Fréttablaðið - 29.10.2016, Page 10

Fréttablaðið - 29.10.2016, Page 10
Fyrir þig í Lyfju lyfja.is Decubal fyrir húðina! Afsláttur af völdum Decubal vörum út október. afsláttu r 20% ZENDIUM STYRKIR NÁTTÚRULEGAR VARNIR MUNNSINS FÉLAG ÍSLENSKRA TANNFRÆÐINGA MÆLIR MEÐ ZENDIUM TANNKREMI Kosningar Veður gæti tafið taln- ingu atkvæða í Norðausturkjör- dæmi en ætti ekki að hafa áhrif í öðrum kjördæmum. Ókyrrt loft í kvöld og fjallabylgjur gætu hamlað flugferðum milli Egilsstaða og Akureyrar og því gæti þurft að aka með kjörkassa frá Austurlandi til Akureyrar í nótt sem tefði talningu atkvæða. 1.302 Íslendingar bjóða fram í alþingiskosningunum í dag og eru rúmlega 246 þúsund manns á kjör- skrá að þessu sinni. Stjórnmálafræð- ingar eru á einu máli um að kosn- ingarnar í dag séu þær tvísýnustu í háa herrans tíð og engin leið að spá um úrslitin. Skoðanakannanir hafa gefið mismunandi niðurstöður. Því er líklegt að í vændum sé löng kosninganótt og erfiðar stjórnar- myndunarviðræður að loknum kosningum. Birta Líf Kristinsdóttir, veður- fræðingur á Veðurstofu Íslands, segir kosningaveðrið í dag ekki vera mjög gott en þó skaplegt. „Í kortunum er stormur með tals- verðri rigningu fyrst sunnan- og vestanlands. Svo dregur úr úrkomu og vindi upp úr hádegi en þá á eftir að versna norðan og austan til. Þar mun rigna með hvassviðri og leiðin- legu veðri,“ segir Birta Líf. „Ef ég ætti að ráðleggja kjósendum þá hentar fyrri partur dagsins fyrir íbúa á Norður- og Austurlandi en íbúar sunnan og vestan til ættu að kjósa seinni partinn.“ Grétar Þór Eyþórsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Akureyri, segir kjörsókn geta ráðið úrslitum í kosningunum í dag. „Það er þannig að ef unga fólkið fer ekki á kjörstað munu Píratar lækka flugið og gamalgrónu flokkarnir sem eldra fólkið kýs frekar vinna á. Það getur því ráðið miklu um kjörsókn unga fólksins,“ segir Grétar. Kjörsókn hefur farið dvínandi á Íslandi í síðustu fernum þingkosningum og vill Grétar ekki spá neinu um kjör- sókn nú. „Þetta er rosalega tvísýnt og ekki hægt að spá um kjörsókn. Mun hún fara niður áfram eða mun þessi spenna valda því að smölun yrði meiri á kjörstað?“ Kjörkassar frá Austurlandi verða fluttir til Akureyrar þar sem talið er úr Norðausturkjördæmi. Birta Líf segir veðurspána ekki hliðholla flugsamgöngum. „Það eru nokkrir hlutir sem spila inn í. Við sjáum ókyrrð í lofti og fjallabylgjur sem eru óheppilegar fyrir farþegaflug en svo er spurning hvort þeir láti kjör- kassana hafa það og fljúga með þá, það verður bara að koma í ljós. Hins vegar þyrfti í versta falli að aka með þá til Akureyrar,“ segir Birta Líf. sveinn@frettabladid.is Veður gæti haft áhrif á úrslitin í kosningunum Fjórflokkurinn gæti hagnast á slæmu veðri á kjördag að sögn stjórnmálafræð- ings. Kjörsókn ungs fólks gæti haft úrslitaáhrif á niðurstöðu alþingiskosning- anna. Kjörsókn hefur farið minnkandi í síðustu fernum alþingiskosningum. Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti kjörgögn til Dalvíkur í gær og flaug með þau áleiðis til Grímseyjar. Ófært hefur verið í eyna síðustu daga vegna veðurs. MynD/Haukur SnorraSon Kosið í tvo daga Trausti Jónsson veðurfræðingur man vel eftir alþingiskosningunum í desember árið 1979. Landskjör- stjórn bað þá Veðurstofu Íslands um álit á því að kjósa ætti svo seint á árinu. „Á endanum var ákveðið að kjörstaðir yrðu opnir í tvo daga til að menn gætu kosið. Það gerði slæmt veður á þessum tíma en allt gekk þetta að óskum,“ segir Trausti. „Veturinn 1979 var óvenjuhlýr eins og októbermán- uður í ár og því eru nokkur líkindi með þessari atburðarás hvað varðar veðrið. Einhverjir fjallvegir lokuðust á þessum tíma en við þurfum nú ekki að óttast það í þessum kosningum.“ Það er þannig að ef unga fólkið fer ekki á kjörstað munu Píratar lækka flugið og gamalgrónu flokk- arnir sem eldra fólkið kýs frekar vinna á. Grétar Þór Eyþórs- son, stjórnmála- fræðingur samfélag Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) greiddu kostnað vegna ferðar Dags B. Egg- ertssonar borgarstjóra til Strassborg- ar, Kaupmannahafnar og Vancouver þar sem hann kynnti sér rekstur sporvagna. Kostnaður Reykjavíkur- borgar vegna þátttöku aðstoðar- manns borgarstjóra, sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs og sam- göngustjóra nam um 1,3 milljónum. Þetta kom fram á borgarráðsfundi Reykjavíkurborgar á fimmtudag. Kostnaðurinn var um 300 þúsund vegna dagpeninga, 640 þúsund fyrir flug og rútu og 370 þúsund vegna gistikostnaðar. Borgarráðsfull- trúar Sjálfstæðisflokks spurðu hvers vegna ákveðið hefði verið að fara til borganna og um kostnaðinn. Í svari borgarstjóra segir að ferðin hafi verið sérstak- lega farin með það í huga að skoða utanumhald og umgjörð utan um upp- byggingu hágæðakerfis almenningssamgangna, léttlestar- eða hraðvagna- kerfi sem kallað hefur verið Borgarlínan. Í samræmi við tillögu skrifstofu samtak- anna fór borgar- stjóri Reykja- víkur ásamt bæjarstjórum sveitarfélag- anna á höfuð- borgarsvæðinu og fulltrúum innan- ríkisráðuneytisins, Vegagerðarinnar og Strætó til borganna til að kynna sér reynsluna af uppbyggingunni. Kaupmannahöfn var valin vegna létt- og neðanjarðarlestakerfis borg- arinnar sem hannað var af dönsku verkfræðistofunni COWI en sú stofa mun aðstoða SSH í skipulags- vinnu í kringum Borgarlínu, Strass- borg vegna árangursríks samstarfs sveitarfélaga þar sem tekist var á við að byggja upp almenningssamgöngukerfi og breyta ferðavenjum íbúa og Vancouver vegna samstarfs ríkis og sveitar- félaga  sem hefur  skilað af sér PPP-módeli við uppbygg- ingu hágæðakerfis sem hefur orðið fyrirmynd margra slíkra verkefna. – bbh Kostnaður borgarinnar vegna ferðar yfir milljón ViðsKipti  Þýski bankarisinn Deutsche Bank hagnaðist um 278 milljónir evra, jafnvirði 34,6 milljarða íslenskra króna, á þriðja ársfjórðungi. Um var að ræða veru- legan viðsnúning en á sama tímabili í fyrra tapaði bankinn 6 milljörðum evra, 746 milljörðum króna. Eins og Fréttablaðið hefur greint frá hefur Deutsche Bank átt í miklum rekstrarerfiðleikum síðast- liðið árið. Forsvarsmenn Deutsche Bank segja að erfitt vaxtaumhverfi og áhrif af himinhárri sekt banda- rískra stjórnvalda á hendur bank- anum hafi haft áhrif á reksturinn. Enn á eftir að semja um endanlega upphæð sektarinnar, en fyrst var til- kynnt um 14 milljarða dollara sekt, jafnvirði 1.600 milljarða króna. Bankinn hefur verið að skera niður rekstrarkostnað sem og að selja eignir til að róa fjárfesta. Sala jókst um 2 pró- sent hjá Deutsche á fjórðungnum og nam 7,6 milljörðum evra, jafnvirði 944 milljarða íslenskra króna, á fjórð- ungnum. Þetta var betra en fjárfestar áttu von á. – sg Deutsche hagnast þrátt fyrir erfiðleika Viðsnúningur var í rekstri Deutsche Bank milli ára. FréttaBLaðið/Getty Dagur B. eggerts- son borgarstjóri 1,3 milljónir fóru í skoðunarferð Dags B. Eggertssonar. 2 9 . o K t ó b e r 2 0 1 6 l a U g a r D a g U r10 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð 2 9 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :3 9 F B 1 1 2 s _ P 1 0 6 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 1 0 3 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 1 C -5 9 C 0 1 B 1 C -5 8 8 4 1 B 1 C -5 7 4 8 1 B 1 C -5 6 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 1 1 2 s _ 2 8 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.