Fréttablaðið - 29.10.2016, Page 37

Fréttablaðið - 29.10.2016, Page 37
Starfsemi Eflu er að sögn Brynjars afar fjölbreytt og er mikil áhersla lögð á lausna- miðað hugarfar í allri nálgun við viðskiptavini og viðfangsefni. MYND/GVA EFLA hannaði lýsinguna í jarðgöngunum í Langjökli. Verkefnið skaraði fram úr á Dark Awards í ár. Hjá EFLU starfa yfir 300 manns og er fjöldi og fjölbreytni verkefna eftir því. Mikil áhersla er lögð á nýsköpun og er listinn yfir nýsköp- unarverkefni stofunnar langur. Stofan vann nýverið til alþjóðlegra verðlauna fyrir lýsingatækniverk- efni í Langjökli. Hún hefur sömu- leiðis hlotið viðurkenningu fyrir brúarlýsingu og komst langt í al- þjóðlegri samkeppni um bygginga- tæknilausnir fyrir eldri borgara og fatlaða svo eitthvað sé nefnt. Brynjar Bragason, sviðsstjóri iðnaðarsviðs EFLU, tók að sér að nefna nokkur dæmi um nýsköpun- artengd verkefni Eflu og eru þau jafn ólík og þau eru mörg. Framúrskarandi „Mörg þessara verkefna snúa að lýsingatækni innanhúss sem utan en þar hefur orðið mikil framþró- un og þá ekki síst með tilkomu Led- lýsingar. Lýsingarhönnuðir okkar tóku meðal annars að sér að lýsa upp íshellinn í Langjökli með það að markmiði að skapa náttúrulega upplifun þegar komið er inn í hell- inn. Þetta var vandasamt verkefni enda að mörgum tæknilegum úr- lausnarefnum að hyggja. Það þótti hins vegar takast vel og varð okkar framlag tilnefnt til „Dark Awards“ sem er samkeppni lýsingahönnuða á heimsvísu. Keppninni er skipt í sex flokka og er mikill fjöldi verk- efna í hverjum flokki. Við kepptum í flokknum „Landscape lighting“ og unnum hann. Við hlutum jafn- framt aðalverðlaun samkeppninn- ar eða „best of best“ þvert yfir alla flokka. Það má því eiginlega segja að við höfum fengið Óskarinn fyrir lýsingarhönnun,“ segir Brynjar og hlær. Hann segir fleiri sambæri- leg verkefni í farvatninu og spenn- andi verður að fylgjast með þróun þeirra. EFLA hlaut jafnframt viður- kenningu Íslenska ljóstækni- félagsins í fyrra fyrir lýsingu á brúnni milli turnsins á Smára- torgi og Smáralindar. Þar er um að ræða svokallaða áherslulýs- ingu sem Brynjar segir koma að miklu gagni í umferðinni og nefnir dæmi: „Við vinnum mikið með lýs- ingu í jarðgöngum bæði hér heima og í Noregi. Þau verða sífellt lengri og umferðarþyngri og þá er notuð áherslulýsing til að draga úr eins- leitni, enda á breytilegt umhverfi þátt í því að halda vegfarendum vakandi og við efnið.“ Handhægt EFLUbox Ýmis nýsköpunarverkefni liggja á borði iðnaðarsviðs, sem Brynjar fer fyrir, og hefur grunni að verk- efnum verið forgangsraðað í sam- starfi við Nýsköpunarmiðstöð Ís- lands. Þar ber helst að nefna svo- kallað „EFLUbox“ en það gengur út á að koma upplýsingum úr flóknum stjórnkerfum iðnaðarins yfir í snjalltæki án þess að kaupa til þess dýran hugbúnað. Í EFLU- boxinu, sem er að sögn Brynjars mjög handhægt og einfalt í notk- un, eru þráðlausar lausnir sem eru tengdar við þann mælabún- að sem við á. Boxið sendir gögn svo áfram í snjalltækin eða með öðrum orðum beint í vasa notenda og felst í því felst mikið hagræði. Hitamyndavélar í forvarnir Brynjar segir spennandi hluti sömuleiðis vera að gerast í mynd- greiningartækninni og lætur EFLA ekki sitt eftir liggja þar frekar en á öðrum sviðum. „Það þekkja margir hvernig mynd- greiningartæknin er í auknum mæli notuð í iðnaði og má nefna sem dæmi að Marel hefur verið frumkvöðull á því sviði „Við höfum horft til hitamyndavéla- tækninnar og hvernig hægt er að nota hana í forvarnar- og örygg- isskyni. Þessa tækni er til dæmis hægt að tengja rafbúnaði bygginga og þannig hægt að fylgjast með hitabreytingum eða öðrum hættu- merkjum áður en skaðinn er skeð- ur. „Fjölmörg fyrirtæki hafa sýnt þessari lausn mikinn áhuga, ekki síst tryggingafélögin“ Af öðrum nýlegum verkefnum EFLU nefnir Brynjar upplýsinga- kerfið Granna sem sveitarfélögin nota og er í sífelldri þróun. „Það byggir á kortakerfi sveitarfélag- anna og er hugsað þannig að bygg- ingafulltrúar og aðrir geti tengt allar viðeigandi bakgrunnsupp- lýsingar við kortagrunnana sem sveitarfélögin þurfa að hafa til- tæk vegna bygginga- og skipu- lagstengdra mála. Þeir geta þá staðsett sig inni í kortunum og fengið beinan aðgang að þeim bakgrunnsupplýsingum sem eiga við.“ Að síðustu nefnir Brynjar skemmtilegt hugmyndaverkefni sem EFLA vann og sendi í sam- keppni meðal höfuðborga allra Norðurlandanna.„Það gekk út á að þróa tæknilausnir sem myndu bæta lífsgæði eldri borgara og fatlaðra. Okkar hugmynd byggir á að búa til umhverfi sem við nefn- um Ylgarð, innigarð sem hægt er að nota allt árið. Þar yrði notalegt að vera óháð árstíð hverju sinni og mikil áhersla lögð á að stjórna hita, raka, lýsingu og sólarljósi sem best. Markmiðið er að auka vellíðan fólks sem hefur ekki tök á að njóta nátttúrunnar annars. Um 500 hugmyndir bárust í samkeppn- ina og var hugmynd EFLU á meðal þeirra 25 efstu. „Við brennum enn fyrir þessari hugmynd og höfum verið að halda henni að opin- berum aðilum og öðrum sem eru að byggja framsæknar og metnað- arfullar byggingar til að notendum líði enn betur.“ Hægt er að kynna sér fleiri verkefni EFLU á vefsíðu fyrirtækisins, efla.is Með Óskarinn í lýsingartækni EFLA verkfræðistofa er alhliða ráðgjafafyrirtæki í verkfræði, tækni og tengdum greinum. Jaðar þess sem fyrirtækið fæst við hefur stöðugt verið að færast út í takt við umfangsmeiri og fjölbreyttari þarfir samfélagsins. Slagorð fyrirtækisins er „allt mögulegt“ sem vísar bæði til fjölbreytninnar í starfseminni og þess lausnamiðaða hugarfars sem fyrirtækið vill viðhafa í nálgun við viðskiptavini og viðfangsefni. Gróðurhús í félagsmiðstöðinni Lönguhlíð er dæmi um fyrirmynd að Ylgarði. Kynningarblað VErKFræði oG ArKitEKtúr 29. október 2016 3 2 9 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :3 9 F B 1 1 2 s _ P 0 7 6 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 7 3 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B 1 C -9 5 0 0 1 B 1 C -9 3 C 4 1 B 1 C -9 2 8 8 1 B 1 C -9 1 4 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 1 1 2 s _ 2 8 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.