Fréttablaðið - 22.09.2016, Blaðsíða 78
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Stuttmyndin Litla stund hjá Hansa
eftir leikstjórann Eyþór Jóvinsson
verður sýnd á kvikmyndahátíðinni
RIFF þann 29. september. Í mynd-
inni leika Sveinn Ólafur Gunnars-
son, Helgi Björnsson, Elísabet Thea
Kristjánsdóttir og bankastjóri Seðla-
banka Íslands, Már Guðmundsson.
Eyþór hóf nám við Kvikmynda-
skóla Íslands eftir að frumraun
hans, stuttmyndin Sker, var tilnefnd
sem besta stuttmyndin á Tribeca-
kvikmyndahátíðinni í New York
árið 2014. Eyþór, sem útskrifaðist
sem arkitekt árið 2010, viðurkennir
að leið hans í kvikmyndanámið sé
svolítið krókótt og segir tilviljun
hafa ráðið því að hann leiddist inn
á þessa braut.
„Ég bjó fyrir vestan á tímabili
og var þar í útgáfustarfsemi. Tveir
félagar mínir spurðu mig einn dag-
inn hvort ég vildi framleiða stutt-
mynd sem þeir ætluðu að gera – ég
vissi í raun ekkert hvað þeir voru
að biðja mig um, en við enduðum
á því að gera þrjár litlar hryllings-
myndir fyrir vestan. Eftir þá reynslu
langaði mig að prófa að gera þetta
sjálfur og afrakstur þess var stutt-
myndin Sker,“ útskýrir hann. „Ég er
alinn upp í bókabúð á Flateyri og
hefði frekar búist við því að enda
sem rithöfundur, það hefði verið
eðlilegri framvinda, en mér þykir
kvikmyndaformið skemmtilegra
frásagnarform.“
Litla stund hjá Hansa er byggð á
samnefndri smásögu Þórarins Eld-
járn sem kom út árið 1985. Eyþór
datt niður á söguna fyrir tilviljun og
varð heillaður um leið. Hann segir
söguþráðinn eiga jafn vel við í dag
og fyrir þrjátíu. „Sagan fjallar um
aðstoðarseðlabankastjóra Íslands
og gjaldeyrishöftin og á jafnvel enn
betur við í dag en þegar hún var
skrifuð. Ég fékk leyfi hjá Þórarni til
að nota söguna og færði hana svo
sjálfur yfir til okkar dags.“
Seðlabankastjóri Íslands, Már
Guðmundsson, fer með hlutverk í
myndinni. Að sögn Eyþórs reyndist
lítið mál að fá Má til leiks. „Honum
leist bara vel á þetta og stóð sig með
stakri prýði. Hann gerði reyndar
meira en bara að leika því hann tók
að sér að endurskrifa textann sinn
með sínu orðalagi, hann á því sinn
kafla í myndinni alveg skuldlaust.“
Spurður hvort seðlabankastjóri sé
efnilegur leikari, svarar Eyþór því
játandi. „Hann negldi þetta í fyrstu
tilraun, en það er kannski ekki
vandasamt verk að leika sjálfan sig,“
segir hann og hlær.
Líkt og áður segir verður Litla
stund hjá Hansa sýnd þann 29. sept-
ember og keppir í flokknum Besta
íslenska stuttmyndin. Eyþór segist
spenntur fyrir frumsýningardeg-
inum. „Maður fær alltaf smá hnút
í magann fyrir frumsýningar því
maður veit aldrei á hverju maður á
von: munu áhorfendur hafa gaman
af eða ganga út? En þetta er auð-
vitað spennandi og gaman,“ segir
hann að lokum. sara@frettabladid.is
Stuttmynd leikstjórans Eyþórs Jóvinssonar keppir í flokknum Besta íslenska stuttmyndin á
RIFF. FRÉTTABLAÐIÐ/EyÞÓR
Myndin skartar Sveini Ólafi Gunnarssyni, Helga Björns, Elísabetu Theu Kristjáns-
dóttur og Önnu Hafþórsdóttur í aðalhlutverkum.
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
VIKAN 14.09.16 - 20.09.16
1 2
5 6
7 8
109
43
Almenn líffræði
Ólafur Halldórsson
Fórnarlamb án andlits
Stefan Ahnhem
Lifðu til fulls
Júlía Magnúsdóttir
Á meðan ég lokaði augunum
Linda Green
Harry Potter and the Cursed Child
J.K. Rowling
Leikvöllurinn
Lars Kepler
Hættuspil
Viveca Sten
Næturgalinn
Kristin Hannah
Niceland
Kristján Ingi Einarsson
Hollt nesti
Rósa Guðbjartsdóttir
Ég er alinn upp í
bókabúð á Flateyri
og heFði Frekar búist við
því að enda sem rithöF-
undur, það heFði verið
eðlilegri Framvinda
seðlabankastjóri
negldi tökur
Stuttmynd Eyþórs Jóvinssonar, Litla stund hjá Hansa, verður
frumsýnd á RIFF þann 29. september. Seðlabankastjóri Íslands,
Már Guðmundsson, leikur sjálfan sig í myndinni.
í fyrstu tilraun
2 2 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 F I m m t U D A G U r66 L í F I ð ∙ F r É t t A b L A ð I ð
2
2
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:2
4
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
A
7
-4
D
4
C
1
A
A
7
-4
C
1
0
1
A
A
7
-4
A
D
4
1
A
A
7
-4
9
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
8
0
s
_
2
1
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K