Fréttablaðið - 29.10.2016, Side 85
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Heiðrún Kristjánsdóttir
Svansvík,
Súðavíkurhreppi,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði
25. október sl. Jarðarförin auglýst síðar.
Jóhanna R. Kristjánsdóttir
Pétur S. Kristjánsson Rakel Þórisdóttir
Þorgerður H. Kristjánsdóttir Hermann S. Gunnarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Jóhann Lúthersson
Þórðarsveig 3, Reykjavík,
sem lést sunnudaginn 23. október á
Landspítalanum verður jarðsunginn frá
Guðríðarkirkju þann 31. október kl. 13.00.
Jóhanna Stella Jóhannsdóttir Grímur Guðmundsson
Elías Oddur Jóhannsson Sara Ósk Guðmundsdóttir
og fjölskyldur.
Yndisleg eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Sigrún Gyða
Sveinbjörnsdóttir
Lambhaga 26, Selfossi,
lést miðvikudaginn 26. október.
Ólafur Th. Ólafsson
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför ástkærs föður míns og afa,
Ragnars Árnasonar
mælingaverkfræðings,
Æsufelli 4.
Guðný Ragnarsdóttir
Ragnar Árni Ólafsson
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Svanhvít Tryggvadóttir
áður til heimilis að Túngötu 7,
Ólafsfirði,
verður jarðsungin frá Ólafsfjarðarkirkju
þriðjudaginn 1. nóvember kl. 14. Blóm
og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim sem vildu
minnast hennar er bent á dvalarheimilið Hornbrekku.
Guðrún Gunnarsdóttir Jón Gunnarsson
Finnur Víðir Gunnarsson Hrefna Magnúsdóttir
Bergur Gunnarsson Rósa María Vésteinsdóttir
Gunnar, Svanhvít, Magnús, Gunnar Konráð,
Freydís Þóra og Katrín Ösp
Systir mín, mágkona
og móðursystir,
Lilja Sigurðardóttir
hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir,
lést á Landspítalanum 24. október.
Jarðarförin auglýst síðar.
Guðrún Sigurðardóttir Valur Steinn Þorvaldsson
Sigríður Þóra Valsdóttir Sigurður Már Valsson
Móðir okkar,
Hólmfríður Kristín
Jensdóttir
Réttarholtsvegi 27,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir þann
18. október. Jarðarförin hefur farið fram.
Jens, Tómas og Áslaug
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
Jónsteinn Haraldsson
Mánatúni 4,
verður jarðsunginn frá Áskirkju
mánudaginn 31.október kl. 13.00. Þeim
sem vilja minnast hans er bent á SÍBS.
Halldóra H. Kristjánsdóttir
Borgar Jónsteinsson Þórunn Inga Sigurðardóttir
Rebekka Rut Borgarsdóttir Ernir Snær
Ólafur Örn Jónsson
Halldóra Óla Hafdísardóttir Ísold Braga
Ólafur Kiljan Ólafsson
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Eiríkur Svavar Eiríksson
fv. flugumsjónarmaður,
Boðahlein 5, Garðabæ,
lést aðfaranótt 22. október sl.
á Vífilstöðum. Útförin fer fram frá
Fossvogskirkju, fimmtudaginn 3. nóvember nk. kl. 13.00.
Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hans er bent á Gigtarfélag Íslands.
Guðbjörg Kristín Eiríksdóttir Jens Dirk Lubker
Steinunn Eiríksdóttir Þorsteinn Lárusson
Þóra Eiríksdóttir Jan Steen Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Faðir okkar, tengdafaðir,
stjúpfaðir, afi og langafi,
Jón Guðmundsson
strætisvagnabílstjóri
og leigubílsstjóri,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir í Grafarvogi
mánudaginn 24. október.
Hann verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn
1. nóvember kl. 13.00.
Ríkharður Örn Jónsson Jóhanna Sigurðardóttir
Íris Edda Jónsdóttir Viðar Arnarson
Hafdís Eygló Jónsdóttir Sigurbjörn Arngrímsson
Sigurborg Gunnlaugsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Dómkirkjan á 220 ára vígsluafmæli á
morgun og hefur fagnað því allan þennan
mánuð. Við hátíðaguðsþjónustu klukkan
11 predikar sr. Þórir Stephensen þar og
fyrrverandi prestar, þau sr. Anna Sigríður
Pálsdóttir og sr. Jakob Ágúst Hjálmars-
son, þjóna ásamt settum sóknarpresti,
sr. Sveini Valgeirssyni. Kirkjunefnd
kvenna Dómkirkjunnar býður upp á
messukaffi á eftir.
Á mánudagskvöldið verður þar svo
sálmasyrpa undir stjórn Margrétar Bóas-
dóttur.
Laufey Böðvarsdóttir sem ólst upp á
kirkjustaðnum Búrfelli í Grímsnesi sat í
sóknarnefnd Dómkirkjunnar í nokkur
ár áður en hún gerðist þar kirkjuhald-
ari. Hún segir gefandi og skemmtilegt að
starfa í þessum aldna og fagra helgidómi.
En hvert er hlutverk kirkjuhaldara?
„Ég sé um það veraldlega en prestarnir
það andlega,“ útskýrir hún. „Er með fjár-
málin á minni könnu og sé um viðhald
kirkjunnar og safnaðarheimilisins, hvort
tveggja eru merkilegar byggingar og
ég fæ fagmenn í viðgerðir. Það reynir á
að allt gangi upp, hér eru útvarpsupp-
tökur, prestsvígslur og prósessíur. Þetta
er höfuðkirkjan og hún þarf að halda í
sínar gömlu, góðu hefðir. Svo er ég með
prestunum að skipuleggja starfið, þannig
að þetta er mjög fjölbreytt vinna og sú
skemmtilegasta sem ég hef unnið.“
Laufey segir úrvals starfsmenn í Dóm-
kirkjunni, bæði lærða og leika. „Hér er
einhuga og góð sóknarnefnd og fórnfúsir
sjálfboðaliðar af báðum kynjum sem
leggjast á eitt við að efla safnaðarstarf-
ið.“ Hún nefnir sem dæmi Kirkjunefnd
kvenna í Dómkirkjunni sem var stofnuð
1930 og hefur í áranna rás „lagt til ófá
handtök, öll unnin af kærleika“, eins og
hún orðar það. Getur þess líka að konur
sem ekki séu í nefndinni komi færandi
hendi þegar messukaffi er á borð borið.
Saga Dómkirkjunnar er Laufeyju hug-
leikin. „Þetta hús geymir mikla sögu,
bæði í gleði og sorg og mér finnst mikil-
vægt að hún gleymist ekki. Slökkvilið
borgarinnar hafði til dæmis aðsetur í
skrúðhúsinu í áratugi og því héldum
við slökkviliðsmessu um daginn. Starfs-
menn liðsins lásu ritningarlestra, þetta
var mjög falleg stund.“
gun@frettabladid.is
Það er gefandi að starfa í
þessum aldna helgidómi
Í Dómkirkjunni verður hátíðaguðsþjónusta á morgun þegar 220 ár eru liðin frá vígslu
hennar. Á eftir bjóða konur upp á messukaffi. Laufey Böðvarsdóttir er kirkjuhaldari.
Þetta er höfuðkirkjan
og hún þarf að halda í
sínar gömlu, góðu hefðir.
Laufey segir starf kirkjuhaldara í Dómkirkjunni það skemmtilegasta sem hún hafi unnið.
FréttabLaðið/GVa
t í m a m ó t ∙ F R É t t a B L a ð i ð 41LAUGARDAGUR 29. október 2016
2
9
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:3
9
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
1
C
-4
F
E
0
1
B
1
C
-4
E
A
4
1
B
1
C
-4
D
6
8
1
B
1
C
-4
C
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
1
2
s
_
2
8
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K