Fréttablaðið - 22.09.2016, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 22.09.2016, Blaðsíða 64
TónlisT ljóðatónleikar HHHHH lög eftir Beethoven og schumann. Elmar Gilbertsson söng, Gerrit schuil lék á píanó. Kaldalón í Hörpu sunnudaginn 18. september Elmar Gilbertsson tenór býr yfir einni fegurstu rödd íslenskra söngvara. Hún er silkimjúk, kraftmikil en líka full af fíngerðum, fögrum blæbrigðum ef svo ber undir. Elmar vakti verðskuldaða athygli í óperunni Ragnheiði eftir Gunnar Þórðarson. Þar sló hann í gegn svo um munaði. En tónleikar hans og Gerrit Schuil píanóleikara í Kaldalóni í Hörpu á sunnudaginn ollu vonbrigðum. Fyrst á dagskránni var Adelaide eftir Beethoven, og svo ljóðaflokkur­ inn An die ferne Geliebte. Rödd Elm­ ars var ekki alltaf í fókus, sumir tón­ arnir voru bjagaðir, jafnvel óhreinir. Píanóleikurinn var sömuleiðis fremur óstöðugur, talsvert var um feilnótur sem voru hvimleiðar. Gerrit má þó eiga það að það var rétti karakterinn í túlkuninni, hún var svipsterk og fylli­ lega í anda Beethovens. En það var ekki nóg. Þetta var synd, því tónlistin er í sjálfu sér hrífandi fögur. An die ferne Geliebte er merkilegt verk; Beethoven samdi það seint á ævinni. Andrúms­ loftið er margbrotið, fullt af sársauka. Formið er óvanalega heilsteypt og laglínurnar eru himneskar. En á tón­ leikunum komust þær aldrei á flug, því miður. Söngurinn var miklu betri í Dicht­ er liebe eftir Schumann. Elmar var þar kominn í gang og söng af fagmennsku. Hann var þó sífellt að horfa í nótna­ bókina, það virkaði eins og hann kynni ekki lögin. Þetta dró töluvert úr áhrifamætti túlkunarinnar. Auð­ vitað kunni Elmar það sem hann var að syngja, en maður heyrði samt að honum hafði ekki tekist að gera lögin almennilega að sínum. Hann var bara að miðla einhverju fyrirfram ákveðnu til áheyrenda. Vitaskuld á góður túlkandi að holdgera hugsun tónskáldsins og færa hana til hlust­ enda, en túlkunin verður jafnframt að koma frá hjartanu. Það gerði hún sjaldnast hér. Inntak skáldskaparins skilaði sér ekki þótt söngurinn væri tæknilega góður og röddin mögnuð. Tónlistarflutningurinn fór aldrei með mann í andlegt ferðalag eins og svona dagskrá á að gera. Dichterliebe er dásamleg tónlist, full af ástarþrá. Píanóleikurinn er sér­ lega áberandi, mun meira en í sam­ bærilegum ljóðum eftir Schubert, til að mynda. Þarna er ekki hægt að kalla píanóleikinn undirspil, hann stendur söngnum fyllilega jafnfætis. Í lokin er t.d. viðamikið eftirspil píanóleikarans. Þar lítur hann til baka og rifjar upp það sem gengið hefur á í öllu verkinu. Það er einstaklega fögur stund. Gerrit gerði þetta sumpart ágæt­ lega; margt í lögunum var þrungið fallegum litbrigðum. En það var of mikið af feilnótum, þær voru trufl­ andi og gerðu að verkum að maður gat aldrei lokað augunum og gefið sig tónlistinni á vald. Jónas Sen niðursTaða: Píanóleikurinn var ekki nægilega öruggur, söngvarinn var lengi að komast í gang og nokkuð vantaði upp á dýptina í túlkuninni. Ekki alltaf í fókus Elmar var lengi að komast í gang í Kaldalóni á sunnudaginn. Fréttablaðið/StEFán Hér er á ferðinni nýr söng­leikur. Handritið er eftir Andra Snæ en leikgerðin eftir Berg Þór Ingólfsson og hann samdi nýja söngtexta sem ég gerði ný lög við, alls fimmtán talsins.“ Þetta segir Kristjana Stefánsdóttir tónlistarkona um Bláa hnöttinn sem frumsýndur verður í Borgar­ leikhúsinu nú á laugardaginn. Eins og samnefnd bók er sýning­ in ævintýri þar sem brýnt er fyrir fólki að hlaupa ekki eftir innan­ tómu stuði. Tuttugu og tvö börn eru í sýningunni og þau fljúga út um allt svið að sögn Kristjönu. „Þetta er ein tæknilegasta sýning sem ég hef unnið við í leikhúsi,“ segir hún. Kristjana kveðst hafa samið lögin að mestu á fyrstu sex mán­ uðum ársins, ásamt því að klára trúðasýningu með álíka mörgum lögum og líka sína fyrstu sólóplötu með eigin tónsmíðum. „Það er eins og það hafi opnast ný slagæð með hugmyndum hjá mér. Þær bara flæða,“ segir hún glaðlega. Miklar pælingar liggja bak við lögin í Bláa hnettinum eins og hún lýsir. „Gleðiglaumur kemur inn á þennan bláa hnött og gerir þar usla og því hef ég öll lögin hans dálítið virkjana­ og iðnvæðingar­ leg. En tónlist sem hljómar í dökka heiminum er sinfónísk, þar er samt bland í poka.“ Börnin eru með míkrófóna og söngurinn er allur lifandi en undir­ leikurinn ekki, að sögn Kristjönu. „Nú fékk ég í fyrsta skipti alvöru upptökustjóra með mér. Daði Birgisson spilar á öll hljóðfærin og við eigum útsetningarnar saman. Það er dýrmætt að fá slíkan fag­ mann með sér.“ gun@frettabladid.is Ein tæknilegasta sýning sem ég hef unnið við Mikil litadýrð og hreyfing einkennir söngleikinn Bláa hnöttinn sem verður frumsýndur á stóra sviði Borgarleikhússins á laugardaginn. Höfundur tónlistarinnar er Kristjana Stefánsdóttir. GleðiGlauM- ur KeMur inn á þennan Bláa Hnött oG Gerir þar uSla oG því Hef éG öll löGin HanS dálítið virKjana- oG iðnvæðinGar- leG. 2 2 . s E p T E m B E r 2 0 1 6 F i m m T u D a G u r52 m E n n i n G ∙ F r É T T a B l a ð i ð menning 2 2 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :2 4 F B 0 8 0 s _ P 0 7 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A A 7 -5 2 3 C 1 A A 7 -5 1 0 0 1 A A 7 -4 F C 4 1 A A 7 -4 E 8 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 8 0 s _ 2 1 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.