Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.10.2015, Síða 3

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.10.2015, Síða 3
Arion banki hyggst selja 18-21% í Símanum hf. Stærð útboðsins nemur 1.737.000.000 hlutum eða 18% hlut í félaginu og nemur söluandvirði þeirra að lágmarki 4.689,9 milljónum króna. Seljandi áskilur sér rétt til að stækka útboðið í allt að 2.026.500.000 hluti (21%) og er söluandvirði þeirra að lágmarki 5.471,55 milljónir króna. Markmið seljanda er annars vegar að útboðið geri félaginu kleift að uppfylla skilyrði Nasdaq Iceland um dreifingu hlutabréfa sem tekin eru til viðskipta á Aðalmarkaði og hins vegar horfir seljandi til þess að selja eign sína á sem hagstæðustu verði. Tekið verður við áskriftum rafrænt á vef Arion banka, arionbanki.is Tvær áskriftarleiðir eða tilboðsbækur eru í boði en ákvörðun um stærð tilboðsbóka mun taka mið af eftirspurn í útboðinu, bæði hvað varðar verð og magn. Almennt útboð á hlutabréfum í Símanum Tilboðsbók A > Hver áskrift 100.000 – 10.000.000 kr. > Verðbil 2,7-3,1 kr./hlut > Eitt endanlegt verð, jafnt eða lægra en í B Tilboðsbók B > Hver áskrift yfir 10.000.000 kr. > Lágmarksverð 2,7 kr./hlut > Eitt endanlegt verð, jafnt eða hærra en í A Meginregla við úthlutun verður að taka þeim áskriftum sem berast á hæsta gengi. Gert er ráð fyrir að niðurstöður útboðs verði birtar opinberlega 8. október. Útboðið er með fyrirvara um að hlutir í félaginu verði teknir til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Slíkt samþykki birtir Nasdaq Iceland ásamt tilkynningu um fyrsta mögulega viðskiptadag með að lágmarki eins viðskiptadags fyrirvara. Eindagi kaupverðs er áætlaður 13. október og stefnt að því að viðskipti geti hafist á Aðalmarkaði 15. október. Minnt er á að fjárfesting í hlutabréfum felur í sér áhættu og að áskrift í útboðinu er bindandi Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér vel upplýsingar um félagið og skilmála útboðsins í lýsingu sem félagið hefur birt og er sérstaklega bent á kafla um áhættuþætti. Lýsinguna ásamt viðauka má nálgast á vef félagsins, siminn.is/siminn/fjarfestar, á vef Arion banka, arionbanki.is, hjá Símanum að Ármúla 25 í Reykjavík og hjá Arion banka í Borgartúni 19, Reykjavík. Nánari upplýsingar Fyrirtækjaráðgjöf fjárfestingabankasviðs Arion banka hf. hefur umsjón með útboðinu og hefur einnig ásamt Arctica Finance hf. umsjón með skráningu félagsins. Nánari upplýsingar og aðstoð vegna útboðsins má nálgast hjá söluaðilum þess, fyrirtækjaráðgjöf og markaðsviðskiptum fjárfestingabankasviðs Arion banka (arionbanki.is) ásamt Arctica Finance (arctica.is), eða hjá verðbréfa- og lífeyrisþjónustu Arion banka í síma 444-7000 og tölvupóstfangi siminn-utbod@arionbanki.is. Hefst mánudaginn 5. október kl. 10.00 og lýkur miðvikudaginn 7. október kl. 16.00

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.