Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.10.2015, Page 13

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.10.2015, Page 13
in fékk nokkur Óskarsverðlaun, meðal annars fyrir tæknibrellur. „Gravity var nánast öll tölvugerð, það voru eiginlega bara andlit leik- aranna sem ekki voru gerð í tölvu af okkur. Það var alveg ótrúlega mikil vinna þar. Ég var í lykilstöðu þarna og viss ábyrgð hvíldi á mér. Til dæmis í Gravity var ég að vinna í herbergi með leikstjóranum Alfonso Cuarón í hálft ár að stýra öllum myndavélahreyfingum og öll- um hreyfingum leikarana. Þetta var áður en leikarnir mættu. Þetta var notað til að keyra vélmenni sem tók upp hreyfingar andlit- anna.“ Blaðamaður er aðeins að missa þráðinn og segir að þetta hljómi al- veg rosalega flókið. „Já, þetta var alveg rosalega flókið. Og í rauninni var allt undir. Ef það hefði klikkað að einhverju leyti, þessi að- ferðafræði, þá væri myndin ekki neitt. Ég hafði mikla ábyrgð þarna en ekki lokaábyrgð, en í Everest vorum við að gera þetta með miklu minna teymi, kannski fimmtíu manns hjá RVX, og að lokum er það ég sem tek alla ábyrgðina. Ef það hefði ekki skilað sér væri myndin ónýt,“ segir Daði. Fær ekki leið á vinnunni Ég spyr um mistök. Hann segir að engin sjáanleg mistök séu í mynd- um sem hann hefur unnið að. „Það hafa ekki verið nein æpandi mistök en ég hef aldrei setið og verið 100%. Það þarf að rífa verkefnið úr höndunum á mér til að setja það á tjaldið. Maður er að vinna við það dags daglega að stíga til baka og skoða skotin og leita að tækifærum til að betrumbæta. Og stundum er erfitt að sleppa. En við upplifum skotið öðruvísi en einhver sem er að sjá það í fyrsta skipti,“ segir hann og segist ekki hafa fengið leið á því að horfa á sama skotið þús- und sinnum. „Nei, alls ekki því maður fer bara í algeran gír. Það kemst fátt annað að en að nota all- ar mínútur til að gera það betra.“ Ekki í Hollywood-partíum Daði hefur í gegnum árin starfað með helstu kvikmyndastjörnum heimsins. Hann er alveg á jörðinni og ekki með stjörnur í augunum yfir því. Hann segist aðspurður ekki vera daglegur gestur í Holly- wood-partíum. „Nei, nei. Við erum bak við tjöldin bókstaflega á öllum sviðum og tökum mjög lítinn þátt í svoleiðis. Við erum alltaf á töku- stað en við kynnumst leikurunum mismikið. Sumum finnst gott að kynnast nýju fólki og aðrir halda sig fyrir sig,“ segir hann. Hann segist ekki eiga neina fræga vini og sé ekki að sækjast eftir því. Þúsundir ljósmynda Þegar hann vann að Everest tók hann þátt í að leita að tökustöðum og þegar kom að tökum réð hann teymi til að vera allan tíma á töku- stöðum. „Þeir voru að afla upplýs- inga og gagna og fylgja eftir plan- inu en ég var í tökum einn þriðja af tímanum. Ég fór inn og út, alltaf þegar það var nýr tökustaður fór ég þangað og var fyrstu dagana að leggja línurnar og svo bakkaði ég út til þess að geta komið hingað að halda áfram með vinnuna. Í tilfell- inu með Everest þurfti að búa til fjall, safna gögnum og þetta er Morgunblaðið/Ásdís 4.10. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13  Everest 2015  Málmhaus 2013  Gravity 2013  2 Guns 2013  Boardwalk Empire 2012  Djúpið 2012  Contraband 2012  Tinkor Tailor Soldier Spy 2011  Harry Potter og Dauða- djásnin, 2. hluti 2011  Tyrannosaur 2011  Salt 2010  Clash of the Titans 2010  Sherlock Holmes 2009  Where the Wild Things Are 2009  The Good Heart 2009  Heartless 2009  Australia 2008  The Golden Compass 2007  Harry Potter og Leyniklefinn 2002  Dinotopia (Sjónvarpssería. Þáttur 1-3) 2002. 20 STÓR VERKEFNI Glæstur ferill Daði fór á alla tökustaðina til að leggja línurnar og undirbúa en þúsundir ljósmynda þurfti til að búa til þrívíddarmynd af fjallinu Everest í tölvu. Á myndinni má sjá einn af aðalleikurunum Jason Clarke með tölvugert fjall í baksýn. 

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.