Fréttablaðið - 02.07.2016, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 02.07.2016, Blaðsíða 8
✿ Þjóðirnar í 8 liða úrslitum á EM í hnotskurn ÍÞróttir Ekkert land með lið í átta liða úrslitum Evrópumeistaramóts- ins í knattspyrnu sem nú fer fram í Frakklandi er fámennara en Ísland. Þá býr ekkert land yfir jafn sterkum borgurum og Ísland. Hins vegar eru mun færri skráðir fótboltamenn á Íslandi en í hinum löndunum sjö. Samkvæmt heimslista FIFA eru Íslendingar með sísta karlalands- liðið á meðal þjóðanna átta en þriðja besta kvennalandsliðið. Átta liða úrslitin eru nú hálfnuð. Portúgalar unnu Pólverja 5-3 í víta- spyrnukeppni á fimmtudag og Wales vann Belgíu 3-1 í gær. Þá etja Þjóðverjar og Ítalir kappi í kvöld og eins og flestir vita keppa strák- arnir okkar við heimamenn, Frakka, annað kvöld í París. – þea Íslendingar fæstir en sterkari en aðrar þjóðir í Frakklandi SAMFÉLAG Skerðingin „króna á móti krónu“, það er skerðing Trygg- ingastofnunar á lífeyri, gæti verið mannréttindabrot. Þetta er mat Margrétar Steinarsdóttur, fram- kvæmdastjóra Mannréttindaskrif- stofu Íslands. Margrét telur ástæðu til að end- urskoða fyrirkomulagið. „Ég hugsa að á sínum tíma þegar þetta var sett á hafi enginn tekið þetta heildstætt og skoðað hvort við séum að upp- fylla mannréttindaskuldbindingar,“ tekur hún fram. Samkvæmt alþjóðasamningi Sameinuðu þjóðanna um efnahags- leg, félagsleg og menningarleg rétt- indi, sem Ísland er aðili að, skuld- binda ríki sig til að gæta sérstaklega að viðkvæmum hópum og tryggja að allir geti lifað mannsæmandi lífi. „Þeir landsmenn sem ekki hafa réttindi úr lífeyrissjóðum geta ekki lifað á lífeyrinum sem þeir fá frá hinu opinbera. Skerðingin „króna á móti krónu“ dæmir svo marga til að lifa við sömu lélegu kjörin þótt þeir hafi áunnið sér einhver lífeyris- réttindi eða aflað viðbótartekna. Hvort sem um er að ræða eldra fólk eða öryrkja þurfa menn lífeyri sem þeir geta lifað af,“ leggur Margrét áherslu á. Valfrjáls bókun við fyrrgreindan samning gerir borgurum aðildar- ríkja kleift að kæra meint brot á samningnum til nefndarinnar sem starfar á grundvelli samningsins séu þeir ósáttir eftir að hafa reynt öll innlend réttarúrræði. Ekki er þó hægt að kæra meint brot til nefndarinnar hafi aðildarríki ekki fullgilt bókunina. Það hefur Ísland ekki gert. Að sögn Margrétar hafa Sameinuðu þjóðirnar mælst til þess að Ísland fullgildi bókunina. „Við höfum lagt á það brýna áherslu í fjölda ára að bókunin verði samþykkt en ekki haft erindi sem erfiði. Við munum halda því áfram,“ segir Bryndís Bjarnadóttir, herferðarstjóri Íslandsdeildar Amnesty. Finnland er eina norræna ríkið sem hefur undirritað viðaukann. Hin ríkin hafa hvorki skrifað undir né fullgilt bókunina, að því er segir í svari utanríkisráðuneytisins. Ein- göngu 45 af 193 aðildarríkjum Sam- einuðu þjóðanna hafi undirritað bókunina og 21 fullgilt hana. ibs@frettabladid.is Skertur lífeyrir jafnvel mannréttindabrot Framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands telur að endurskoða þurfi skerðinguna „króna á móti krónu“ hjá Tryggingastofnun. Finnland er eina norræna ríkið sem hefur samþykkt bókun hjá Sameinuðu þjóðunum sem færir lífeyrisþegum rétt til að kæra brot. 1 0 2 2 Fó lk sf jö ld i Sk rá ði r le ik m en n kk . o g kv k. Fó tb ol ta fé lö g Li ð í M ei st ar a- de ild í fy rr a Si gr ar á E M Ve rg la nd s- fr am le ið sl a á m an n Sæ ti á he im s- lis ta fó tb ol ta - la nd sl ið a Sæ ti á he im s- lis ta fó tb ol ta - la nd sl ið a Sk ip ti á pa lli í „ St er ka st i m að ur h ei m s“ 66.710.000 81.770.90060.674.003 11.250.585 3.063.456 10.341.330 38.626.888334.300 657.000133.00068.000443.0006.309.0001.514.0001.795.00022.000 145 20.062 16.697 26.837 2.058 1.920 2.748 5.891 1 2 3 4 0 1 0 0 0 2 1 0 6.226.180 kr. 4.612.550 kr. 3.656.615 kr. 5.019.260 kr. 4.910.300 kr. 2.854.380 kr. 2.341.105 kr. 1.529.750 kr. 34. sæti 17. sæti 12. sæti 4. sæti 2. sæti 26. sæti 8. sæti 27. sæti 16. sæti 3. sæti 18. sæti 2. sæti 26. sæti 35. sæti 40. sæti 33. sæti 17 0 82 Aldrei unnið Aldrei unnið Aldrei unnið Aldrei unnið Aldrei unnið ViðSkipti Sala á nýjum fólksbílum á fyrstu sex mánuðum ársins jókst um 38% miðað við sama tíma í fyrra. Nýskráðir fólksbílar á þessu tímabili voru 12.125 á móti 8.784 á sama tíma- bili árið 2015 sem er fjölgun um 3.341 bíl. Bílaleigur kaupa nær helming bílanna. Bílaleigubílarnir skila sér svo yfirleitt á almennan markað eftir um 15 mánuði samkvæmt upplýsingum frá Bílgreinasambandinu. Þá skili endurnýjun bílaflotans sér í að fleiri sparneytnari bílar verði á götunum sem mengi minna og auki öryggi í umferðinni. – ih Bílasala eykst um 38 prósent HAGStoFAn Aflaverðmæti íslenskra skipa nam rúmlega 15,1 milljarði í mars og dróst saman um 21 prósent samanborið við mars í fyrra þegar aflaverðmætið nam 19,2 milljörðum. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands. Þá segir að minna aflaverðmæti skýrist af minni botnfisk- og upp- sjávarafla. Verðmæti botnfiskafla nam 10,4 milljörðum í mars sem er 2,8 milljörðum minna en í mars 2015. Verðmæti uppsjávarafla dróst saman um rúm 25 prósent, nam 3,8 millj- örðum samanborið við 5,1 milljarð í mars 2015. Aflaverðmæti á 12 mánaða tíma- bili frá apríl 2015 til mars 2016 nam tæpum 143 milljörðum króna sem er 4,5 prósenta samdráttur miðað sama tímabil ári fyrr. – ngy Aflaverðmæti dregist saman Verðmæti botnfiskafla í mars var minna en í fyrra. FréttAblAðið/pjetur DAnMÖrk Danir hafa lækkað um helming fjárhagsaðstoð við þús- undir flóttamanna til að fá þá til að fara út á vinnumarkaðinn. Ráðherra innflytjendamála, Inger Støjberg, sagði við danska sjón- varpið að hefðu menn verið í Dan- mörku í fimm ár væri tímabært að þeir færu að vinna og héldu ekki áfram aðgerðarleysi á bótum. Flóttamannahjálp Danmerkur óttast að fjölskyldur með dvalarleyfi hafi ekki efni á tómstundastarfi fyrir börn sín og hefur þess vegna stofnað sjóð þeim til aðstoðar. – ibs Helminga bætur til flóttamanna 0 0 0 0 Hvort sem um er að ræða eldra fólk eða öryrkja þurfa menn lífeyri sem þeir geta lifað af. Margrét Steinars- dóttir, fram- kvæmdastjóri Mannréttindaskrif- stofu Íslands Við höfum lagt á það brýna áherslu í fjölda ára að bókunin verði samþykkt en ekki haft erindi sem erfiði. Bryndís Bjarnadótt- ir, herferðarstjóri Íslandsdeildar Amnesty 2 . j ú L Í 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r8 F r É t t i r ∙ F r É t t A B L A ð i ð 0 2 -0 7 -2 0 1 6 0 4 :1 5 F B 0 8 8 s _ P 0 8 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 8 0 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 E 4 -D 9 6 C 1 9 E 4 -D 8 3 0 1 9 E 4 -D 6 F 4 1 9 E 4 -D 5 B 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 8 8 s _ 1 _ 7 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.