Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.10.2015, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.10.2015, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.10. 2015 Fjölskyldan Að lesa fyrir börn eflir málþroska, virkjar ímyndunarafl, eykurorðaforða og sjálfstæða hugsun. Einnig styrkir það tengsl milli for- eldra og barna og oft geta skapast umræður eftir lesturinn. Þannig er hægt að efla börn til að tjá sig og læra að setja sig í spor annarra. Að lesa fyrir börnin Snertiskjáir eru barnvænir og yngstu börnin læra fljótt á snjalltækin. Getty Images/Fuse Það eiga ekki allir leikjatölvu ená flestum heimilum hérlendiser til snjallsími eða spjald- tölva. Leikir fyrir leikjatölvur eru líka dýrir á meðan það er hægt að fá marga leiki í snjallgræjurnar ókeypis eða ódýra. Leikirnir sem eru hér taldir upp eru flestir fyrir spjaldtölvur þó einhverja sé líka hægt að spila á síma. Hægt er að fá ókeypis útgáfur af mörgum þeirra en oft getur borgað sig að kaupa leik til að sleppa við auglýsingar sem skapa óþarfa áreiti fyrir börnin. Mikið er til af skemmtilegum leikjum en margir eru næstum of spennandi fyrir yngstu börnin. Kappakstur er til að mynda skemmtilegur og líka hlaupaleikir sem virka vel á spjaldtölvum en þessum flokki leikja hefur verið sleppt í þessari upptalningu. Hér er verið að benda á leiki sem miðast við þrautalausnir eða að það sé hægt að æfa sig að lesa eða reikna. Hrað- inn er ekki eins mikill í þessum leikjum heldur er hægt að taka því rólega við skjáinn og glíma við skemmtilegar þrautir af ýmsum toga. Leikirnir sem hér eru taldir upp eru flestir heppilegir fyrir leik- skólabörn og yngstu bekki grunn- skóla. Að minnsta kosti er ljóst að börn vilja spila leiki og þá er ekki verra að hafa nokkra leiki sem bæði fræða og skemmta í einu til taks. Foreldrar og forráðamenn þurfa síðan að eiga það við sig hversu mikinn tíma fyrir framan skjáinn börnin fá en þau hafa ekki þroska til að meta það sjálf. Því þarf að leið- beina þeim og þá þýðir ekkert annað en að standa fast á sínu. BARNVÆNIR OG ÞROSKANDI ÞRAUTALEIKIR Leikum og lærum á spjaldtölvur BÖRN HAFA GAMAN AF TÖLVULEIKJUM OG SÆKJA Í AÐ SPILA ÞÁ, EKKI SÍST Á SPJALDTÖLVUM OG SÍMUM. HÉR ERU TALDIR UPP SEX SKEMMTILEGIR OG ÞROSKANDI LEIKIR FYRIR BÖRN SEM STYTTA ÞEIM STUNDIR OG KENNA Í LEIÐINNI. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Appið Lærum og leikum með hjóðin er mikill happafengur fyrir fjölskyldur. Unnið er með hljóð ís- lensku bókstafanna og er þetta góður undirbúningur fyrir lestrar- ferlið. Aðferðirnar virka en þær eru byggðar á áratuga reynslu tal- meinafræðingsins Bryndísar Guð- mundsdóttur í faginu. Þetta er góð viðbót við hefðbundna lestrar- kennslu fyrir börn á lokaárum leikskóla og í upphafi grunnskóla. Líka er forritið tilvalið til notk- unar fyrir fjölskyldur af erlendum uppruna til að æfa og læra íslensku hljóðin. Smáforritið tekur mið af því í hvaða röð íslensk börn tileinka sér talhljóðin í máltökunni og hvernig auðveldast er að kenna hljóðin. Byrja má skipulega á auðveldari hljóðum sem koma fyrir hjá mjög ungum börnum og halda áfram yfir í þau hljóð sem erfiðara er að segja eða velja það hljóð sem æfa þarf sérstaklega hverju sinni. Ekki spillir fyrir að börnum þyk- ir þetta skemmtilegur leikur. LÆRUM OG LEIKUM MEÐ HLJÓÐIN Lært í gegnum leik Það er vart til skemm- tilegra app fyrir allra yngstu spjaldtölvunot- endurna en talandi kötturinn Tommi. Tommi endurtekur það sem notandinn segir við hann sem ungum börnum finnst sérstaklega fyndið. Líka bregst hann við ýmiss konar áreiti en hann er ánægður þeg- ar honum er strokið en eins og gefur að skilja síður glaður með þegar potað er í hann. Önnur útgáfa leiksins er endurbætt en líka eru til svipuð forrit þar sem hægt er að spjalla við önnur dýr, til dæmis hund ef viðkomandi er frekar fyrir hunda. TALKING TOM CAT 2 Spjallað við kött Þrautalausnaleikurinn Where’s My Water er sérstaklega skemmti- legur og óhætt að mæla með fyrir börn og fullorðna. Það getur verið gaman að glíma við þrautina með börnunum en tilgangurinn er að fylla baðkarið hjá krókódílnum Swampy og safna öndum í leiðinni. Vatnið þarf að ná til Swampy án þess að verða mengað af eitri eða slími sem getur hindrað leiðina. Lagnakerfið getur verið flókið og er nauðsynlegt að beita lögmálum eðlisfræðinnar til að leysa þrautina. Aðdáendum Finnboga og Felix má benda á svipaðan leik sem heitir Where’s My Perry? en þá er Pési breiðnefur í aðalhlutverki. WHERE’S MY WATER? Krókódíll sem þarf að baða sig Þetta er einfaldur en skemmtilegur leikur með gamaldags útliti sem á að láta líta út fyr- ir að verið sé að leika með viðarkubba. Þetta er þrautaleikur en tak- markið er að koma rauða kubbnum í gegn. Til þess þarf að færa aðra kubba annaðhvort upp eða niður. Boðið er upp á fjögur mismunandi erfið- leikastig til að allir finni áskorun við hæfi. Hægt er að fá leikinn ókeypis en líka er hægt að kaupa ábendingar ef spilarinn er al- veg strand á einhverju borði. UNBLOCK ME Viðarkubbar í tölvuheimi FRUIT NINJA ACADEMY: MATH MASTER Flestir sem hafa einhvern tímann notað spjaldtölvu þekkja leikinn Fruit Ninja, þar sem tilgangurinn er að skera ávexti í tvennt áður en þeir lenda á jörðinni. Leikurinn kom út árið 2010 og var hlaðið niður 300 milljón sinnum á fyrstu tveimur árunum. Halfbrick, fram- leiðandi þessa leiks, er nú kominn með nýjan leik af svipuðum toga sem er líka gerður til að æfa stærð- fræði. Leikurinn er ætlaður fimm til sjö ára börnum. Af því að hann er ætlaður börnum kostar leikurinn en á móti er ekki rukkað fyrir neitt innan leiksins. Framleiðandinn lofar líka að engum upplýsingum sé safn- að um hvernig börnin nota leikinn og hann er auglýsingalaus. Stærðfræði í ávaxtaleik CUT THE ROPE Cut the Rope er mjög skemmtilegur leikur fyrir spjaldtölvu. Til- gangurinn er að gefa litla græna dýrinu, Om Nom, nammi og um leið leysa þraut. Fyrsti leikurinn kom út árið 2010 en til eru ýmsar gerðir en sam- tals hefur þeim verið hlaðið niður meira en 600 milljón sinnum. Þetta er leikur sem er skemmtilegt að glíma við og notandinn þarf að tileinka sér ákveðin lögmál eðlisfræðinnar til að geta leyst þrautina en það slepp- ur enginn undan þyngdaraflinu. Leikur að þyngdarafli
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.