íslenskir tónlistarmenn þurfa
að gera og það er gaman að takast á
við fjölbreytt verkefni.“
Kvintett Þorgríms
Bassaleikarar eru í talsvert stóru hlut
verki á sunnudaginn, þó svo margt
fleira skemmtilegt sé í boði, því kl. 21
leiðir bassaleikarinn Þorgrímur Jóns
son kvintett sinn fram á sviðið í Silf
urbergi og fagnar sínum fyrsta diski.
Kvintett Þorgríms samanstendur af
þeim Ara Braga Kárasyni á tromp
et, Ólafi Jónssyni á tenórsaxófón,
Kjartani Valdemarssyni á píanó og
Rhodes, Þorvaldi Þór Þorvaldssyni á
trommur auk Þorgríms sem leikur á
raf og kontrabassa.
Þorgrímur segir að þessi kvin
tett sé nú ekki búinn að vera lengi
til. „Þessi kvintett kom til þegar ég
ákvað að halda tónleika í Múlanum
í mars síðastliðnum og þá fékk ég
þá með mér í þetta. Þeir tónleikar
heppnuðust það vel að það var
ákveðið að fara með þetta í stúdíó,
halda fleiri tónleika og gefa út plötu.
En þar fyrir utan höfum við allir
spilað gríðarlega mikið saman við
alls konar tilefni. Það er ekki eins
og maður hafi verið að kalla á menn
sem maður ekki þekkti.“
Áhrifin sem má finna í þessum
skemmtilega kvintett koma víða að
og Þorgrímur segir að þetta sé svona
mest lög sem hann sé búinn að vera
að sanka að sér frá því hann kom
úr námi fyrir tíu árum. „Eitt lagið er
til að mynda alveg frá því ég spilaði
útskriftartónleikana mína í Hollandi.
Síðan hefur þetta verið að sank ast að
mér, mikið til lög sem maður hefur
verið að hugsa fyrir ákveðin verkefni
en ekki náð í gegn, svo þau fá pláss
þarna. En svo spila ég fjölbreytta
músík og með svo mörgum að
áhrifin koma óneitanlega mjög víða
að. Það er þarna tónlist frá Balkan
skaganum og líka efni sem ég er að
spila með tríói Sunnu Gunnlaugs og
einnig farið í gegnum allt það popp
og rokk sem maður hefur spilað frá
því að maður byrjaði.“
Þorgrímur segist illa treysta sér
til þess að lýsa sinni eigin tónlist og
vísar fremur til orða ættingja og vina
hvað það varðar: „Það sem mínir
nánustu vilja meina er að þetta sé
fjölbreytilegur og melódískur djass.
Stuð og skemmtilegheit.“
En þar fyrir utan
höfum við allir
spilað gríðarlEga mikið
saman við alls konar
tilEfni. það Er Ekki Eins og
maður hafi vErið að kalla á
mEnn sEm maður Ekki þEkkti.
Þorgrímur Jónsson
Nánari upplýsingar: leiga@festi.is
Verslunar- og
skrifstofuhúsnæði til leigu
REYKJAVÍKURVEGUR
HAFNARFJÖRÐUR
SKEMMUVEGUR KÓPAVOGUR
DALBRAUT AKRANES
GOÐAHRAUN VESTMANNEYJAR
FLETTISKILTI BÍLDSHÖFÐA 20
Til leigu um 1.100m² atvinnuhúsnæði á mjög
sýnilegum stað í Hafnarfirði við Reykjavíkurveg.
Mjög góð aðkoma er að húsnæðinu og
gengið er beint inn af stóru bílastæði. Húsið er
atvinnuhúsnæði á jarðhæð en íbúðir á efri hæðum.
Laust í ágúst 2016.
Til leigu um 430m² skrifstofuhúsnæði/lager á jarðhæð
á Skemmuvegi í Kópavogi. Góð aðstaða fyrir 20-30
starfsmenn í opnu rými, fjórar lokaðar skrifstofur
eða fundarherbergi, möguleiki á að nýta bæði sem
skrifstofur og lager. Skrifborð og stólar á staðnum.
Eldhús og salernisaðstaða með sturtu. Hér er hægt að
hefja rekstur strax.
Til leigu um 360 m² verslunar- eða veitingahúsnæði á
góðum stað á Dalbraut á Akranesi. Mjög góð aðkoma
er að húsnæðinu og gengið er beint inn af stóru
bílastæði. Í verslunarkjarnanum er m.a. Krónan,
Penninn Eymundsson, Tryggingarmiðstöðin, Subway,
snyrtistofa, blómabúð, bókasafn, tónlistarskóli og
Íslandsbanki. Hér er hægt að hefja rekstur strax.
Til leigu um 360 m² atvinnuhúsnæði á góðum stað við
Goðahraun í Vestmanneyjum. Mjög góð aðkoma er
að húsnæðinu, gengið er beint inn af stóru bílastæði.
Hér er hægt að hefja rekstur strax.
Laust auglýsingasvæði á flettiskilti á einum
besta stað í borginni.
Þetta er
svona okkar
partímúsík
Jazzhátíð reykjavíkur nær fullri ferð
um helgina og lýkur á sunnudag. á
meðal flytjenda eru tvær sveitir tveggja
snjallra bassaleikara og ýmsir fleiri.
Andri Ólafsson og hljómsveitin Secret Swing Society ásamt Kristjönu Stefánsdóttur söngkonu. FréttAblAðið/HAnnA
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
1 3 . á g ú s t 2 0 1 6 L A U g A R D A g U R52 M e n n i n g ∙ F R É t t A B L A ð i ð
menning
1
3
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
4
0
-A
9
2
8
1
A
4
0
-A
7
E
C
1
A
4
0
-A
6
B
0
1
A
4
0
-A
5
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
2
8
s
_
1
2
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K