Fréttablaðið - 22.09.2016, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 22.09.2016, Blaðsíða 27
Það var fyrir nokkru í Kíev, höfuðborg Úkraínu, að ég spurði heimamenn hverj-um augum þeir litu horfur lands síns fram í tímann. Ég hafði kvöldið áður ekið fram hjá fjölmennum mótmælum við þinghúsið í hjarta borgarinnar þar eð enn eitt spillingarmál hafði gosið upp. Sá sem varð fyrir svörum sagði: Aðeins tvennt kemur til greina. Annaðhvort ná nauðsynlegar umbætur fram að ganga í friði og spekt eða þær verða innleiddar með öðrum hætti. Þriðji kosturinn, engar umbætur, óbreytt ástand, kemur ekki til álita, sagði hann. Þolinmæði okkar er á þrotum. Mér varð hugsað hingað heim þar sem vantraust kjósenda í garð stjórn- málamanna hefur frá hruni mælzt litlu minna en í Úkraínu. Skv. Þjóðarpúlsi Capacents sögðust að meðaltali 41% kjósenda treysta Alþingi árin 1995- 2008 en aðeins 15% að meðaltali sögð- ust treysta Alþingi 2009-2016. Nýjasta mælingin frá því í febrúar 2016 er 17%. Fimm kjósendur af hverjum sex van- treysta Alþingi. Frá hruni hefur Alþingi ásamt bankakerfinu og dómskerfinu skrapað botninn í traustsmælingum Capacents og MMR. Til samanburðar segjast 20% Úkraínumanna treysta þinginu í Kíev. Aðeins rússneskir fjöl- miðlar njóta minna trausts þar í landi (5%). Forherðing Alþingi tekur engum teljandi fram- förum enn sem komið er þrátt fyrir samþykkt svohljóðandi ályktunar með öllum greiddum atkvæðum 28. septem- ber 2010: „Alþingi ályktar að taka verði gagn- rýni á íslenska stjórnmálamenningu alvarlega og leggur áherslu á að af henni verði dreginn lærdómur. Alþingi ályktar að skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis sé áfellisdómur yfir stjórn- völdum, stjórnmálamönnum og stjórn- sýslu, verklagi og skorti á formfestu.“ Í ályktun þingsins birtist langur loforðalisti sem hefst á loforði um endurskoðun stjórnarskrárinnar frá 1944. Ekkert bólar enn á efndum. Forherðingin virðist alger. Báðir ríkis- stjórnarflokkarnir tefla nú fram lykil- frambjóðendum beint upp úr Panama- skjölunum eins og ekkert hafi í skorizt. Nýja stjórnarskráin getur verið stolt af slíkum andstæðingum. Lýðræði á undir högg að sækja Virðingarleysi Alþingis gagnvart úrslitum þjóðaratkvæðagreiðslunnar 20. október 2012 felur í sér grafalvar- laga aðför að lýðræðinu í landinu. Það hefur aldrei áður gerzt nokkurs staðar í nálægum löndum að löggjafarsam- koman grafi undan nýrri stjórnarskrá sem kjósendur hafa lýst stuðningi við í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þessi aðför einkum Sjálfstæðis- flokksins og Framsóknar að lýðræðinu er að sönnu einsdæmi í okkar heims- hluta. Það kann að byrgja sumum sýn á alvöru málsins að síðustu ár hefur hallað á lýðræði um heiminn í fyrsta sinn frá 1980 eins og ég lýsti hér á þessum stað 5. marz 2015. Lýðræði breiddist hratt út um heiminn 1945- 1960, hægði ferðina 1960-1980 og tók síðan fjörkipp aftur 1980-2000, ekki sízt eftir hrun Sovétríkjanna 1991. Frá aldamótunum 2000 hefur lýðræðis- ríkjum heimsins ekki fjölgað, heldur hefur fáræðisríkjum fjölgað til jafns við fækkun einræðisríkja. Lýðræði og mannréttindi eiga nú upp á síðkastið jafnvel undir högg að sækja innan ESB. Ungverska þingið hefur sett landinu stjórnarskrá með mannréttinda- ákvæðum sem standast ekki lágmarks- kröfur ESB. Pólska ríkisstjórnin hefur sett lög sem skerða mannréttindi. Fjármálaráðherra Grikklands fyrri hluta árs 2015 og fv. hagstofustjóri landsins, blásaklausir báðir tveir, eiga yfir höfði sér ákærur fyrir landráð. Hálfgildings fasistaflokkar hafa fært sig upp á skaftið í Evrópu og gera m.a. út á óvild í garð erlendra flóttamanna. Brot gegn lýðræði og mannréttindum á Íslandi kunna í þessu samhengi að virðast saklausari en ella. Svo er þó ekki, heldur eru þau þvert á móti þeim mun skuggalegri. Alþingi gegn mannréttindum Samt kann hjálp að eiga eftir að berast utan úr heimi ef Alþingi lætur sér ekki segjast. Ef Alþingi hefði gert sig sekt um það eitt að standa í vegi fyrir gildistöku nýrrar stjórnarskrár væri engrar hjálpar að vænta frá útlöndum. En Alþingi hefur nú í bráðum fjögur ár staðið í vegi fyrir gildistöku nýrrar stjórnarskrár sem geymir mikilvæg ákvæði um aukin mannréttindi, m.a. jafnt vægi atkvæða og auðlindir í þjóðareigu. Mannrétt- indanefnd SÞ birti 2007 bindandi álit þess efnis að Alþingi bæri að afnema alla mismunun, þ.e. mannréttindabrot, úr fiskveiðistjórnarkerfinu og bæta tjónþolum skaðann. Alþingi hefur ekki enn virt tilmæli nefndarinnar þótt því beri samningsbundin skylda til að verða við þeim. Nefndinni kann því að berast ný kæra vegna þess að Alþingi stendur enn í vegi fyrir eflingu mann- réttinda á Íslandi. Sýnum heiminum Hér hangir þó fleira á spýtunni en fram- gangur lýðræðis og mannréttinda á Íslandi eins og Lawrence Lessig stjórn- lagaprófessor í Harvard-háskóla lýsti vel á opnum fundi stjórnarandstöðu- flokkanna á Alþingi í Norræna húsinu um daginn. Þar eð lýðræði á nú víða undir högg að sækja mega Íslendingar fyrir enga muni gefast upp heldur þurfa þeir að sýna umheiminum svart á hvítu að þeir sömdu ekki og samþykktu lýð- ræðislegustu stjórnarskrá sem nokkurn tímann hefur litið dagsins ljós til þess eins að henni yrði tortímt. Ekki einkamál Íslendinga Í ályktun þingsins birtist langur loforðalisti sem hefst á loforði um endurskoðun stjórnarskrár- innar frá 1944. Ekkert bólar enn á efndum. Forherðingin virðist alger. Báðir ríkisstjórnarflokk- arnir tefla nú fram lykilfram- bjóðendum beint upp úr Pa- nama-skjölunum eins og ekkert hafi í skorizt. Nýja stjórnar- skráin getur verið stolt af slíkum andstæðingum. Þorvaldur Gylfason prófessor Í dag Kjósum heilbrigðara samfélag Kjósum Samfylkinguna Við tökum undir ákall 87.000 Íslendinga um meira fé til heilbrigðismála. Það gengur ekki að spítalar séu ársveltir á meðan efnahagur er á stöðugri uppleið og útgerðin græðir á tá og fingri. Veikir Íslendingar og ölskyldur þeirra eiga að hafa forgang. Við eigum öll að geta gengið að öflugri opinberri heilbrigðisþjónustu um allt land. Ókeypis. Alltaf. Og vel á minnst, við höfum efni á þessu. Við bjóðum einfaldlega út kvótann til að ná því sem upp á vantar. Það er ekki eftir neinu að bíða. Við ætlum að reisa nýjan Landspítala, án tafar Við ætlum að efla heilsugæslu, sem tekur á móti öllum Við ætlum að útrýma biðlistunum, þeir eru óþolandi Við ætlum að byggja fleiri hjúkrunarheimili Við ætlum að styrkja sálfræði– og geðheilbrigðisþjónustu „Kjósum besta heilbrigðiskerfi í heimi“ — Oddný Harðardóttir, formaður Samfylkingarinnar s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 27F i M M T u d a g u R 2 2 . s e p T e M B e R 2 0 1 6 2 2 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :2 4 F B 0 8 0 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A A 7 -7 E A C 1 A A 7 -7 D 7 0 1 A A 7 -7 C 3 4 1 A A 7 -7 A F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 8 0 s _ 2 1 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.