Fréttablaðið - 29.10.2016, Síða 44

Fréttablaðið - 29.10.2016, Síða 44
Hvunndags- legur í San Diego í júlí á þessu ári. Flottar og einfaldar hrekkjavökukökur. Hrekkjavakan er á mánudag. Það er skemmtilegt að eiga hrekkja­ vökukökur þann dag eða um helg­ ina. Hægt er að gera ofureinfald­ ar bollakökur með alls kyns furðu­ dýrum eða draugum. Einfalt er búa til kóngulóarkökur. Svo er hægt að kaupa tilbúnar jólapipar­ kökur og skreyta þær með ýmiss konar hrekkjavökumynstri. Skemmtilegt að gera þetta með krökkunum um helgina. Kóngulóarkaka 1 ½ bolli hveiti 2 tsk. lyftiduft ¼ tsk. salt ½ bolli ósaltað mjúkt smjör ¾ bolli sykur 2 stór egg 1 tsk. vanilludropar ½ bolli mjólk Súkkulaðikrem ½ bolli flórsykur 1 msk. kakó 1 msk. mjólk Kóngulóarskraut Lakkrískurl eða mjög smátt skornar lakkrísreimar 24 sælgætisaugu (m&m eða eitthvað álíka) lakkrísreimar, klipptar niður Hitið ofninn í 180°C. Tólf múffu- form eru notuð í þessa uppskrift. Setjið hveiti, lyftiduft og salt í skál og blandið saman. Smjör og sykur er þeytt saman í hrærivél þar til blandan verður létt og ljós. Bætið eggjum við, einu í einu og hrær- ið áfram. Þá er vanilludropum og mjólk bætt í og að lokum þurrefn- um. Skiptið deiginu í tólf múffu- form. Setjið í ofn og bakið í 15-18 mínútur. Kælið áður en kökurn- ar eru skreyttar. Hrærið flórsyk- ur, kakó og mjólk saman og bætið við mjólk eftir þörfum þannig að kremið verði ekki of þykkt. Smyrj- ið kreminu á kökurnar. Kremið er síðan þakið með lakkrískurli eða mjög smátt skornum lakkrísreim- um. Setjið augu á kóngulóna eftir eigin vali. Fætur eru gerðir með lakkrís reimum, skerið þær í hæfi- lega langar ræmur. Búið til átta göt í kökuna með prjóni og troð- ið lakkrísnum þar ofan í. Þá er kóngulóin komin með fætur. KóngulóarKaKa á hreKKjavöKu Cumberbatch hlaut CBE-orðu frá Elísabetu Englandsdrottningu í nóvember í fyrra og mætti tilhlýðilega klæddur af tilefninu ásamt konu sinni, Sophie Hunter. Fáir leikarar eiga jafn fjölbreyttan feril að baki og hinn breski Bene­ dict Cumberbatch. Hann hefur leikið John Harrison, Julian Assange, Hamlet og drek­ ann Smeyginn. Hann vann sér mikla hylli fyrir túlk­ un sína á hinum sérlundaða Sherlock Holmes og hlaut Óskarsverðlaun fyrir hlut­ verk sitt sem Alan Turing í The Imitation Game. Nú hefur hann bætt enn einni rós í hnappagatið en í gær var frumsýnd á Íslandi myndin Doctor Strange þar sem Cum­ berbatch fer með hlutverk of­ urhetjunnar og skurðlæknisins Stephens Strange. Cumberbatch er ekki að­ eins þekktur fyrir einstaka leik­ hæfileika. Tískuspekúlantar hafa hann í hávegum fyrir góðan smekk bæði á rauða dreglinum og utan hans. Þannig hefur hann verið á topp tíu lista yfir best klæddu herramenn síðustu ára hjá tímaritinu GQ. Óaðfinnanlegur í tauinu Ofurhetjumyndin Doctor Strange var frumsýnd á Íslandi í gær. Með aðalhlutverkið fer hinn vel metni breski leikari Benedict Cumberbatch sem ávallt er fínn í tauinu. RANGÁRFLÖTUM 4, HELLU – S. 531 8010 – STRACTAHOTELS.IS Jólahlaðborð, 8.800 kr. á mann. Gerum tilboð fyrir hópa. Ef hópar vilja koma aðra daga, hafið samband í síma 531 8010 eða 531 8007. Netfang: info@stractahotels.is Jólahlaðborð og gisting í tveggja manna herbergi með morgunverði, 17.400 kr. á mann. Margrét Grétarsdóttir og Hrafnkell Óðinsson sjá um lifandi tónlistarflutning yfir borðhaldi. Forréttir: Rjómalöguð súpa ásamt heima löguðu brauði, úrval af síld með rúg brauði, reyktur lax með pipar rótar­ sósu, graflax með graflaxsósu, eini ­ berjalax, sjávar réttarsalat, villi bráða­ paté, nautatunga, tvíreykt hangikjöt, lifrarkæfa með beikoni og sveppum, devilled egg, sjávarréttapaté, hangi­ kjötstartar, jólaskinka, tómatmozza­ rella, grafið hrossakjöt Aðalréttir: Puru steik, hangi kjöt, kal kúna ­ bringa, krydd jurtalegið lamba læri, hrein­ dýra bollur í gráð ostasósu, fisk réttur Meðlæti: Eplasalat, rauðkál, grænar baunir, rauðbeðusalat, sætkartöflu­ salat, laufabrauð, kartöflur með upp­ stúf, sykurbrúnaðar kartöflur, sveppa­ sósa, rauðvínssósa, grillsalat, grænt salat Eftirréttir: Súkkulaðikaka, smákökur, blanda af kökum, ris a la mande Jólahlaðborð 19., 26. nóv. og 3., 10. des. Glæsileg hjón. Töffaralegur í Berlín í október. 2 9 . o k t ó b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r6 F ó L k ∙ k y n n i n G A r b L A ð ∙ X X X X X X X XF ó L k ∙ k y n i n G A r b L A ð ∙ h e L G i n 2 9 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :3 9 F B 1 1 2 s _ P 0 8 0 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 6 9 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 1 C -6 D 8 0 1 B 1 C -6 C 4 4 1 B 1 C -6 B 0 8 1 B 1 C -6 9 C C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 1 1 2 s _ 2 8 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.