Fréttablaðið - 22.09.2016, Blaðsíða 52
Í greinasafninu Ég vildi að ég kynni að dansa eftir Guðmund Andra Thorsson er að finna
pistil um hlutverk rithöfunda í
samfélaginu. Þar leggur hann út
frá sögu af drukknum manni sem
hagar sér óðslega, klifrar upp í staur
og öskrar. Maðurinn er að gera upp
sakir við fyrrverandi eiginkonu
sína. Þegar hann er kominn upp
á þak og hótar að stökkva hringir
konan í fyrrverandi tengdamóður
sína sem mætir á staðinn og nær
tökum á vitfirrtum syninum.
Guðmundur Andri segir að rit-
höfundar ættu að vera í hlutverki
gömlu konunnar „sem brýnir hinn
ærða mann til að hugsa“. Hins
vegar telur hann að rithöfundar séu
oftast í hlutverki drukkna manns-
ins sem m.a. ryðst með skarkala og
látum fyrirvaralaust inn í líf fólks
við lítinn fögnuð.
Við lestur greinar Guðmundar
Andra sem birtist í Fréttablaðinu
þann 5. september á blaðsíðu 11
er ljóst að honum tekst sérlega vel
upp í hlutverki drukkna mannsins
sem úthýst hefur dómgreindinni.
Í greininni er að finna ómaklegar
og órökstuddar fullyrðingar um
atvinnugrein sem nú er í uppbygg-
ingu. Tilhæfulausar staðhæfingar á
borð við þá að Norðmenn horfi til
laxeldis á Íslandi því hér þurfi þeir
ekki að lúta ströngum reglum og
stífu eftirliti. Það er ljóst að Guð-
mundur Andri hefur ekki kynnt
sér regluverk greinarinnar, hvorki
hér á landi né í Noregi. Mikilvægt
er að halda því til haga að yfirvöld
á Íslandi gera ríkar kröfur jafnt til
undirbúnings framkvæmda sem og
til starfseminnar. Engar forsendur
væru því fyrir norska aðila að færa
starfsemi til Íslands með það fyrir
augum að lúta ekki jafn ströngu
regluverki.
Langt frá raunveruleikanum
Það vekur undrun að maður sem vill
láta taka sig alvarlega í þjóðfélags-
umræðu skuli ekki hafa metnað
til að kynna sér grundvallaratriði
þeirra mála sem hann fjallar um.
Hann kýs heldur að ryðjast fram
á ritvöllinn með afar takmarkaða
þekkingu, ekkert innsæi og brjóst-
vitið að vopni. Framsetning greinar-
innar og málflutningur er að stórum
hluta í dylgjustíl þar sem fullyrt er
t.d. að menn treysti á „Guð og lukk-
una en þó einkum á norskt hugvit“.
Hugmyndir Guðmundar um að
aðferðir Norðmanna í laxeldi séu
úreltar eru á engan hátt rökstuddar
og ekki er með nokkrum hætti leit-
ast við að segja í hverju sú úrelding
ætti að vera fólgin. Norskt laxeldi
er hátækniiðnaður í dag sem er í
sífelldri framþróun. Lýsingar Guð-
mundar Andra á ástandi norskra
fjarða eru langt frá raunveruleik-
anum og erfitt er að átta sig á hvað
vakir fyrir höfundi að setja svo
augljósar rangfærslur á prent. Er
lengra líður á lestur greinarinnar
koma fram fullyrðingar sem sveipa
textann ögn ofsóknarkenndum
blæ. Guðmundur lætur ekki staðar
numið heldur lýsir því yfir að Norð-
menn muni gjöreyða íslenskum
fjörðum og eyðileggingarmátturinn
muni líklega teygja sig til Græn-
lands. Eyðileggingin sem Guðmund-
ur trúir að sé raunveruleg á að eiga
sér stað fyrir tilstillti sveitarstjórna
og hins opinbera.
Á einum stað nefnir Guðmundur
þá menn sem „trúa ekki náttúru-
vísindamönnum“ en um leið gerist
hann sekur um það sjálfur. Hann
telur að leyfi til framkvæmda séu
gefin út án fyrirhyggju og að menn
ætli að rannsaka náttúruna síðar.
Að baki útgáfu starfs- og rekstrar-
leyfa vegna sjókvíaeldis er langt og
strangt ferli þar sem fjöldi hámennt-
aðra náttúrufræðinga og vísinda-
manna sem starfa hjá fagstofnunum
ríkisins fjalla um eðliseiginleika
framkvæmda. Skila þarf ítarlegum
gögnum um náttúru fjarðanna og
möguleg áhrif framkvæmda á lífríki.
Þetta ferli er gagnsætt og opið fyrir
athugasemdum almennings sem og
fagaðila.
Í greininni gerir höfundur heiðar-
legu fólki upp varasamt hugarfar.
Í pistli Guðmundar Andra úr
áðurnefndu greinasafni segir
hann að rithöfunda dreymi um að
vera hvort tvegga í hlutverki hins
drukkna manns og móðurinnar.
Í fréttablaðsgreininni var hinn
drukkni og vitfirrti maður fyrir-
ferðarmikill en skynsöm móðirin
var víðs fjarrri. Sú kona sem kom
hins vegar upp í huga lesandans var
ekki af ætt Sókratesar en lifði á árum
áður góðu lífi í Velvakanda Morgun-
blaðsins undir nafninu Kona úr
Vesturbænum.
Hlutverk drukkna mannsins
Einar Örn
Gunnarsson
stjórnarmaður
í Löxum fiskeldi
ehf
Ágæti lesandi.Mér þykir rétt að byrja á að kynna stöðu mína lítillega
ásamt þeim hugsjónum sem ég el í
brjósti fyrir þá, sem eiga undir högg
að sækja í samfélaginu og berjast í
bökkum hvern einasta dag við að ná
endum saman. Hugsjónir sem urðu
til þess að nú höfum við stofnað
Flokk fólksins fyrir alla þá sem vilja
berjast gegn mismunun, óréttlæti,
lögleysu og fátækt.
Lögblindur kandídat í lögfræði
Ég er verulega sjónskert og 75%
öryrki af þeim sökum. Ég tilheyri
þeim hópi sem haldið er undir
fátækramörkum og er því vön að
neita mér um flest þau veraldlegu
gæði sem margir aðrir taka ekki eftir
að þeir njóta þar sem þau eru svo
sjálfsögð. Ég gleðst eðli málsins sam-
kvæmt fyrir allra hönd sem þurfa
ekki að kvíða morgundeginum og
vil þess vegna að við njótum öll
slíkra lífsgæða en ekki einungis sum.
Ég horfi upp á eldri borgara og
öryrkja sem sitja við sama borð og ég,
þ.e. draga fram lífið á framfærslu undir
viðurkenndum fátækramörkum. Ég
hef látið mig hafa það, haldandi að ég
gæti ekkert aðhafst í stöðunni, en þá
vissi ég ekki um fátæku börnin okkar.
Það var vitneskjan um þau sem varð
til þess að ákvörðun um að stofna
Flokk fólksins var tekin.
Nú er svo komið að við höfum
skorið upp herör gegn valdníðslu,
fátækt og spillingu. Við erum komin
fram og eigum listabókstafinn F og
trúum því að samtakamáttur okkar sé
það mikill að okkur eigi að geta borið
gæfa til að leiðrétta þá mismunun, þá
fátækt og það gífurlega óréttlæti sem
við höfum mátt búa við svo allt of
lengi.
Staðreyndin um fátæku börnin
Samkvæmt samantektarskýrslu
UNICEF á Íslandi frá því í janúar
2016, þá líður 9,1% íslenskra barna
mismikinn skort. Þetta eru sam-
tals 6.107 börn og þar af eru 1.586
þeirra sem líða verulegan skort.
Þetta eru börnin sem geta verið
svöng þar sem þau hafa ekki nesti
með sér í skólann, fá ekki að borða
með hinum börnunum í hádeginu
af því að foreldri/foreldrar hafa ekki
ráð á að greiða fyrir skólamáltíðir.
Þetta eru börnin okkar sem fá ekki
tækifæri til að stunda íþróttir, læra
á hljóðfæri, eignast ný föt, né heldur
fylgja eftir því sem talið er falla undir
eðlilega framfærslu barna almennt.
Þetta eru og börnin okkar sem oft-
ast lifa við hvað erfiðastar aðstæður
heima fyrir. Að ríkjandi valdhafar
skuli ekki sjá ástæðu til að skera
upp herör gegn þessum sorglegu
aðstæðum þessara barna er mér
með öllu óskiljanlegt.
Er eitthvað dýrmætara
en börnin okkar?
Svarið við spurningunni er einfalt.
NEI, það er ekkert dýrmætara en þau.
Litla fólkið okkar sem líður hér skort
fær aldrei að njóta æskunnar, lifir oft
við sult og seyru og virðist gleymast
í umræðunni. Þetta eru einstakling-
arnir sem eiga hvað mest á hættu
að verða utangátta í samfélaginu og
lenda upp á kant við lög og reglur.
Við megum aldrei gleyma því að
þetta er ekki þeim að kenna, þau
völdu ekki þetta erfiða hlutskipti
sitt og eiga ekki að þurfa að ganga
í gegnum æskuna sem eitt stórt
refsingartímabil vanlíðunar og
óhamingju.
Flokkur fólksins vill taka utan
um börnin okkar og tryggja það,
að ekkert barn á Íslandi sé nokkurn
tímann svangt vegna fátæktar.
Flokkur fólksins kallar á þig
Hjálpumst að við að útrýma fátækt
og spillingu. Rekum burt allt okrið,
græðgina og valdníðsluna og gerum
það saman.
Flokkur fólksins vill stokka spilin
upp á nýtt og koma á verðlagi hér á
landi til samræmis við það sem best
þekkist í löndunum í kringum okkur.
Flokkur fólksins vill gera öllum
kleift að lifa hér með reisn en ekki
bara fáum útvöldum auðvaldsgæð-
ingum.
Þess vegna er Flokkur fólksins til.
Þess vegna er Flokkur fólksins flokk-
urinn þinn. X við F.
Flokkur fólksins gegn fátækt og spillingu
Nú stendur yfir alþjóðleg bar-áttuvika heyrnarlausra með yfirskriftina Með táknmáli
er ég jafningi (With sign language
I’m equal). Samskiptamiðstöð þjón-
ar fólki sem talar íslenskt táknmál
og hefur reglulega bent á brýna þörf
fyrir aukna þjónustu, sem byggir
fyrst og fremst á eflingu íslensks
táknmáls (ÍTM). Í áliti frá umboðs-
manni Alþingis nr. 4182/2004
kemur fram að lög Samskiptamið-
stöðvar tryggi ekki nægjanlega
rétt heyrnarlausra til máls, mennt-
unar og túlkaþjónustu. Breytingar
á lögum og alþjóðlegum sáttmálum
undanfarin ár, sem ættu að skylda
til aukinnar þjónustu, hafa ekki náð
að breyta miklu. Íslenskt táknmál
er til dæmis viðurkennt í lögum án
þess að nægjanleg uppbygging hafi
átt sér stað til þess að lögin séu virt.
Í huga fólks og við skipulag á
þjónustu er litið á döff fólk sem
fatlað en hagsmunir þess geta
verið algerlega andstæðir hags-
munum fatlaðra. Þetta á til dæmis
við um sambýli, elliheimili og skóla
án aðgreiningar. Tökum skóla án
aðgreiningar sem dæmi þar sem
heyrnarlaus börn ganga í skóla í
heimahverfi og töluð er íslenska. Án
táknmáls eru þau ekki jöfn öðrum
börnum og öðlast ekki þá mennt-
un og þroska sem skólinn á að
veita. Hvergi í skólakerfinu er gerð
krafa um að kennarar þeirra hafi
skilgreinda kunnáttu í táknmáli.
Við bætist að eðlilegum þörfum
barnanna fyrir námsefni á íslensku
táknmáli er ekki mætt.
Margar skýrslur hafa verið unnar
hér á landi um málefni heyrnar-
lausra af um einum tug nefnda og
framkvæmdanefnda allt frá árinu
1992. Allar hafa þær bent á mikil-
vægi þess að efla íslenskt táknmál
og þjónustu á íslensku táknmáli.
Skýrsla vistheimilisnefndar, sem
skoðaði Heyrnleysingjaskólann á
árunum 1947-1992, birti alvarlegar
niðurstöður um einangrun, ofbeldi
og misnotkun. Þar var lagt til við
stjórnvöld að tekin yrði eins fljótt
og kostur er skýr, efnisleg afstaða til
áður framkominna tillagna nefnda
um úrbætur í málefnum heyrnar-
lausra. Brugðist var við með skipun
Framkvæmdanefndar um þjónustu
við heyrnarlausa, heyrnarskerta
og daufblinda í upphafi árs 2010.
Fjórum árum síðar skilaði arftaki
hennar, Framkvæmdanefnd nr. 2,
skýrslu með tillögum að uppbygg-
ingu á þjónustu og eflingu íslensks
táknmáls. Tillögurnar snúa að
menntun, kennsluráðgjöf, ráðgjöf
við foreldra, stuðningi við máltöku
barna með skerta heyrn, rannsókn-
um á máli og menningu, þjónustu
við aldraða, þjónustu á sviði geð-
heilbrigðis- og félagsmála o.s.frv.
Enn ekki á dagskrá
Ekki hefur verið tekin afstaða til
þessara tillagna af stjórnvöldum og
ekki hefur á neinn hátt verið brugð-
ist við tillögum nefndarinnar.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætis-
ráðherra baðst afsökunar á mis-
tökum Heyrnleysingjaskólans í
kjölfar skýrslu vistheimilanefndar
og ítrekaði að þetta væri svartur
blettur á samfélaginu. Sagan sem í
skýrslunni er rakin er að einhverju
leyti að endurtaka sig í dag því ekki
hefur verið brugðist við. Alveg er
ljóst að önnur svört skýrsla mun
birtast innan fárra ára.
Það er ekki nóg að biðjast afsök-
unar.
Döff fólk var ekki með í „góðær-
inu“ fyrir hrun. Árið 2009 og árin
þar á eftir þurftu stofnanir og starfs-
fólk sem veitir döff fólki þjónustu
samt að skera niður og taka á sig
hrunskuldir. Núna árið 2016 erum
við ekki enn komin á dagskrá. Nýjar
tillögur um önnur viðfangsefni (sem
e.t.v. verða aldrei að veruleika) eru á
dagskrá nefndanna sem starfa í dag
án þess að brugðist hafi verið við
eldri tillögum.
Starfsfólk Samskiptamiðstöðvar
er stolt af stofnuninni og því
sem þar er unnið en á sama tíma
skömmumst við okkar fyrir allt það
sem við gerum ekki og vitum að þarf
að gera. Við ítrekum og tökum undir
skilaboð baráttuvikunnar með döff
fólki: Með táknmáli er ég jafningi.
Með táknmáli er ég jafningi
Valgerður
Stefánsdóttir
forstöðumaður
Samskipta-
miðstöðvar
heyrnarlausra og
heyrnarskertra
Döff fólk var ekki með í
„góðærinu“ fyrir hrun. Árið
2009 og árin þar á eftir
þurftu stofnanir og starfsfólk
sem veitir döff fólki þjónustu
samt að skera niður og taka
á sig hrunskuldir. Núna árið
2016 erum við ekki enn
komin á dagskrá.
Yfirvöld á Íslandi gera ríkar
kröfur jafnt til undirbúnings
laxeldis sem og til starfsem-
innar.
Ég horfi upp á eldri borgara
og öryrkja sem sitja við sama
borð og ég, þ.e. draga fram
lífið á framfærslu undir viður-
kenndum fátækramörkum.
Ég hef látið mig hafa það,
haldandi að ég gæti ekkert
aðhafst í stöðunni, en þá vissi
ég ekki um fátæku börnin
okkar. Það var vitneskjan
um þau sem varð til þess
að ákvörðun um að stofna
Flokk fólksins var tekin.
Inga Sæland
formaður
Flokks Fólksins
2 2 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 F I m m t U D A G U r40 s k o ð U n ∙ F r É t t A b L A ð I ð
2
2
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:2
4
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
A
7
-9
2
6
C
1
A
A
7
-9
1
3
0
1
A
A
7
-8
F
F
4
1
A
A
7
-8
E
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
8
0
s
_
2
1
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K