Fréttablaðið - 22.09.2016, Blaðsíða 12
Atvinnubílar
Fyrir erfiðustu verkin
Volkswagen Crafter
Extreme Edition
Crafter Extreme Edition kostar aðeins frá
4.596.774 kr. án vsk
Volkswagen Crafter er hannaður til að takast á við krefjandi verkefni
þar sem styrkur og notagildi eru í forgangi. Crafter er einstaklega
hagkvæmur og er með mjög öflugum en jafnframt sparneytnum
díeselvélum. Volkswagen Crafter er með 3 ára ábyrgð og allt að
250.000 km akstur.
Líttu við og í sýningarsal VW Atvinnubíla og kynntu þér einstaklega vel
útbúinn Volkswagen Crafter Extreme Edition.
Aukalega í Volkswagen Crafter
Extreme Edition
• Hraðastillir (Cruise control)
• Bluetooth símkerfi
• Hiti í bílstjórasæti
• Fjaðrandi hæðastillanlegt ökumannssæti
með armpúða
• Vélarhitari með fjarstýringu og tímastilli
• Rafmagns-miðstöðvarhitari
• Aðgerðastýri
• Fjarlægðaskynjarar með bakkmyndavél
• Díóðulýsing í flutningsrými
• Klæðning og rennur í flutningsrými
Staðalbúnaður
• Rennihurðir á báðum hliðum
• 16“ stálfelgur
• Lokað skilrúm með glugga
• ABS / EBV
• ESP stöðugleikastýring og spólvörn
• Bekkur fyrir 2 farþega með
geymslukassa
• Loftpúðar fyrir ökumann og farþega
• Útvarp með SD kortarauf
• Klukka
• Fullkomin aksturstölva
• Glasahaldari
• Fjarðstýrðar samlæsingar
• Rafstýrðir upphitaðir hliðarspeglar
• Hæðarstillanlegt öryggisbelti
• 270° opnun á afturhurðum
Mögulegur valbúnaður
• Dráttarbeisli 180.000. kr m/vsk
Til afhendingar str
ax!
✿ Slys með meiðslum á tímabilinu 2004-2014
19
slys
Grensásvegur
og Miklabraut
17
slys
Háaleitisbraut
og Miklabraut
17
slys
Reykjanesbraut
og Bústaðavegur
12
slys
Háaleitisbraut
og Bústaðavegur
11
slys
Nýbýlavegur
og Dalvegur
10
slys
Bankastræti
og Lækjargata
10
slys
Njarðargata
og Hringbraut
10
slys
Grensásvegur
og Suðurlandsbraut
Alvarleg slys
og látnir í umferð-
inni frá 2006
1.738
alvarlega slasaðir.
139 látnir.
11,2
létust að meðaltali
árin 2011-2015.
163
slösuðust alvarlega
á árunum 2011-2015.
HeiMiLD: SAMGöNGuStofA
Samgöngur Gatnamótin Grensás-
vegur/Miklabraut eru hættulegustu
gatnamót landsins og hafa verið það
í mörg ár.
Á fimm ára tímabili, frá 2010-2014,
urðu þar 162 slys og óhöpp þar sem
19 slösuðust. Reykjavíkurborg á
Grensásveg en Vegagerðin á Miklu-
braut og segir G. Pétur Matthíasson
upplýsingafulltrúi að þótt samstarfið
sé gott á milli og breytingar sem
gerðar hafi verið á gatnamótunum
hafi fækkað slysum þá skorti fé til að
gera gatnamótin hættuminni.
„Við höfum gert þessi gatnamót
fjögurra fasa í stað þriggja fasa sem
hefur minnkað slysatíðnina. Mislæg
gatnamót eru ekki á leiðinni. Það
hafa ekki verið neinar fjárveitingar
fyrir svona stórum og dýrum fram-
kvæmdum.“
Athygli vekur að öll 20 hættuleg-
ustu gatnamótin á þessum árum eru
ljósastýrð. Mislægu gatnamótin sem
tengja Miklubraut við Sæbraut kom-
ast ekki á lista. Þar er hámarkshraði
80 km/klst. en hámarkshraðinn við
hættulegustu gatnamót landsins er
60 km/klst.
„Það skortir bæði fé og svo þarf
Reykjavíkurborg að gefa út fram-
kvæmdaleyfi. Svona framkvæmdir
verða bara gerðar með þeirra sam-
þykki,“ segir G. Pétur.
Teikningar eru til á lager Vega-
gerðarinnar fyrir mislægum gatna-
mótum á þessum stað sem og öðrum
verkefnum innan borgarmarkanna
en ekki stendur til að nýta þær teikn-
ingar.
Ólafur Kr. Guðmundsson,
einn helsti sérfræðingur Íslands í
Umferðarmál í Reykjavík í salti
Ekki stendur til að gera neitt frekar til að fækka slysum á hættulegustu gatnamótum landsins sem tengja
Grensásveg við Miklubraut allavega til 2022. Öll tuttugu hættulegustu gatnamót landsins eru ljósastýrð.
umferðar málum, segir að umferðar-
mál í Reykjavíkurborg séu í lamasessi
en hann bauð sig fram í fimmta sæti
á lista Sjálfstæðisflokksins árið 2013.
„Erlendis er talað um að ljósa-
stýrð gatnamót séu í raun sofandi
morðingi, því ef eitthvað klikkar þar
gerist eitthvað slæmt. Tuttugu hættu-
legustu gatnamót landsins eru ljósa-
stýrð. Það var búið að gera ráð fyrir
að gera nokkur stór gatnamót mislæg
en þau voru öll tekin út þegar gerður
var samningur árið 2012 milli ríkis
og sveitarfélaga um að niðurgreiða
almenningssamgöngur í tíu ár. Það er
því ekkert að fara að gerast í borginni
til 2022,“ segir Ólafur Kr. Guðmunds-
son. benediktboas@frettabladid.is
Bandaríkin Tólf lögreglumenn
særðust í mótmælum í fyrrinótt í
bænum Charlotte í Norður-Karól-
ínu. Mikill mannfjöldi var að mót-
mæla lögregluofbeldi.
Fyrr um daginn hafði lögreglu-
maður banað óvopnuðum, þel-
dökkum manni. Keith Lamont Scott
hét hann og var 43 ára.
Lögreglan sagði í fyrstu að Scott
hefði verið vopnaður en ættingjar
hans sögðu hann hafa verið með
bók í hönd, ekki byssu. – gb
Lögreglumenn
sárir í Charlotte
mótmælum
Maður í götunni eftir að lögreglumaður
skaut hann. NoRDicpHotoS/Afp
Sýrland Bandarísk stjórnvöld
halda enn fast við að Rússar beri
ábyrgð á loftárásinni á bílalest með
hjálpargögn nálægt Aleppo í Sýr-
landi á mánudag.
Tvær rússneskar herþotur hafi
verið á ferð þar á sama tíma og árás-
in var gerð. Jafnvel þótt sprengjun-
um hafi ekki verið varpað frá þeim
hafi Rússar átt, samkvæmt vopna-
hléssamningi, að bera ábyrgð á því
að sýrlenski stjórnarherinn héldi sig
á mottunni á þessu svæði. – gb
Bandaríkin vísa
ábyrgð á Rússa
Það skortir bæði fé
og svo þarf Reykja-
víkurborg að gefa út fram-
kvæmdaleyfi. Svona fram-
kvæmdir verða bara gerðar
með þeirra samþykki.
G. Pétur Matthíasson
2 2 . S e p t e m B e r 2 0 1 6 F i m m t u d a g u r12 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð
2
2
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:2
4
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
A
7
-8
8
8
C
1
A
A
7
-8
7
5
0
1
A
A
7
-8
6
1
4
1
A
A
7
-8
4
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
A
F
B
0
8
0
s
_
2
1
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K