Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.10.2015, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.10.2015, Blaðsíða 44
Þ að var einn bjartan sumardag þegar ég var um tvítugt að ég mætti á Hverfisgötu 113 til að fara á grunnnámskeið fyrir sumarafleysingalögregluþjóna. Ég var þá í framhaldsnámi og hafði heyrt frá mági mínum sögur af ævintýrum er hann hafði lent í sumarið áður. Fiskvinnsla á sumrin kom ekki lengur til greina hjá mér, þetta skyldi verða sumarið þegar ég yrði að manni. Ég var sendur á fyrsta degi niður í Últíma og látinn máta matr- ósargalla og höfuðstærðin mæld (60 cm) og húfa pöntuð frá P. Eyfeld. Eftir vikulestur af speki eldri lögreglumanna um það hvað ætti, mætti og mætti ekki þá fór maður í fyrstu gönguferðina niður Laugaveginn, feiminn og fannst sem allir væru að horfa á þennan nýgræðingsslána. Þar sem ég var staddur nálægt Liverpool heyrði ég köll og blístur og sá þá stelpnahóp hinum megin götunnar og gerði mér grein fyrir því að þetta væri ætlað mér þar sem ég gekk ákveðnum en hægum skrefum (eins og mér hafði verið kennt). Ég þóttist ekkert sjá eða heyra og horfði stíft á leikföngin í glugganum og gekk á stöðumæli. Næstu helgi í Hollywood mætti ég svo þessum sömu dömum, nú með blásið hár og kinna- lit og fékk dans í sárabætur. Sjálfsvíg í návígi Svo var mér kippt niður á jörðina og inn i raunveruleika sorgar og missis. Við vorum þrír sendir í sjálfsvíg. Ungur maður, sem ég hafði rætt við örfáum dögum áður, hafði hengt sig. Návígi við sjálfsvíg er svo allt öðruvísi og grimmara en það sem fólk sér í krimmaþáttum á skjánum. Raunveru- leg snerting við dauðann, að sjá hann svo nærri sér, að sjá og heyra sorgina, geta ekki komist út úr aðstæðunum, geta ekki slökkt á sjónvarpinu, geta ekkert gert, það er allt annað og erfiðara fyrir óharðnaðan unglingsstrák með strípur og óljósa karl- mennskudrauma. Ljúf myndin af dansinum á ljósagólfinu var horfin og grátt þrútið og afmyndað andlit komið í staðinn. Félagi minn til margra ára deildi eitt sinn með mér aukavakt. Hún var tíðinda- lítil framan af nóttu og við ókum um aust- urborgina (þetta var á þeim tíma þegar eknir km voru ekki mældir og takmarkaðir vegna fjárskorts). Hann fór að rifja upp mál sem við höfðum áður lent í og mér til hrellingar þá uppgötvaði ég að ég mundi ekki eftir málum sem hefðu átt að vera mér ljós í minni, alvarlegum málum. Var ég farinn að tapa minni, var ég að verða seníll fyrir fertugt? Ég fékk skýringuna frá fagaðila mörgum árum síðar; sem sagt heilinn í mér gerði einungis það sem hann gat til að vernda mig gegn yfirflæði af erf- iðum minningum. Þarna hafði ég starfað á götunni í um 15 ár og fjöldinn af sjálfs- vígum, dauðsföllum, nauðgunum, brotum gegn börnum, slysum og öðru svo ljótu að það á ekki heima á prenti var einfaldlega þá þegar orðinn of mikill. Síðan eru liðin önnur 15 ár og það var ekki fyrr en fyrir um þremur árum, eftir erfiðari reynslu en ég höndlaði einn og með fjölskyldunni (eða var ég kannski orðinn veikari fyrir), að ég leitaði til sálfræðings og það var sem opn- að væri fyrir krana af minningum og ég steig aðeins léttari út. En það er aðeins ákveðið mikið sem sálfræðingur getur gert og það er aðeins ákveðið mikið sem fjöl- skyldan getur tekið við, fjölskyldan sem oft gleymist í umræðunni um störf lögreglu- manna. Skíturinn situr að mestu eftir. Allt það ljóta kom fram á eftirlaunaaldri Ég ræddi við fyrrverandi félaga minn í lögreglunni fyrir skemmstu og mér brá að- eins við er ég fékk svarið við spurningunni hvort það væri ekki ljúft að vera kominn á eftirlaun. Hann leit á mig hugsi og svaraði svo eftir nokkurt hik, „Nei“. Hann saknaði félaganna, hann saknaði þess að vera ekki lengur hlekkur í þessari einingu, hann væri ekki lengur gildur þjóðfélagsþegn og væri ekki að gera neinum gagn. En það versta er, sagði hann, að draugarnir koma núna þegar ég hef tíma til að hugsa. Allt það ljóta sem ég sá, öll hræðslan sem ég af- neitaði þá og allur vanmátturinn, hann kemur núna og lætur mig ekki í friði. Þetta er helst á nóttinni og ég hef ekki lengur konuna til að leita til og deila með þessum hroða. Ég var spurður af nemendum mínum á fyrstu dögum þeirra í Lögregluskólanum hvað væri það erfiðasta sem ég hefði upp- lifað. Þau vildu heyra reynslusögur frá gamlingjanum og auðvitað fá smápásu frá leiðinlegum upplestri af glærunum. Ég stóð mig að því að þurfa að velta þessu fyrir mér, hafði ekki gert það áður. Ég komst svo að því og sagði þeim eins og var. Það eru ekki öll ljótu dauðsföllin, lyktin af rotnun, allt blóðið, afmyndaðir líkamar, öskrin og átökin. Jú málin þar sem börn og konur sem hafa þurft að þola ofbeldi, jafnvel til margra ára, kynferðislegt, and- legt og líkamlegt, vanrækslu og kúgun, þetta er engum manni hollt til langs tíma. Það er ekkert sem er erfiðara en einmitt þetta. Og ef þið bara vissuð hvað þetta er víða og að þetta er allt í kringum ykkur. Þið sjáið þetta ekki, lögreglumenn sjá þetta. Í þau fáu skipti þar sem maður nær að vinna gagn þá er það jú gefandi en eft- ir situr, jafnvel þá, eilítið sár á sálinni sem svo bara stækkar með tímanum. Í bókinni BlackElkSpeaks segir sögumaður frá því hvernig hjartað í manninum virkar; í hjart- anu er steinn með hvassar eggjar og við hverja sorg og við hverja erfiða reynslu þá snýst hann einn hring og særir hjartað að innan. Þetta er svolítið þannig. Erfitt að tala um hræðsluna En svarið við spurningunni sem kom mér á óvart var að það voru öll málin þar sem ég fann til vanmáttar og hræðslu, þar sem ég fann engar leiðir til að leysa úr málum og þar sem ég óttaðist um líf mitt og þeirra sem stóðu mér við hlið, það voru málin sem sátu helst eftir og voru ekki síður erfið. Það sem gerði þetta enn grimmara var að það var, og er jafnvel enn, ekki ásættanlegt að lögreglumenn finni til vanmáttar og hræðslu á vettvangi, enn síður að þeir sýni það og allra síst að þeir tali um það. Ég sá að þau skildu þetta fæst þá en ég óttast að þau skilji þetta öll í dag, tveimur árum síðar. Það sem gerir mig nokkuð vissan um einmitt þetta er sú staðreynd að í dag er búið að skera svo inn að merg og beini að eftir standa allt of fáir misharðnaðir ein- staklingar hverja vakt. Þegar ég hóf störf í almennri deild löggæslu töldum við, í Reykjavík einni, á fjórða tug lögreglu- manna á hverri vakt á aðalstöðinni og út- hverfastöðvum, vaktsvæðið taldi um níutíu þúsundir. Í dag er þessi fjöldi á höf- uðborgarsvæðinu öllu, allt frá Hvalfjarð- arbotni að varðsvæði Suðurnesja, um 20 á hverri vakt en þetta varðsvæði telur tvö- faldan fjölda. Um tvöfalt fleiri ökutæki eru í umferð. Það sem var ekki þá en er nú, er bæði útbreidd neysla harðra fíkniefna og öll þau ljótu mál er tengjast þeim. Á níunda áratugnum, voru dópgrenin örfá og helst í miðborginni. Þar var að finna hass- mola og pípu og húsráðendur í fæstum til- fellum að gera nokkrum mein. Nú skipta grenin, og þá þar með talin „heimili“, hundruðum og eru dreifð um allt og ekk- ert hverfi undanskilið. Eymdin er oft ólýs- anleg og allt of oft börn fórnarlömbin, þá á ég bæði við börn foreldra sem eru í neyslu sem og barnunga neytendur. Of- beldið í dag er meira, það er grimmara. Hér áður þekkti hver lögreglumaður þessa fáu virku brotamenn með nafni og þeir okkur með nafni, þeir voru fæstir mikil ógn við okkur og í þeim tilfellum þegar okkur var ógnað, eða á okkur ráðist, höfð- um við mannaflann til að bregðast við, oft- ast. Reynslulítil en þurfa að taka skjótar ákvarðanir Ég segi hér að ofan misharðnaðir. Það sem ég á við er að í dag verða lög- reglumenn sem hafa eins til tveggja ára reynslu á götunni að bregðast við sem stjórnendur á vettvangi. Þeir þurfa að taka skjótar og erfiðar ákvarðanir sem geta varðað líf fólks, mikla hagsmuni þess og öryggi á sekúndum. Þeir þurfa að vaða inn í aðstæður vitandi að þeir eru að setja sig í raunverulega hættu, vitandi að það er enga aðstoð að fá ef illa fer. Þeir vita einnig að þessar ákvarðanir og gjörðir þeirra geta svo farið alla leið inn í dómsali þar sem lærðir menn og konur takast á um það hvort aðgerðir lögreglunnar hafi verið réttmætar eða ekki. Á meðan bíður lögreglumaðurinn og hugsar: var ég að gera rétt, vann ég skaða með ákvörðun minni, hefði verið hægt að bjarga, held ég starfinu mínu? Það er óttinn og óvissan í útkallinu, yfirþyrmandi aðstæður sem þú veist ekki hvort þú ráðir við og svo allt sem á eftir kemur og situr í þér í mörg ár eða dúkkar upp þegar þú situr á mögr- um lífeyri í bakgarðinum, ef þér hefur auðnast að eignast slíkan, sem er það erf- iðasta. Of mikil ábyrgð á of fáum herðum Skaðinn sem þetta getur valdið lögreglu- manni er að – jafnvel eftir eitt erfitt mál sem var honum ofviða – það verði til þess að hann brenni út. Hann getur flosnað upp úr starfi. Starfi sem hann dreymdi um að sinna, starfi sem hann ætlaði að gera að ævistarfi. Við það að lenda endurtekið í viðlíka málum getur þú verið nokkuð viss um að jafnvel hörðustu naglar bogna, fara að finna til kvíða og streitu. Naglinn þrjóskast áfram og kvíðinn verður að hræðslu og streitan verður líkamleg og sviptir þig svefni og framundan er enn önnur vakt. Metnaðarfullum, hæfileikaríkum Bognir naglar og brenndar sálir BJARNI ÓLAFUR MAGNÚSSON HEFUR VERIÐ LÖGREGLUMAÐUR Í RÚMA ÞRJÁ ÁRATUGI. HANN LÝSIR HÉR FYRIR LESENDUM STARFINU OG ÁLAGINU SEM ÞVÍ FYLGIR. Lögreglustarfið 44 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.10. 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.