Fréttablaðið - 22.09.2016, Page 27
Það var fyrir nokkru í Kíev, höfuðborg Úkraínu, að ég spurði heimamenn hverj-um augum þeir litu horfur lands síns fram í tímann. Ég hafði kvöldið áður ekið
fram hjá fjölmennum mótmælum við
þinghúsið í hjarta borgarinnar þar eð
enn eitt spillingarmál hafði gosið upp.
Sá sem varð fyrir svörum sagði: Aðeins
tvennt kemur til greina. Annaðhvort ná
nauðsynlegar umbætur fram að ganga í
friði og spekt eða þær verða innleiddar
með öðrum hætti. Þriðji kosturinn,
engar umbætur, óbreytt ástand, kemur
ekki til álita, sagði hann. Þolinmæði
okkar er á þrotum.
Mér varð hugsað hingað heim þar
sem vantraust kjósenda í garð stjórn-
málamanna hefur frá hruni mælzt litlu
minna en í Úkraínu. Skv. Þjóðarpúlsi
Capacents sögðust að meðaltali 41%
kjósenda treysta Alþingi árin 1995-
2008 en aðeins 15% að meðaltali sögð-
ust treysta Alþingi 2009-2016. Nýjasta
mælingin frá því í febrúar 2016 er 17%.
Fimm kjósendur af hverjum sex van-
treysta Alþingi. Frá hruni hefur Alþingi
ásamt bankakerfinu og dómskerfinu
skrapað botninn í traustsmælingum
Capacents og MMR. Til samanburðar
segjast 20% Úkraínumanna treysta
þinginu í Kíev. Aðeins rússneskir fjöl-
miðlar njóta minna trausts þar í landi
(5%).
Forherðing
Alþingi tekur engum teljandi fram-
förum enn sem komið er þrátt fyrir
samþykkt svohljóðandi ályktunar með
öllum greiddum atkvæðum 28. septem-
ber 2010:
„Alþingi ályktar að taka verði gagn-
rýni á íslenska stjórnmálamenningu
alvarlega og leggur áherslu á að af
henni verði dreginn lærdómur. Alþingi
ályktar að skýrsla rannsóknarnefndar
Alþingis sé áfellisdómur yfir stjórn-
völdum, stjórnmálamönnum og stjórn-
sýslu, verklagi og skorti á formfestu.“
Í ályktun þingsins birtist langur
loforðalisti sem hefst á loforði um
endurskoðun stjórnarskrárinnar frá
1944. Ekkert bólar enn á efndum.
Forherðingin virðist alger. Báðir ríkis-
stjórnarflokkarnir tefla nú fram lykil-
frambjóðendum beint upp úr Panama-
skjölunum eins og ekkert hafi í skorizt.
Nýja stjórnarskráin getur verið stolt af
slíkum andstæðingum.
Lýðræði á undir högg að sækja
Virðingarleysi Alþingis gagnvart
úrslitum þjóðaratkvæðagreiðslunnar
20. október 2012 felur í sér grafalvar-
laga aðför að lýðræðinu í landinu. Það
hefur aldrei áður gerzt nokkurs staðar
í nálægum löndum að löggjafarsam-
koman grafi undan nýrri stjórnarskrá
sem kjósendur hafa lýst stuðningi við í
þjóðaratkvæðagreiðslu.
Þessi aðför einkum Sjálfstæðis-
flokksins og Framsóknar að lýðræðinu
er að sönnu einsdæmi í okkar heims-
hluta. Það kann að byrgja sumum sýn
á alvöru málsins að síðustu ár hefur
hallað á lýðræði um heiminn í fyrsta
sinn frá 1980 eins og ég lýsti hér á
þessum stað 5. marz 2015. Lýðræði
breiddist hratt út um heiminn 1945-
1960, hægði ferðina 1960-1980 og tók
síðan fjörkipp aftur 1980-2000, ekki
sízt eftir hrun Sovétríkjanna 1991. Frá
aldamótunum 2000 hefur lýðræðis-
ríkjum heimsins ekki fjölgað, heldur
hefur fáræðisríkjum fjölgað til jafns
við fækkun einræðisríkja. Lýðræði og
mannréttindi eiga nú upp á síðkastið
jafnvel undir högg að sækja innan ESB.
Ungverska þingið hefur sett landinu
stjórnarskrá með mannréttinda-
ákvæðum sem standast ekki lágmarks-
kröfur ESB. Pólska ríkisstjórnin hefur
sett lög sem skerða mannréttindi.
Fjármálaráðherra Grikklands fyrri
hluta árs 2015 og fv. hagstofustjóri
landsins, blásaklausir báðir tveir, eiga
yfir höfði sér ákærur fyrir landráð.
Hálfgildings fasistaflokkar hafa fært
sig upp á skaftið í Evrópu og gera m.a.
út á óvild í garð erlendra flóttamanna.
Brot gegn lýðræði og mannréttindum
á Íslandi kunna í þessu samhengi að
virðast saklausari en ella. Svo er þó
ekki, heldur eru þau þvert á móti þeim
mun skuggalegri.
Alþingi gegn mannréttindum
Samt kann hjálp að eiga eftir að berast
utan úr heimi ef Alþingi lætur sér ekki
segjast. Ef Alþingi hefði gert sig sekt um
það eitt að standa í vegi fyrir gildistöku
nýrrar stjórnarskrár væri engrar hjálpar
að vænta frá útlöndum. En Alþingi
hefur nú í bráðum fjögur ár staðið í vegi
fyrir gildistöku nýrrar stjórnarskrár
sem geymir mikilvæg ákvæði um aukin
mannréttindi, m.a. jafnt vægi atkvæða
og auðlindir í þjóðareigu. Mannrétt-
indanefnd SÞ birti 2007 bindandi álit
þess efnis að Alþingi bæri að afnema
alla mismunun, þ.e. mannréttindabrot,
úr fiskveiðistjórnarkerfinu og bæta
tjónþolum skaðann. Alþingi hefur ekki
enn virt tilmæli nefndarinnar þótt
því beri samningsbundin skylda til að
verða við þeim. Nefndinni kann því að
berast ný kæra vegna þess að Alþingi
stendur enn í vegi fyrir eflingu mann-
réttinda á Íslandi.
Sýnum heiminum
Hér hangir þó fleira á spýtunni en fram-
gangur lýðræðis og mannréttinda á
Íslandi eins og Lawrence Lessig stjórn-
lagaprófessor í Harvard-háskóla lýsti
vel á opnum fundi stjórnarandstöðu-
flokkanna á Alþingi í Norræna húsinu
um daginn. Þar eð lýðræði á nú víða
undir högg að sækja mega Íslendingar
fyrir enga muni gefast upp heldur þurfa
þeir að sýna umheiminum svart á hvítu
að þeir sömdu ekki og samþykktu lýð-
ræðislegustu stjórnarskrá sem nokkurn
tímann hefur litið dagsins ljós til þess
eins að henni yrði tortímt.
Ekki einkamál Íslendinga
Í ályktun þingsins birtist langur
loforðalisti sem hefst á loforði
um endurskoðun stjórnarskrár-
innar frá 1944. Ekkert bólar enn
á efndum. Forherðingin virðist
alger. Báðir ríkisstjórnarflokk-
arnir tefla nú fram lykilfram-
bjóðendum beint upp úr Pa-
nama-skjölunum eins og ekkert
hafi í skorizt. Nýja stjórnar-
skráin getur verið stolt af slíkum
andstæðingum.
Þorvaldur
Gylfason
prófessor
Í dag
Kjósum heilbrigðara samfélag
Kjósum Samfylkinguna
Við tökum undir ákall 87.000 Íslendinga um meira fé til heilbrigðismála.
Það gengur ekki að spítalar séu ársveltir á meðan efnahagur er á
stöðugri uppleið og útgerðin græðir á tá og fingri. Veikir Íslendingar og
ölskyldur þeirra eiga að hafa forgang. Við eigum öll að geta gengið að
öflugri opinberri heilbrigðisþjónustu um allt land. Ókeypis. Alltaf.
Og vel á minnst, við höfum efni á þessu. Við bjóðum einfaldlega út kvótann
til að ná því sem upp á vantar. Það er ekki eftir neinu að bíða.
Við ætlum að reisa nýjan Landspítala, án tafar
Við ætlum að efla heilsugæslu, sem tekur á móti öllum
Við ætlum að útrýma biðlistunum, þeir eru óþolandi
Við ætlum að byggja fleiri hjúkrunarheimili
Við ætlum að styrkja sálfræði– og geðheilbrigðisþjónustu
„Kjósum besta
heilbrigðiskerfi
í heimi“
— Oddný Harðardóttir,
formaður Samfylkingarinnar
s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 27F i M M T u d a g u R 2 2 . s e p T e M B e R 2 0 1 6
2
2
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:2
4
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
A
7
-7
E
A
C
1
A
A
7
-7
D
7
0
1
A
A
7
-7
C
3
4
1
A
A
7
-7
A
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
8
0
s
_
2
1
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K