Fréttablaðið - 13.10.2016, Qupperneq 38
Þrátt fyrir ungan aldur hefur tón-
listarmaðurinn Tómas Jónsson
komið víða við. Undanfarin ár
hefur hann spilað á píanó og önnur
hljómborðshljóðfæri með mörg-
um hljómsveitum og listamönn-
um, bæði á tónleikum og í hljóð-
veri. Á næstunni kemur út fyrsta
sólóplata hans auk þess sem hann
mun koma fram með hljómsveit
sinni á tónlistarhátíðinni Air waves
í næsta mánuði.
„Ég hef verið svo lánsamur að
fá að vinna með ólíku tónlistar-
fólki og með mörgu fólki sem ég
ber mikla virðingu fyrir. Núna er
ég að gefa út plötu í eigin nafni
með eigin músík og útsetningum.
Það finnst mér ansi skemmtilegt
en einnig mjög hræðilegt.“
Sjálfur hlustar hann á ýmsa tón-
list, hefðbundna og tilraunakennda
frá öllum tímabilum. „Á plötunni
minni, sem kemur út í lok októ-
ber, er að finna áhrif frá ambíent
raftónlist og seventís sækadelíu
þannig að ég veit ekki hvort ég á
að setja hana á kántrí- eða teknó-
hilluna.“
Hljómsveitin Tómas Jónsson
kemur fram á Iceland Airwaves. „Í
vetur er síðan eitt og annað á dag-
skrá. Ég er að vinna í meiri músík
fyrir fleiri plötur. Ég er búinn að
vera að vinna með Magnúsi Þór Sig-
mundssyni, vini mínum, við eitt og
annað. Svo er ég í tónleika-
hljómsveit Ásgeirs Trausta
sem ætlar að ferðast víða í
vetur og spila.“
Lýstu fatastílnum
þínum? Ég hef aldrei
velt fyrir mér eigin
fatastíl og hvort ég hafi
yfir höfuð einhvern.
Hins vegar er ég mikill
fagurkeri og finnst fal-
legir hlutir skemmti-
legir, þar eru föt engin
undantekning. Mér
finnst skemmtileg
föt falleg og falleg
föt skemmtileg. Ég
er svolítill sixtís- og
seventísaðdáandi svo
það spilar sjálfsagt
inn í. Mér finnst
flauel frábært og loð-
fóður líka. Fallegir
litir og saga eða sál.
Hversdagsklæðn-
aður minn er samt
oftast nokkuð hlýr
þar sem mér er illa
við að vera kalt, það
er óþarft með öllu.
Hvenær fékkstu
áhuga á tísku? Í
sjálfu sér hef ég ekki áhuga á
tísku, hvað er inni og hvað er úti
hverju sinni, heldur frekar á fal-
legum og vönduðum fatnaði.
Hvernig fylgist þú með tísku?
Ég held ég fylgist mjög ómeð-
vitað með þessum málum og
ekki leita ég að nýjustu tísku á
internetinu. Frekar held ég að
maður sjái þetta á ferð og flakki í
daglegu amstri.
Áttu þér uppáhaldsverslanir?
Mér finnst skemmtilegast að
kaupa gömul notuð föt. Þann-
ig að ég verð að segja bara allir
„second hand“ markaðir. Rauði
kross-
inn, Hjálpræðisherinn og
fatamarkaðurinn á móti
Hlemmi og sambærilegar
búðir í útlöndum.
Áttu uppáhaldsflík?
Mér dettur helst í hug
dönsku Jacoform skórnir
sem mér finnst sérlega
skemmtilegir. Svo hef ég mikið
dálæti á rykfrakkanum mínum
sem ég nota við flest tilefni.
Hann er nú orðinn ansi sjúskaður
samt.
Bestu kaup og verstu kaup?
Dökkblár grófur flauelsjakki
Ég hef aldrei
velt fyrir mér
eigin fatastíl og
hvort ég hafi yfir
höfuð einhvern.
Starri Freyr
Jónsson
starri@365.is
FaLLegir Litir,
saga eða sÁL
Tónlistarmaðurinn Tómas Jónsson leitar ekki eftir nýjustu tísku hverju
sinni heldur frekar því sem hann sér á ferð og flakki í daglegu amstri.
Loðfóðraður flau-
elsjakki frá Rauða
krossinum, Levi’s
gallaskyrta og
svartir leðurskór.
Rykfrakkinn er úr Hjálp-
ræðishernum, peysan frá
Farmers Market, grænar
flauelsbuxur frá Kron Kron
og skórnir frá Jacoform. Á
höfðinu ber hann hatt sem
keyptur er á Camden Lock
markaðnum í London.
sem ég datt niður á í „second
hand“ verslun í þorpi í Lettlandi
er dæmi um sérdeilis góð kaup.
Hann kostaði innan við eina og
hálfa evru og hef ég notað hann
óspart síðan. Dæmi um slæm
kaup eru vettlingar því þeim týni
ég mjög fljótt.
Rauður flauelsjakki
og rauðrósótt flau-
elsskyrta frá Porto-
bello markaðinum í
London.
Icetrack ehf. Sími 773 4334
netfang: mtdekk@mtdekk.is / www.mtdekk.is
MICKEY THOMPSON
jeppadekkin hafa sannað sig á Íslandi
M/T merkið er þekkt um allan heim sem hágæða jeppadekk og felgur.
Stærðir 32” - 54”
J E P PA D E K K
BAJA CLAW MTZDEEGAN
Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook
Opið
virka daga
kl. 11–18
laugardaga
kl. 11-15
Stretch
skyrtur
frá
Verð 8.900 kr.
- 4 litir:
hvítt, svart,
ljósblátt, grátt
- stærð 34 - 48
Verð 9.900 kr.
- röndótt:
ljósblátt/hvítt
- stærð 34 - 48
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
Flott föt
fyrir flottar konur
1 3 . o k t ó b e r 2 0 1 6 F I M M t U D A G U r6 F ó l k ∙ k y n n I n G A r b l A ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ k y n I n G A r b l A ð ∙ t í s k A
1
3
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:2
5
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
E
9
-7
4
E
C
1
A
E
9
-7
3
B
0
1
A
E
9
-7
2
7
4
1
A
E
9
-7
1
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
8
0
s
_
1
2
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K