Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.07.2016, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 02.07.2016, Qupperneq 16
Elstu minningar mínar af lands- leikjum í fótbolta eru af leikjum gegn Frökkum. Atli Eðvaldsson skoraði með hælspyrnu undir lokin og minnkaði muninn í 2-1 í tapi gegn Eric Cantona, Jean Pierre Papin og fleiri stjörnum á Laugar- dalsvellinum þegar ég var átta ára. Leikurinn var í undankeppni EM 1992. Galdramaðurinn Atli með mark og eins marks tap var eitthvað sem hægt var að vera nokkuð sáttur við. Í seinni leiknum í Frakklandi var Birkir Kristinsson í banastuði en það dugði ekki í 3-1 tapi. Aftur minnkaði Ísland muninn þegar ungur strákur frá Sauðárkróki skor- aði undir lokin. Eyjólfur Sverrisson átti eftir að koma aftur við sögu gegn Frökkum. Spólum nokkur ár fram í tímann þegar heimsmeistararnir mættu á Laugardalsvöll haustið 1998. Sextán ára bólugrafinn strákur mætti og fékk bolamyndir af sér með frönsku snillingunum. Einn á hótelgangin- um þegar Youri Djorkaeff og Zined- ine Zidane koma gangandi í áttina til þín, hvað gerirðu? Jú, þú biður Djorkaeff um að taka myndina af þér og Zidane. Þeir hlógu. Þeir voru ennþá hlæjandi þegar Jóhann Friðgeir kveikti í þeim með franska þjóðsöngnum. Stuðnings- menn fögnuðu hverju innkasti og fyrrnefndur Eyjólfur valdi sér góðan stað þegar markvörðurinn Fabian Barthez ætlaði í úthlaup. 1-0 fyrir Ísland og í nokkrar mínútur vorum við á toppi tilverunnar. Skipti litlu þótt Frakkar jöfnuðu. Hvert inn- kast, bolti úr leik, var eins og mark fyrir okkur og jafntefli, toppað með kossi Ingólfs Hannesson- ar á þjálfarann Guðjón Þórðar- son, var ígildi sigurs. Fyrir seinni leikinn í París, jú, Stade de France, áttum við mögu- leika á að komast í lokakeppni EM 2000. Verkefnið var metnaðar- fullt en á ótrúlegum kafla tókst okkur að jafna metin í 2-2, og enn skoraði Eyjólfur, eftir að hafa lent undir 2-0. 3-2 tap varð staðreynd en í minningunni sigruðum við Frakka, allavega næstum því. Eng- inn svekkti sig á úrslitunum, þannig séð. Frammistaðan var stórkostleg. Þetta var þá. Frakkar eru vanir því að taka gull á heimavelli, gerðu það á EM 1984 og aftur á HM 1998. Þeir eru með afar sterkt lið og þrátt fyrir aðdá- unarverða frammistöðu Íslands á enginn í Frakkaríki von á öðru en sigri á morgun. Þeir þykja líkleg- astir hjá veðbönkum til að standa uppi sem Evrópumeistarar en Íslendingar standa í veg- inum. Strákar sem hafa, ólíkt okkar fyrri lands- liðum sem hafa náð jafnteflum, „næstum því unnið“ eða stein- legið, mikla trú á að þeir geti sigrað Frakka. Lars Lagerbäck var nýtekinn við þegar við komumst í 2-0 gegn Frökkum í æfingaleik á franskri grundu 2012. Leikurinn tapaðist reyndar 3-2 en gaf vísbendingu um hvað væri í vændum undir stjórn Svíans. Við eigum frábærar minn- ingar frá Stade de France, aðeins tíu daga gamlar, þegar okkar menn tóku Austurríki. Nú mæta strák- arnir á sama stað, með enn meira sjálfstraust og klárir í að skrifa næsta kafla í EM-ævintýrið. Í Hollywood er alveg ljóst hvernig leikurinn á morgun færi. Strákarnir með sérstöku eftirnöfnin frá landi íss færast nær takmarkinu ómögu- lega og ekki gleyma „þið munuð aldrei vinna neitt“ ummælunum. Vonda liðið, með skúrkinn Rögn- vald Reginskitu, mjakar sér líka áfram í úrslitaleikinn án þess að vinna leik í venjulegum leiktíma. Við erum komin í seinni hluta ævintýrisins hjá söguhetjunum, fótboltastrákum frá Íslandi, sem þjóðin trúir að geti gert hvað sem er eftir landvinningana undanfarnar vikur. Okkar menn, stolt Íslands. http://www.seeklogo.net Dagbók Kolbeinn Tumi Daðason fylgir karlalandsliði Íslands hvert fótmál á Evrópumótinu í Frakklandi og deilir upplifun sinni með lesendum. EM2016 http://www.seeklogo.net Gregoire Fleurot blaðamaður á L‘Équipe í Frakklandi 15 Aldur: 23 | Leikir: 35 | Mörk: 5 Þjálfari Frakklands Didier Deschamps Aldur: 47 ára Hefur þjálfað franska lands- liðið frá því í júlí 2012 þegar hann tók við liðinu af Laur- ent Blanc. Franska liðið tapaði fyrir verðandi heims- meisturum Þjóðvera í átta liða úrslitum á HM 2014. Var á sínum tíma fyrirliði franska landsliðsins sem vann HM 1998 og EM 2000. Hefur bæði spilað með og þjálfað stórlið eins og Marseille og Juventus. Gestgjafar EM 2016 Frakkar tóku ekki þátt í undan- keppni EM 2016 þar sem þeir voru með öruggt sæti sem gestgjafar. Frakkar fengu keppnina úthlutaða í maí 2010 og höfðu þar betur í baráttu við Tyrkland og Ítalíu. Paul Pogba Leikir þjóðanna Frakkland 8 sigrar Ísland 0 sigrar Jafntefli 3 Markatala: Frakkland +22 (30-8) Sögumoli Það hafa verið skoruð alls tíu mörk í síðustu tveimur landsleikjum Íslands og Frakklands. Íslenska liðið hefur þannig þurft að sætta sig við tap í báðum þessum leikjum þrátt fyrir að hafa skorað fjórum sinnum hjá franska liðinu. Frakkar unnu 3-2 sigur í síðasta leik þjóðanna em var vináttulands- leikur árið 2012 þar sem Birkir Bjarnason og Kolbeinn Sigþórsson komu Íslandi í 2-0 eftir 34 mínútna leik. Mathieu Debuchy, Franck Ribéry og Adil Rami skoruðu mörk Frakka í seinni hálfleiknum. Frakkar unnu einnig 3-2 í síðasta keppnisleik (9. október 1999) sem var einnig eini leikur þjóðanna á Stade de France. Frakkar komust þá í 2-0 en Eyjólfur Sverrisson og Brynjar Björn Gunnarsson náðu að jafna í 2-2 áður en David Trezeguet tryggði Frökkum sigur. Níu mán- uðum síðar tryggði umræddur Trezeguet síðan Frökkum Evrópu- meistaratitilinn með gullmarki í úrslitaleiknum. Didier Deschamps, núverandi þjálfari Frakka, var fyrirliðim liðsins í þessum leik fyrir tæpum sautján árum. Varnarleikurinn var helsta áhyggju- efni franska liðsins fyrir mót. Bæði vegna meiðsla og manna sem voru í banni. Raphaël Varane hefur verið leiðtogi frönsku varnarinnar en meiddist í vor. Samt hefur vörn Frakklands haldið vel allt mótið en nú er stóra spurningin hvernig Samuel Umtiti gengur að leysa Adil Rami, sem er í banni, af hólmi. Umtiti hefur verið lengi í lykil- hlutverki í Lyon þrátt fyrir ungan aldur og Barcelona er nýbúið að kaupa hann fyrir háa upphæð. En hann hefur samt aldrei spilað landsleik áður og stóra spurningin er nú hvernig hann muni bregðast við þeirri pressu sem fylgir þessum leik. N’Golo Kanté er líka í banni en styrkur franska liðsins er að þeir sem koma inn eru afar góðir leik- menn. Frönsku leikmennirnir hafa sýnt íslenska liðinu virðingu og segja að velgengni Íslands hafi ekki komið þeim á óvart. Þeir virðast þekkja lið og leikmenn Íslands vel og vita hvaða hættur steðja að því. Nýliði í franska liðinu er særsta spurningin Frá jafnteflissigrum yfir í tröllatrú á hið ómögulega 2 . j ú l í 2 0 1 6 l A U G A R D A G U R16 s p o R t ∙ F R É t t A B l A ð i ð FótBolti Sigurlaun strákanna okkar fyrir að komast í 16 liða úrslit EM var leik- ur gegn Englandi. Leikur sem þjóðin var búin að bíða eftir. Ekki verður það minni viðburður þegar Ísland mætir sjálfum gestgjöfum Frakklands í átta liða úrslitum á þjóðarleikvangi þeirra, Stade de France. Franska liðinu er spáð sigri af ansi mörgum og er það vel skiljanlegt. Það er frábærlega vel mannað og að mati Heimis Hallgrímssonar, landsliðsþjálfara Íslands, með sterkasta 23 manna hópinn á mótinu. Frakkar þekkja það líka vel að vinna titla á heimavelli en þeir urðu Evrópumeistarar í Frakk- landi 1984 og heimsmeistarar fjórtán árum síðar. Frakkland er með eins góða blöndu í sínu liði og þær verða; þrautreynda leikmenn sem hafa spilað með bestu liðum Evrópu í bland við ungstirni sem eru reyndar flest hver líka að spila með risum í álfunni. Frakkar geta séð fram á velgengni næsta ára- tuginn eða svo með leikmennina sem eru að koma upp en það sem skiptir máli er að liðið er líka tilbúið til að vinna núna. Frakkar hafa spilað góðan bolta á mótinu og verið mjög sókndjarfir sem er eitthvað sem hentar strákunum okkar mjög vel svo fremi að þeir fari að byggja upp betri skyndisóknir. Þær hefur algjörlega vantað í íslenska liðið. Þrátt fyrir að spila svona sóknarsinnaðan bolta hefur liðið átt í erfiðleikum með að skora í fyrri hálfleik. En mörkin koma alltaf á end- anum. Franska liðið sækir svo stíft og hefur svo góða leikmenn til að skipta inn á að mótherjinn þreytist svakalega. Það er því engin tilviljun að liðið er alltaf að skora svona seint. Það er bara eins gott að okkar menn fá sex daga hvíld fyrir leikinn. Frakkland er lið sem skildi eftir heima framherja á borð við Alexandre Lacazette, Evrópudeildarmeistar- ann Kévin Gameiro og sjálfan Karim Benzema. Samt koma þar inn af bekknum Anthony Martial og Kingsley Coman. Breiddin fram á við er ógnvænleg. Franska liðið er miklu betra en það enska. Þetta verður erfiðasta verkefni lands- liðsins undir stjórn Lars og Heimis. Það er klárt. Frábær blanda hjá frábæru liði Heimamenn í franska landsliðinu taka á móti strákunum okkar á Stade de France á sunnudaginn en margir spá Frökkum Evrópumeistaratitlinum. Frakkar eru með marga góða leikmenn í sínu liði en fáir, þó eflaust einhverjir, myndu mót- mæla því að Paul Pogba beri af í franska liðinu. Þessi 23 ára gamli miðjumaður og fjórfaldi Ítalíumeistari er mótorinn á miðjunni hjá franska liðinu en gríðarlegar væntingar eru gerðar til hans. Franskur blaðamaður sagði við Fréttablaðið að hann væri einfaldlega með þjóðina á herðunum. Frakkar hafa mikið dálæti á Pogba en stundum ætlast þeir til of mikils af honum. Það gleymist stundum að þótt hann skori falleg mörk með bylmingsskot- um og hafi fengið viðurnefnið Pog-boom er hann ekki framherji. Þótt hann eigi frábæran leik fyrir franska liðið er hann oft gagn- rýndur fyrir að skora ekki þó að það sé ekki hans aðalhlut- verk. Hans hlutverk er að vinna boltann, koma honum í spil og taka sín víðfrægu hlaup fram völlinn og þannig þreyta mót- herjann. Pogba getur allt. Hann getur legið aftar á vellinum og dreift bolt- anum kanta á milli. Hann getur spilað framar á miðjunni og verið í barn- ingi og unnið skalla- bolta. Hann getur líka spilað enn framar og komið sér í hættuleg skotfæri. Dele Alli er afskaplega spennandi miðjumaður sem stóð sig frábærlega í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. Hann hafði þó ekkert að gera í varnar- leik strákanna okkar. Pogba, aftur á móti, er ekki að spila í sömu deild þegar kemur að hæfileikum og ungstirni Englendinga. Þetta er fullmótaður tarfur sem ætlar sér sigur á heima- velli. 0 2 -0 7 -2 0 1 6 0 4 :1 5 F B 0 8 8 s _ P 0 8 8 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 7 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 E 4 -9 9 3 C 1 9 E 4 -9 8 0 0 1 9 E 4 -9 6 C 4 1 9 E 4 -9 5 8 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 8 8 s _ 1 _ 7 _ 2 0 1 6 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.