Morgunblaðið - 12.10.2015, Page 2

Morgunblaðið - 12.10.2015, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 2015 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. leðurblaka í fyrra í skipi sem kom frá Rotterdam í Hollandi. Ævar sagði að leðurblökur sem fundist hefðu á eyjum Norðaustur- Atlantshafs væru aðallega skor- dýraætur. Í hitabeltinu eru stórar leðurblökur, svonefndir flughundar, sem eru fyrst og fremst ávaxtaætur. Tiltölulega fáar tegundir eru blóð- sugur. Þær er aðallega að finna í Suður-Ameríku. Engar líkur eru á að villtar leðurblökur þrífist hér. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Þrír laumufarþegar tóku sér far með dönsku skipi sem kom frá Belgíu til Siglufjarðar síðdegis á fimmtudag- inn var. Um var að ræða litlar leður- blökur sem höfðu falið sig í farmi skipsins. Verkamenn sem unnu við uppskipunina sáu dýrin. Eitt þeirra og það minnsta forðaði sér frá borði og flaug eitthvað út í buskann. Hin tvö voru gómuð og sett í kassa. Séra Sigurður Ægisson, sóknar- prestur, þjóðfræðingur og áhuga- maður um náttúrufræði, tók leður- blökurnar í sína vörslu. Hann fór með þær á skrifstofu sína og tók af þeim meðfylgjandi myndir. Leður- blökurnar höfðu hægt um sig og leyfðu prestinum að mynda sig með íslenskum tíkalli. Þegar hann sneri við þeim bakinu tóku þær hins vegar flugið. Önnur settist á loftnetssnúru og vafði hana örmum. Hin hvarf um stund. Sigurður sá hana svo þar sem hún var að gaumgæfa geistleg rit í bókahillu prestsins. Leðurblökunum var ekið til Akur- eyrar og þær sendar með flugi til Náttúrufræðistofnunar Íslands. Þar voru dýrin svæfð og verða þau send til útlanda, ásamt leðurblöku sem fannst í skipi á Reyðarfirði í fyrra, til greiningar hjá sérfræðingum. Erfið tegundagreining Ævar Petersen sagði ekki hægt að tegundagreina leðurblökur eftir ljósmyndum. Hann sagði að skoða þyrfti m.a. skolta dýranna til að teg- undagreina þau. „Ég hef sent leðurblökur til Lond- on til greiningar til að hafa þetta al- veg á hreinu. Það eru svo margar tegundir sem eru nauðalíkar. Ég hef spurt leðurblökusérfræðinga hvort það sé nóg að hafa myndir af þeim og myndir af gininu á þeim, en þeir treysta sér ekki til að greina eftir því,“ sagði Ævar. Hann benti á að dæmi væru um að komið hefðu leðurblökur af fleiri en einni tegund samtímis. „Ég man að einu sinni komu sex leðurblökur saman í skipi í Sundahöfn sem var að koma frá Bandaríkjunum. Tvær náðust til greiningar og voru hvor af sinni tegundinni,“ sagði Ævar. Leðurblökur hafa aðallega fundist í höfnum við Faxaflóa. Einnig hafa þær borist m.a. til Vestmannaeyja. Siglufjörður er nýr fundarstaður og eins Reyðarfjörður en þar fannst Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Leðurblökur fundust á Siglufirði  Földu sig í farmi flutningaskips sem kom frá Belgíu  Tvær náðust og voru svæfðar  Sú þriðja og minnsta flaug eitthvað út í buskann  Dýrin verða send til útlanda til tegundagreiningar Leðurblökur Dýrin voru lítil eins og sjá má af samanburði við tíkallinn. Annað flaug og settist á loftnetskapal. Ævar Pet- ersen dýra- fræðingur hefur skrifað talsvert um leðurblökur sem fundist hafa hér á landi. Grein eftir Ævar og fleiri vísindamenn, um leð- urblökur sem fundust á eyj- um í Norðaustur-Atlantshafi og á olíuborpöllum, birtist í fyrra í vísindariti um leður- blökur, Acta Chiroptero- logica. Þar kom m.a. fram að til loka ársins 2012 höfðu fundist hér á landi 38 leður- blökur sem vitað var um og voru 18 þeirra af óþekktri tegund en hinar höfðu verið greindar til átta tegunda. Einnig eru greinar um leð- urblökur í bókinni Villt ís- lensk spendýr (1993) og í Náttúrufræðingnum 1994 en hann má lesa á vefnum tima- rit.is. FJÓRIR TUGIR LEÐURBLAKNA Ævar Petersen Leðurblökur á Íslandi Miklar framkvæmdir standa nú yfir á Rauðarárholtinu. Á föstudag voru menn í byggingarvinnu við nýtt hús sem er að rísa á reitnum á milli Ein- holts og Þverholts. Mikið er nú byggt í næsta nágrenni við Hlemmtorg. Mikið byggt í gamalgrónum hverfum Reykjavíkur Morgunblaðið/Eggert Ný hús á Rauðarárholti FRÉTTASKÝRING Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Áður en slitnaði upp úr viðræðum Salek-hópsins svokallaða í nýliðinni viku hafði forystumönnum stærstu heildarsamtaka launafólks, ASÍ, BHM, BSRB og KÍ, Samtaka at- vinnulífsins og ríkis og sveitarfélaga, tekist að setja saman leið um sam- ræmda launaþróun á öllum vinnu- markaðinum, sem reynt yrði að ná innan næstu þriggja ára. Samhliða átti að móta nýtt samningalíkan að norrænni fyrirmynd með agaðri vinnubrögðum við gerð kjarasamn- inga. Launaskriðstrygging Meginmarkmiðið var að draga sem kostur er úr afleiðingum þess að nú stefnir að óbreyttu í enn meira mis- ræmi á milli launaþróunar opinberra starfsmanna og almenna vinnumark- aðarins í kjölfar gerðardóms og hækkana einstakra hópa að undan- förnu. Stöðva verði höfrungahlaupið á milli hópa launþega. Þá var við- semjendum ljóst að næðist ekki sam- komulag gæti ekkert komið í veg fyr- ir uppsögn kjarasamninga ASÍ-félaganna í febrúar. Innan tíðar yrði verðbólgan komin í tveggja stafa tölu. Mikil vinna fór fram með hagfræð- ingum, þar sem dregnar voru upp sviðsmyndir yfir launaþróun og lík- leg áhrif á verðbólgu, vexti og gengi, sem ekki var ágreiningur um innan hópsins. Launaþróun hjá hinu opin- bera hefur þróast langt umfram launahækkanir á almenna markaðin- um. Skv. heimildum Morgunblaðsins var ákveðið að nota hækkanirnar sem BHM fékk með gerðardómi sem við- mið í mögulegu samkomulagi, þannig að hækkun launakostnaðar launþega í þessum fernum heildarsamtökum launafólks verði orðin sambærileg undir lok árs 2018 og hækki hjá öllum hópunum um 32% frá nóvember 2013 til nóvember 2018. Hækkanir yrðu þá 6,4% á þessu ári og 7% á næsta ári, 5% á árinu 2017 og 4,2% á árinu 2018. Ná átti þessu markmiði með gagn- kvæmri skuldbindingu allra í hópn- um og var veigamikill hluti þess að samkomulag næðist um jöfnun lífeyr- isréttinda á milli almenna og opin- bera markaðarins. Aukin framlög til lífeyrismála yrðu því tekin með í út- reikningum á umsömdum launa- kostnaði hópanna. Launaþróun launafólks í ASÍ, skv. samningunum frá í vor, er nokkru undir þessu við- miði um 32% hækkun launakostnað- ar á tímabilinu og var reiknað með að framlag launagreiðenda í lífeyrissjóði þess mundi hækka í áföngum um 3,5% með jöfnun lífeyrisréttindanna. Auk þessa er reiknað með nokkru launaskriði á næstu þremur árum þannig að ASÍ-félögin hafi náð þessu marki um 32% hækkun við lok tíma- bilsins. Opinberir starfsmenn sem ekki njóta launaskriðs myndu þá fá greidda svokallaða launaskriðs- tryggingu í lok hvers árs þegar séð yrði hvaða launaskrið hefur átt sér stað á almenna markaðinum. Þegar gerðardómur kvað upp sinn úrskurð í ágúst áttu ¾ hlutar opin- berra starfsmanna ósamið. Gert var ráð fyrir því í Salek-hópnum að allir þeir sem eiga ósamið fengju sam- bærilegar hækkanir og BHM-félögin fengu með úrskurði gerðardóms en myndu skuldbinda sig til að fylgja þessari stefnumörkun í kjarasamn- ingum, þannig að þegar upp verður staðið í árslok 2018 hafi umsaminn launakostnaður þeirra ekki hækkað meira en 32% frá upphafi til loka við- miðunartímabilsins, þ.e. frá nóvem- ber 2013. Viðræðurnar sigldu hins vegar í strand vegna lífeyrismála þar sem fulltrúar opinberu félaganna gátu ekki fallist á að taka kostnað vegna þeirra inn í viðræður um launasamninga skv. heimildum blaðsins. Innan Salek-hópsins binda menn þó enn vonir við að umræður innan hópsins verði teknar upp að nýju fyrr en síðar. Launakostnaður allra hækki um 32%  Útfærðu leið fyrir alla hópa en strönduðu á lífeyrismálinu Morgunblaðið/Golli Fundahöldin Viðræðurnar fóru fram í húsnæði Ríkissáttasemjara.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.