Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.10.2015, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.10.2015, Blaðsíða 21
Ljósmynd / Wikipedia - Francisco Diez (CC) Dómkirkjan er fögur bygging og einn af miðpunktum mann- lífsins í Mexíkóborg. 4.10. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21 Mexíkóborg ein og sér er ferðarinnar virði, en ef fólk leggur á annað borð á sig flug alla þessa leið er upplagt að skoða Mexíkó nánar. Um landið allt er að finna náttúruundur, sólstranda- borgir og frumskóga, en flestir ferðalangar taka stefn- una á Yucatan-skagan. Til að komast til Yucatan má t.d. fljúga frá Mexíkóborg beint á borgina Merida sem hefur á sér það orðspor að vera snyrtilegasta borg Mexíkó. Frá Merida er stutt að skoða ævaforna píramída sem Maya-indíánar byggðu. Þeir sem vilja meira fjör halda ögn austar á skagann, til Cancún. Þar snýst lífið um að flatmaga á hvítri strönd- inni, kafa í heiðbláum sjónum og drekka kynstrin öll af kokkteilum. Frá Yucatan er líka örstutt að fljúga yfir til Kúbu, ef ferðalangar skyldi vilja taka hús á Castró-bræðrum, fá sér smá romm, nokkra vindla og dansa mambó niðri á ströndinni. FARIÐ ÚT FYRIR BORGINA Soumaya-safnið er fallegt dæmi um nútímabyggingarlist. Ljósmynd / Wikipedia - Fran001 (CC) Það þykir svo algengt að ferðalangar til Mexíkó fái niðurgang að gárungarnir tóku upp á að kalla fyrirbærið „hefnd Montez- uma“. Vísar heitið til Montezuma II sem var leiðtogi Asteka á 16. öld þegar Hernán Cortés lagði svæðið undir sig í nafni spænsku krúnunnar. Erfitt getur verið að komast alfarið hjá magakveisunni en nokkrar einfaldar reglur draga úr líkunum á að þurfa að vera límdur við klósettskálina í fleiri daga. Fyrir það fyrsta ætti að forðast krana- vatnið, og helst ekki einu sinni bursta tennurnar með því. Þetta þýðir að sneiða ætti hjá því að fá klaka í drykkinn, því klak- arnir eru mögulega gerðir úr vatni sem kemur beint úr krananum. Fara ætti var- lega þegar grænmeti og ávextir eru borð- uð, meðal annars vegna þess að þau kunna að hafa verið hreinsuð upp úr kranavatni. Til öryggis er vissara að hafa meðferðis góðar pillur til að slá á magaveikina, og taka í samræmi við leiðbein- ingar lyfjafræðings eða læknis ef einkenni byrja að koma í ljós. Í fæstum tilvikum er niðurgangurinn svo alvarlegur að það þurfi að trufla ferðalagið, en vissara er að taka það rólega á meðan verstu einkennin líða hjá. Þegar ræpan gerir vart við sig er líka mælt með að sneiða hjá trefjaríkum mat og gæta þess að innbyrða nóg af vökva og söltum til að forðast ofþornun. Ekki ætti að hika við að leita til læknis ef einkennin verða mjög kröftug, enda getur alvarleg magaveiki verið hættuleg og jafnvel banvæn. Eitt sem ferðalangar ættu ekki að gera er að hræð- ast mexíkóskan mat. Hluti af upplifuninni af landinu er einmitt að gæða sér á ljúffengum götumatnum og ávöxtunum sem finna má til sölu nánast á hverju götu- horni. Það væri synd að bragða aldrei ekta taco eða gordítu af ótta við nokkrar hressilegar ferðir á sal- ernið. Hærra en tindur Hvannadalshnjúks Ef Montezuma ákveður að hrella ekki íslensku melting- arfærin þurfa gestir í Mexíkóborg líka að muna að borgin er í rösklega tveggja kílómetra hæð yfir sjávar- máli. Þessi mikla hæð hefur lýjandi áhrif á líkamann og ekki óvenjulegt að finna fyrir því strax við komu á flug- vellinum að kroppurinn virðist ekki jafn orkumikill og venjulega og erfiðara að draga töskurnar eftir löngum göngunum. Er því gott að fara hægt í sakirnar fyrstu tvo eða þrjá dagana á meðan líkaminn aðlagast. PASSAÐ UPP Á MALLANN: HEFND MONTEZUMA Ævintýri í Marokkó Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000 Akureyri • Sími 461 1099 www.heimsferdir.is B irt m eð fy rir va ra um p re nt vi llu r. H ei m sf er ð ir ás ki lja sé r ré tt til le ið ré tt in g a á sl ík u. A th .a ð ve rð g et ur b re ys t án fy rir va ra . E N N E M M / S IA • N M 7 11 9 6 26. okt í 10 nætur Einstök 10 nátta sérferð þar sem farþegum gefst tækifæri til að skyggnast inn í nýjan og framandi heim. Það er sérstök upplifun að koma til Marokkó, ekki einungis í sögulegum skilningi heldur einnig að kynnast landi og þjóð örlítið nánar. Í ferðinni er dvalið í litlum heillandibæjumtil sjávarogsveita svoogstærriborgum á borð við Marrakech og Agadir. Ekið er um stærstu pálmalundi í Norður-Afríku, ilmandi ávaxtahéruð og hin hrikalegu Atlasfjöll. Þá er haldið í úlfaldareið út í Sahara eyðimörkina þar sem gist er eina nótt í Berba- tjaldi. Ferðalagið hefur því yfirbragð hins ókunna en er jafnframt töfrum þrungið og ógleymanlegt. Agadir – Taroudant – Zagora – Tamegroute Sahara eyðimörkin – Chigaga – Quarzazate Marrakech – Essaouira – Agadir Frá kr. 239.900 Netverð á mann m.v. 2 í herbergi frá kr. 239.900. Innifalið: Flug með Primera Air til og frá Agadir, skattar, gisting á 3+*- 4* hótelum í 10 nætur með morgunverðarhlaðborði, 4 hádegisverðir og 8 kvöld- verðir. Akstur og kynnisferðir samkvæmt ferðalýsingu. Úlfaldareið í Sahara eyði- mörkinni. Íslensk fararstjórn miðað við lágmarksþátttöku eða 20 manns.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.