Fréttablaðið - 22.09.2016, Blaðsíða 10
Stjórnmál Jón Gunnarsson, for-
maður atvinnuveganefndar, vill
samþykkja nýtingarflokk ramma-
áætlunarinnar fyrir þinglok en frysta
bið- og verndarflokk svo hægt sé að
rannsaka þá virkjunarkosti betur.
Lilja Rafney Magnúsdóttir, þing-
kona VG, segir hugmyndir Jóns ekki
í takt við góða stjórnarhætti.
Kveðið var á um í lögum um
rammaáætlun að samfélagslegt og
efnahagslegt mat virkjana ætti að
fara fram. Faghópurinn sem átti að
sjá um þann hluta komst að þeirri
niðurstöðu að hann gæti ekki lagt
mat á virkjanakosti sökum tíma-
pressu og fjárskorts.
„Það var ekki unnið eftir lögum við
vinnu faghópa verkefnisstjórnar. Því
er ekki hægt að festa í vernd ákveðn-
ar virkjanahugmyndir og heilu land-
svæðin fyrir norðan og austan,“ segir
Jón. „Hér eru undir gríðarlegir hags-
munir og því þarf að vanda til verka.“
Jón telur frekari raforkufram-
leiðslu nauðsynlega og að hefjast
þurfi handa sem fyrst. Rafmagn sé
uppurið og stórframkvæmdir kom-
ist ekki á koppinn, svo sem sólar-
kísilverksmiðja í Hvalfirði. Hann vill
því samþykkja nýtingarflokkinn en
frysta hina flokkana til bráðabirgða.
„Ég fullyrði að það sé meirihluti
fyrir því að keyra þetta þannig út
úr þinginu, að nýtingarflokkurinn
fari áfram en við frestum afgreiðslu
á bið- og verndarflokknum. Ég hef
hins vegar sagt að þetta verði ekki
gert nema í fullu samráði allra,“ bætir
Jón við.
Lilja Rafney segir þessar hug-
myndir ekki koma til greina.
„Það er alveg á hreinu að við sam-
þykkjum ekki að slíta þetta svona í
sundur,“ segir hún. „Rammaáætlun
er ein heild og tökum hana þannig
inn í þingið. Ég mun allavega ekki
fallast á þessar hugmyndir Jóns.“
Björt Ólafsdóttir tekur í sama
streng og segir augljóst að meirihluti
fyrir þingsályktunartillögu umhverf-
isráðherra sé ekki fyrir hendi og
túlkar það sem vantraust á ráðherra.
„Við höfum aðeins fundað tvisvar
sinnum um rammann í atvinnuvega-
nefnd. Fyrir mér mun ekki koma
til greina að slíta rammaáætlun í
sundur og afgreiða bara virkjunar-
hlutann. Svo virðist sem ekki eigi
að afgreiða málið. Sjálfstæðismenn
telja of marga orkukosti flokkaða í
verndarflokk,“ segir Björt.
sveinn@frettabladid.is
Vill slíta rammann í
sundur og flýta nýtingu
Jón Gunnarsson telur ástæðu til að fresta ákvörðun um verndarflokk og biðflokk í
þriðja áfanga rammaáætlunar. Hann vill samþykkja nýtingarflokkinn úr atvinnu-
veganefnd til að hægt sé að virkja sem fyrst. Minnihlutinn telur þetta óásættanlegt.
Jón Gunnarsson. Fréttablaðið/Vilhelmlilja rafney magnúsdóttir.
Fréttablaðið/Vilhelm
björt Ólafsdóttir. Fréttablaðið/SteFán
2 2 . S e p t e m b e r 2 0 1 6 F I m m t U D A G U r10 F r é t t I r ∙ F r é t t A b l A ð I ð
FRÁ:
TIL:
Vildarpunktasöfnurum Olís býðst nú
einstakt Vildarpunktatilboð á
borgarferðum með Icelandair.
Frá kl. 12 á hádegi 3. maí til kl. 12 á hádegi 4. maí
OLÍS
GILDIR Í 24
STUNDIR
Þú bætir við 16.115 kr. (skattar og gjöld)
Kynntu þér
málið á olis.is
PAR
ÍS
Vildarpunktasöfnuru Olís býðst nú
einstakt Vildarpunktatilboð á
borgarferðu eð Icelandair.
Ferðatímabil: 3. nóv.–20. des.
1
Báðar leiðir
29.990 VildarpunktarIcelandair
22. sept. ti kl. 12 á hádegi 23. sept.
PI
PA
R
\T
BW
A
•
S
ÍA
•
1
6
42
95 Tækifæri
Nóatúni 4 • Sími 520 3000
www.sminor.is
ÞvottavélRyksuga
Vindur upp í 1400 sn./mín. Kolalaus,
hljóðlátur mótor með 10 ára ábyrgð.
Orkuflokkur B. Útblástur A. Parkett
og flísar, flokkur D. Teppi, flokkur E.
Fullt verð: 139.900 kr.Fullt verð: 19.900 kr.
Tækifærisverð:Tækifærisverð: WM 14P4E8DNVS 06B120
99.900 kr.15.900 kr.
Tekur mest
8
Orkuflokkur
10 ára
ábyrgð
á
iQdrive
mótorn
um.
2
2
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:2
4
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
A
7
-8
D
7
C
1
A
A
7
-8
C
4
0
1
A
A
7
-8
B
0
4
1
A
A
7
-8
9
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
B
F
B
0
8
0
s
_
2
1
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K