Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.10.2015, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.10. 2015
Gúmmí ekki sama og gúmmí
Miðað er við að 14 kíló afdekkjakurli eða öðrugúmmíkurli þurfi til að
þekja hvern fermetra af gervigrasi
knattspyrnuvallar. Gúmmíkurlið er
sett á vellina til að þeir verði mýkri
og til að halda þráðum grassins
beinum. Gervigrasvöllur í fullri
stærð er um 8.000 fermetrar og
magnið af kurli sem þarf til að
þekja hann því í kringum 112 tonn.
Þrjár gerðir af gúmmíkurli
Gúmmíkurlið sem þekur gervigras-
velli landsins er í grófum dráttum
þrenns konar.
Í fyrsta lagi svart dekkjakurl,
sem er framleitt úr ónýtum dekkj-
um og var notað á nær alla velli þar
til fyrir um fimm árum. Þetta er
kurlið sem Læknafélagið hefur var-
að við. Það er sjaldan lagt á nýja
velli í dag, en margir vellir um land
allt eru þó enn þaktir þessu óheil-
næma og óþrifalega kurli, m.a. vell-
irnir hjá KR, Fylki, ÍR og Fram í
Safamýri. Tonnið af dekkjakurli
kostar um 90 þúsund krónur.
Í annan stað er um að ræða húð-
að dekkjakurl sem er grænt að lit.
Það var aðeins notað til skamms
tíma, en með tímanum veðrast lit-
arefnið af og eftir stendur í raun
sama svarta dekkjakurlið.
Þriðja gerðin er grátt gúmmíkurl
eða iðnaðargúmmí. Það gúmmí er
endurunnið, en ekki úr dekkjum
heldur er það unnið úr hráefni sem
til fellur við framleiðslu á þétti-
listum, þvottavélarfóðringum og
fleiru. Þetta gúmmí á ekki að inni-
halda sömu eiturefni og dekkja-
kurlið. KSÍ hefur haft það í reglu-
gerð hjá sér frá árinu 2012 að á
nýja velli skuli sett grátt gúmmí í
yfirborð valla en ekki dekkjakurl.
Tonnið af gráa gúmmíkurlinu mun
kosta um 150 þúsund krónur tonnið.
Hægt er að fá enn hreinna gúmmí-
kurl sem er ekki endurunnið en
tonnið af því kostar um 400 þúsund
krónur.
Allt gúmmíkurl sem notað er á
gervigrasvelli hér á landi er innflutt.
Ekki er því um það að ræða að bíl-
dekkin sem spóla um götur hér á
landi hafi endað líf sitt á gervigras-
völlum.
Í kjölfar umfjöllunar Sunnudags-
blaðs Morgunblaðsins 13. september
sl. hefur verið kallað eftir því úr
ýmsum áttum að svart dekkjakurl
verði fjarlægt af eldri völlum.
Að „ryksuga“ upp dekkjakurl
kallar á talsverðan kostnað og í
mörgum tilvikum borgar sig frekar
að skipta alfarið um gras og gúmmí.
Á nýrri völlum sem lagðir hafa ver-
ið á síðustu árum hefur verið valin
sú leið að bæta fjöðrun í undirlagi
gervigrassins og minnka þannig
þörfina fyrir gúmmíkurl niður í
fimm til átta kíló á hvern fermetra.
Gúmmíkurlið markaði
tímamót
Fyrsti gervigrasvöllurinn hér á
landi var vígður í Laugardal árið
1984. Hann var lagður einföldu
„teppi“ en síðar komu fram vellir
lagðir sandi sem þóttu ögn mýkri.
Farið var að nota gúmmíkurl sem
ofaníburð fyrir gervigras rétt fyrir
síðustu aldamót. Fram að því höfðu
meiðsli verið tíð og það þótti því
marka tímamót þegar farið var að
nota gúmmí enda varð það að spila
á gervigrasi fyrir vikið líkara því að
spila á alvöru grasvelli.
Ljóst er þó að það er ekki sama
gúmmí og gúmmí. Svart dekkjakurl
eykur vissulega mýkt gervigrassins
en í því eru engu að síður óheilnæm
efni. Eigi iðkendur að fá að njóta
vafans þarf að skipta kurlinu út, eða
leggja nýtt gras með hreinna
gúmmíkurli sem ógnar ekki heilsu
knattspyrnuiðkenda.
Heildsali sem flytur inn gúmmí-
kurl sagðist í samtali við blaðamann
hafa fengið í kringum fimm símtöl á
dag síðastliðnar tvær vikur frá
fulltrúum sveitarfélaga eða íþrótta-
félaga sem vilja skoða möguleika á
að skipta yfir í nýrri gervigrasvelli
eða fjarlægja dekkjakurlið.
Samkvæmt upplýsingum frá KSÍ
hefur mannvirkjanefnd sambandsins
fjallað ítarlega um notkun dekkja-
og gúmmíkurls á knattspyrnuvöllum
undanfarið og stendur til að ræða
þessi mál á stjórnarfundi KSÍ sem
haldinn verður 8. október.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
EKKI ER HLAUPIÐ AÐ ÞVÍ AÐ FJARLÆGJA DEKKJAKURL AF GERVIGRASI OG HAGKVÆMARA GETUR VERIÐ AÐ ENDURNÝJA BÆÐI GRAS OG GÚMMÍ. Á
HVERN FERMETRA AF GERVIGRASI ÞARF UM 14 KÍLÓ AF DEKKJA- EÐA GÚMMÍKURLI EÐA RÚM 8 TONN Á EINN SPARKVÖLL OG YFIR 100 TONN Á
KNATTSPYRNUVÖLL Í FULLRI STÆRÐ. NÝRRI TEGUNDIR VALLA ERU MEÐ BETRI FJÖÐRUN UNDIR GRASINU OG ÞURFA MINNA GÚMMÍ OFAN Á.
Að fara á „battó“ er vinsæl iðja skólabarna enda henta vellirnir vel til knatt-
spyrnuiðkunar. Umhverfis þá er grindverk þannig að boltinn fer síður út af.
Knattspyrnuiðkendur hjá Fylki, KR,
Fram í Safamýri og ÍR spila enn á
völlum lögðum dekkjakurli en á
öðrum völlum í borginni hefur ver-
ið skipt yfir í heilnæmara gúmmí-
kurl. Fjöldi valla á landsbyggðinni er
enn með dekkjakurl á yfirborði.
* Tillögu um að ÍTR fái fjármagn til að endurnýja gras oggúmmí á völlum sem enn eru með dekkjakurli hefur ennverið frestað hjá borginni. Ekki er ljóst hvenær úrbætur verða.ÞjóðmálEYRÚN MAGNÚSDÓTTIR
eyrun@mbl.is
Í Reykjavík eru 30 sparkvellir,
einnig nefndir battavellir eða
boltagerði, og um land allt eru
þessir vellir á þriðja hundrað.
Helmingur sparkvalla borgarinnar
er með dekkjakurl sem efsta lag.
Þetta eru þeir vellir sem lagðir
voru á árunum 2004-2009 eða í
tengslum við sparkvallaátak KSÍ.
Alls styrkti KSÍ gerð 130 slíkra
valla víða um landið á tímabilinu
og var notað dekkjakurl á þá alla.
Nýrri sparkvellir borgarinnar,
þeir sem hafa verið lagðir eða
endurnýjaðir 2010 og síðar, eru
ekki með dekkjakurli heldur með
fjaðrandi undirlagi og ekkert
gúmmíkurl er því notað til að
þekja grasið.
Tillögunni frestað á ný
Borgarfulltrúinn Kjartan Magn-
ússon hefur lagt fram tillögu um
að ÍTR fái fjárveitingu á næsta ári
til að hefja endurbætur valla
(bæði sparkvalla og gervigrasvalla
hjá íþróttafélögum í borginni)
sem eru með dekkjarkurl á yfir-
borði, og setja þess í stað viður-
kennt gæðagras og gúmmí sem
stenst ýtrustu heilbrigðis- og um-
hverfiskröfur.
Tillögunni, sem fyrst var lögð
fram þann 18. september sl., var
frestað enn á ný á fundi Íþrótta-
og tómstundaráðs sem haldinn
var í gær, föstudag. Í kjölfarið létu
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins bóka
að þeir samþykktu málsmeðferð-
ina í trausti þess að málið yrði
ekki tafið frekar og fé veitt til þess
í yfirstandandi fjárhagsáætlunar-
vinnu svo unnt verði að hefjast
handa við umræddar fram-
kvæmdir 2016. Kjartan hóf fyrst
máls á því að skipta þyrfti út
óheilnæmu dekkjakurli á gervi-
grasvöllum borgarinnar á vett-
vangi borgarinnar fyrir tveimur
árum. Enn hefur ekki verið neitt
gefið út um hvort, hvenær eða
hvernig borgin hyggst losa svarta
dekkjakurlið af eldri völlum.
Segja dekkjakurlið horfið
Þær upplýsingar fengust frá
Reykjavíkurborg að lausleg athug-
un hefði leitt í ljós að á ein-
hverjum af eldri sparkvöllum
borgarinnar væri dekkjakurlið
hverfandi eða að mestu horfið.
Þó fylgdi með að ekki hefði þó
farið fram heildarúttekt á á spark-
völlum og ástandi þeirra eða
magni dekkjakurls sem er til stað-
ar á þessum völlum, sem í öllum
tilfellum standa við grunnskóla og
eru mikið notaðir af börnum.
HELMINGUR SPARKVALLA MEÐ DEKKJAKURLI
ÚRVALSFÓLK Á KANARÍ 16.JAN– 9.FEB. 2016
Eldriborgarferð með skemmtana-
stjóranum Jóhannesi Baldurs, bróðir
Kristínar Tryggva. Gist verður á IFA
Bunaventura með hálfu fæði. 249.900 KR.
Úrval Útsýn | Hlíðasmára 19 | 201 Kópavogi | 585 4000 | uu.is
VERÐ FRÁ
24 NÆTUR