Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.10.2015, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.10.2015, Blaðsíða 51
4.10. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 51 Út er komin bókin Ljóð og líf Helgu Pálsdóttur á Grjótá. Bókaútgáfan Sæ- mundur á Selfossi gefur út. Helga Pálsdóttir (1877- 1973) var vinnukona í Fljóts- hlíðinni alla ævi, ógift og barnlaus. Lengst af var hún á bænum Grjótá og þjónaði þar sömu fjölskyldu kyn- slóðum saman, en hún var jafnframt sveitarskáld Fljóts- hlíðinga og orti þegar það þurfti fyrir munn sveitunga og vina, jafnt ljóðabréf og erfiljóð. Kveðskapur Helgu er hefð- bundinn að formi og efni og í ljóðum hennar birtist hið gamla íslenska sveitasamfélag og menning þess frá sjón- arhóli vinnukonunnar. Ljóð og líf Helgu á Grjótá Árlega stendur Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO fyrir lestrarhátíð í Reykjavík og var fyrsta hátíðin haldin í október 2012. Mark- mið hátíðarinnar er að hvetja alla til lesturs, börn og fullorðna, og auka umræðu um bók- menntir. Lestrarhátíðin í ár hefur yfirskriftina Sögur handa öllum og tengist 100 ára afmæli kosn- ingaréttar kvenna, en yfirskriftin er fengin frá samnefndu smásagnasafni Svövu Jak- obsdóttur sem kom fyrst út 2001 en er nú gefið út að nýju hjá Forlaginu í ritröðinni Ís- lensk klassík. Í Sögum handa öllum eru þrjú smásagna- söfn Svövu, Veizla undir grjótvegg (1967), Gefið hvort öðru … (1982) og Undir eldfjalli (1989), með alls 25 sögum. Svava Jakobsdóttir fæddist 4. október 1930 og hefði því orðið 85 ára í dag, en hún lést 2004. Á afmælisdaginn frumsýnir leik- hópurinn Háaloftið leikrit Svövu Lokaæfingu, í Tjarn- arbíói og á miðvikudag verður menningarmerking Bókmenntaborgar til heið- urs Svövu afhjúpuð við Al- þingishúsið. Úlfhildur Dagsdóttir bókmennta- fræðingur afhjúpar skiltið og leiðir síðan bókmennta- göngu um slóðir skáldkvenna í miðborginni. Leikrit Svövu Jakobsdóttur, Hvað er í blý- hólknum? er svo kjörgripur mánaðarins í Landsbókasafni í tilefni Lestrarhátíðar. Það var fyrsta leikrit hennar og frumsýnt í Lindarbæ 1970. Handrit verksins og fleiri handrit Svövu eru varðveitt í handritasafni Landsbókasafns Íslands og í Kvennasögusafni Íslands eru varð- veittar úrklippur og smáprent sem tengjast lífi hennar og starfi. Svövu Jakobsdóttur er minnst á lestrarhátíð Reykjavíkur Bókmenntaborgar UNESCO. SVAVA HANDA ÖLLUM Sunnudagsbíltúr heitir ljóða- safn Ásdísar Óladóttur sem kom út fyrir stuttu. Í bókinni er úrval ljóða Ásdísar frá síðustu tuttugu árum, en á þeim tíma hefur hún gefið út sjö ljóða- bækur: Birtu nætur, Haust- máltíð, Teiknað í haustloftið, Einn en ekki tveir, Margradda nætur, Mávur ekki maður og Innri rödd úr annars höfði. Bókin er gefin út til að fagna tuttugu ára höfundarafmæli Ás- dísar, en fyrsta ljóðabók henn- ar kom út 1995. Ásdís byrjaði að yrkja átján ára gömul fyrir atbeina Helgu Sigurjónsdóttur kennara síns í Menntaskólanum í Kópavogi. Hún veiktist af geðklofa um tví- tugt og átti erfitt með að yrkja um tíma, en náði síðan tökum á veikindunum sem hún hefur lýst í mörgum ljóðum sínum. Sunnudags- bíltúr Ásdísar Óladóttur Ásdís Óladóttir Morgunblaðið/Kristinn Góð uppskera af íslenskum ljóðabókum LJÓÐUM MEIRA Á HAUSTIN FALLA LAUFIN OG ÞÁ KOMA LÍKA ÚT LJÓÐABÆKUR OG ÞETTA ÁR VIRÐIST UPP- SKERAN VERÐA EINKAR GÓÐ; LJÓÐ ÚR ÝMSUM ÁTTUM SEM TAKA Á ÝMSUM MÁLEFNUM Á ÝMSA VEGU. AÐ ÞVÍ SÖGÐU ÞÁ ER ENN HÆGT AÐ KOMAST Í ÍSLENSKAR ÖRLAGASÖGUR OG NÝJAR ERLENDAR SPENNUBÆKUR. Í nótt skaltu deyja heitir spennu- saga eftir sænska lögfræðinginn og rithöfundinn Viveca Sten sem hefur skrifað margar metsölubækur í heimalandi sínu. Bókin segir frá því er skólapilturinn Marcus Nielsen finnst látinn og flest bendir til þess að hann hafi svipt sig lífi. Móðir hans er ekki á því og grátbiður lögregl- una í Nacka um að komast að hinu rétta. Ugla gefur út. Metsölubók Vivecu Sten Undir fíkjutré heitir bók eftir Önnu Láru Steindal sem segir frá Ibrahem Al Danonuy Mousa Faraj. Hann kom hingað til lands með falsað vegabréf sem flóttamaður frá Líbíu í júní 2002, en fáeinum dögum eftir komuna til landsins sótti hann um hæli sem pólitískur flóttamaður. Næstu tíu árin gat Ibrahem átt von á því á hverjum degi að vera handtekinn og sendur úr landi án frekari fyrirvara en reyndi samt að byggja upp nýtt líf. Hann fékk svo íslenskt vegabréf haustið 2012 og íslenskan rík- isborgararétt í byrjun árs 2013 og komst í sína fyrstu heimsókn á æskuslóðirnar í ára- tug. Sögur gefa út. Flóttamaður undir fíkjutré BÓKSALA 23.-29. SEPTEMBER Allar bækur Listinn er tekinn saman af Eymundsson 1 Stúlkan í trénuJussi Adler-Olsen 2 Grimmi tannlæknirinnDavid Walliams 3 Íslensk litadýrð-Colorful IcelandElsa Nielsen 4 Ljósmóðir af guðs náðKatja Kettu 5 Konan í lestinniPaula Hawkins 6 Strákurinn í kjólnumDavid Walliams 7 Leyniturninn á SkuggaskeriSigrún Eldjárn 8 Það sem ekki drepur mannDavid Lagerkrantz 9 Stórbók-Sitji guðs englarGuðrún Helgadóttir 10 Iceland Small World- lítilSigurgeir Sigurjónsson Ljóðabækur 1 Öskraðu gat á myrkriðBubbi Morthens 2 FrelsiLindaVilhjálmsdóttir 3 Tveir Elvis Prestley aðdáendurKristján Þórður Hrafnsson 4 Píslirnar hennar mömmuUrður Snædal 5 StormviðvörunKristín Svava Tómasdóttir 6 Perlur úr ljóðum ísl. kvennaSilja Aðalsteinsdóttir valdi 7 BlýengillinnÓskar Árni Óskarsson 8 Ljóðasafn VilborgarVilborg Dagbjartsdóttir 9 Vinur minn missti vitiðBjörn Stefán Guðmundsson 10 Tíst og bastEydís Blöndal Þarmar með sjarma heitir þýsk metsölubók eftir Giuliu Enders þar sem fjallað er um melt- ingarkerfið á fræðandi og forvitnilegan hátt. Bókin sló í gegn í heima- landi höfundar, enda fjallar hún um innviði okkar frá toppi til táar og um gríðarleg áhrif meltingarvegarins á líf okkar og vellíðan. Giulia Enders, sem stundar nú doktors- nám í læknisfræði við Frankfurt-háskóla, fjallar opinskátt um viðkvæmt efni af kímni og þekkingu, en myndin er skreytt teikn- ingum Jill systur hennar. Þýðandi er Rakel Fleckenstein Björns- dóttir. ÞARMAR MEÐ SJARMA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.