Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.10.2015, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.10.2015, Blaðsíða 56
SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 2015 Herferð til styrktar rannsóknum á ristilkrabbameini er hafin undir merkjum Bleiku slaufunnar. Tölur sýna að þessi tegund krabbameins dregur einn Ís- lending til dauða í viku hverri. Ristilkrabbamein er önnur algengasta dánar- orsök af völdum krabbameina á Vesturlöndum en árlega greinast að meðal- tali 135 einstaklingar með meinið hérlendis. Krabbameinsfélagið hefur sett sér það markmið að selja 40 þúsund slaufur fram til 14. október þegar slaufusölunni lýkur. Bleika slaufan kostar 2.000 krónur. Andvirði sölu Bleiku slaufunnar á að nýta í þágu þess að hafin verði skipulögð leit að ristilkrabbameini. Því fyrr sem mein finnst því meiri líkur eru á lækningu en hægt er að greina ristilkrabbamein á frumstigum með leit. Sölustaðir eru um land allt og í vefverslun á www.bleikaslaufan.is 52 lögreglumenn stilltu sér upp fyrir Ara Magg í myndatöku fyrir Bleiku slaufuna. Hugmyndin er að sýna fjöldann sem lætur lífið árlega úr ristilkrabba. Þrír aðrir hópar sátu fyrir; listamenn, starfsmenn í sjávarútvegi og reiðhjólafólk. Morgunblaðið/Þórður 52 LÁTAST Á ÁRI ÚR RISTILKRABBA Bleik slaufa fyrir bæði kynin Silfursmiðurinn Erling Jóhannesson er hönnuður Bleiku slaufunnar í ár. Sómahjónin Ólafur Þórðarson frá Kotvelli og Steinunn Sigurðar- dóttir frá Steinmóðarbæ áttu hvorki meira né minna en sextíu ára hjúskaparafmæli 4. október 1950 og af því tilefni gekk Morgun- blaðið á fund Ólafs á heimili þeirra hjóna á Baldursgötu. „Við Steinunn mín höfum verið undir sama þaki í 78 ár. Jeg kom til föður hennar, merkisbóndans Sigurðar Árnasonar að Steinmóð- arbæ undir Fjöllunum, í vinnu- mennsku, þegar jeg var 14 ára. Þá var hún 9 ára. Jeg var þar vinnu- maður í 18 ár, og fjekk hennar eft- ir þá þjónustu,“ sagði Ólafur. Þau hófu búskap á Efstu-Grund árið eftir. „Jeg var eiginlega feng- inn til þess að taka þá jörð, vegna þess að það vantaði forsöngvara í Ásólfsstaðakirkju. Jeg var altaf lagsæll og hafði, að því er kallað var, ágæta rödd. Ekkert orgel var í kirkjunni eða neitt til neins.“ Þótt Ólafur væri forsöngvari og í sóknarnefnd var menntunin eng- in. „Jeg hefi aldrei verið í neinni kennslustund, hvorki ungur nje gamall. Og þegar mjer var kennt að stafa, þá var mjer ekki kennt að nefna nema „á“, „ú“ og þar fram eftir götum, aldrei nefnt „a“ og „u“ og aldrei „j“, ekki annað en „i“ í staðinn. Jeg varð svo að grúska mig fram úr þessu. Og tókst til- tölulega ungum að verða afbragðs vel lesandi á Guðsorð.“ GAMLA FRÉTTIN Undir sama þaki í 78 ár Steinunn Sigurðardóttir og Ólafur Þórðarson giftu sig 4. október 1890. ÞRÍFARAR VIKUNNAR Nacho Monreal knattspyrnumaður Davíð Þór Viðarsson knattspyrnumaður Peter Crouch knattspyrnumaður Kíktu við og njó ttu þess að skoða úrvalið h já okkur Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is 6Borð GM 9920Fáanlegt í fleiri viðartegundum og stærðum. 5Plank borðStækkanlegt, fáanlegt í fleiri viðartegundum og stærðum. 5Tiger stólarFáanlegir í fleiri viðartegundum. Movie Star hvíldarstóll Verð frá 433.000,-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.