Morgunblaðið - 12.10.2015, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 12.10.2015, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 2015 Gæðasmíði og framúrskarandi þjónusta alla leið inn á þitt heimili Eldhúsinnréttingar GÆ ÐI– KUNNÁTTA – SVEIGJANLEIKI Funahöfða 19 | sími 577 1600 | gks.is Vilt þú vita hvers virði eignin þín er í dag? Pantaðu frítt söluverðmat án skuldbindinga! HRINGDU NÚNA 820 8080 Sylvía Löggiltur fasteignasali sylvia@fr.is Brynjólfur brynjolfur@fr.is Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Hefðu stjórnvöld og samtök ferða- þjónustunnar tekið mark á spám Vil- hjálms Bjarnasonar árið 2001, hefði hin mikla fjölgun erlendra ferða- manna til landsins ekki þurft að koma þeim jafn mikið á óvart og raun ber vitni. Fyrir nokkrum dögum greindi Ferðamálastofa frá því að erlendir ferðamenn hingað til landsins væru nú orðnir fleiri en ein milljón á árinu. Þessu spáði Vilhjálmur, þá starfs- maður Þjóðhagsstofnunar, nú alþing- ismaður, á ársfundi Samtaka ferða- þjónustunnar fyrir tæpum fimmtán árum. „Þessu var þokkalega tekið,“ segir Vilhjálmur í samtali við Morg- unblaðið, þegar þetta er rifjað upp. „En hvorki stjórnvöld né ferðaþjón- ustan gerðu nokkuð með þetta.“ Bet- ur hefði mátt undirbúa ýmislegt sem snýr að mótttöku, dvöl og ferðalögum útlendinga um landið ef menn hefðu notað upplýsingarnar markvisst þeg- ar þær komu fram. Nær 30% aukning Samkvæmt gögnum Ferða- málastofu hafa 1.010.186 erlendir ferðamenn farið frá landinu eða 222.087 fleiri en á sama tíma í fyrra. Um er að ræða 28,2% aukningu milli ára. Aukningin hefur verið alla mán- uði ársins. Vilhjálmur segir að þegar hann setti spádóm sinn fram fyrir fjórtán árum hafi hann einfaldlega byggt á fyrirliggjandi tölum um árlegan fjölda ferðamanna til landsins og framreiknað líklega þróun á grund- velli ákveðinna forsendna. Ekki hafi allar þær forsendur sem hann gaf sér staðist, en margar þeirra. Þannig hafi hann ekki séð fyrir hina miklu fjölgun lágfargjaldaflugfélaga og þátt þeirra í flutningi ferðamanna til landsins. Þau hefðu átt erfitt uppdráttar á þessum tíma. Hann hefði talið að fjölgun ferðamanna til landsins mundi fyrst og fremst byggjast á viðskiptamönn- um, vísindamönnum og helgarf- arþegum, en ferðamennirnir sem koma núna til Íslands séu mun fjöl- breyttari hópur. Aftur á móti hafi það reynst rétt að viðskiptamönnum og vísindamönnum sem hingað kæmu fjölgaði verulega. Hér væru til dæmis haldnar fjölmennar ráðstefnur sér- fræðinga sem skiluðu þjóðarbúinu miklum gjaldeyristekjum. Þær væri hægt að halda vegna þess að hér væru komnir ráðstefnusalir sem réðu við stóra fundi, Vilhjálmur segir að hefðu menn byggt ferðaþjónustu upp síðasta hálf- an annan áratuginn á grundvelli þekkingar um líklega þróun hefði mátt standa betur að ýmsum málum en gerst hefði. Þannig hefði til dæmis mátt skipuleggja hótelbyggingar og notkun húsa undir gistihúsastarfsemi af meiri framsýni. Flugstöðin í Keflavík hefði líklega ekki lent í þeim ógöngum sem menn hafa orðið vitni að undanfarna mán- uði ef stjórnvöld hefðu horfst í augu við hvert þróunin stefndi. Spáði fjölgun ferðamanna rétt  Sagði 2001 að þeir yrðu milljón 2016 Vilhjálmur Bjarnason Morgunblaðið/Eggert Geysissvæðið Ferðamönnum fjölgar stöðugt og þeir fara víða um land. Fjölgun ferðamanna » Erlendir ferðamenn sem koma til Íslands eru orðnir fleiri en einn milljón. » Mikil fjölgun ferðamanna hefur komið stjórnvöldum og ferðaþjónustu í opna skjöldu. » Því var spáð á ársfundi Samtaka ferða.þjónustunnar 2001 að ferðamenn yrðu millj- ón árið 2016. Vinnuhópur um uppbyggingu legu- deilda við Sjúkrahúsið á Akureyri telur nýbyggingu eina raunhæfa kostinn til að leysa vanda sem við blasir í húsnæðismálum þess. Byggja þarf þriggja hæða hús sem væri um 8.500 m². Þetta kemur fram í skýrslu vinnuhóps sem fór yfir mál- ið og skilaði Kristjáni Þór Júlíussyni heilbrigðisráðherra niðurstöðum fyrir helgina. Í skýrslunni kemur fram að hús- næði deilda Sjúkrahússins á Akur- eyri fullnægi ekki kröfum nútímans. Svigrúm til endurbóta sé heldur ekki mikið. Því þurfi að byggja, til að mæta nýjum viðmiðum. Kostnaður við nýjar byggingar Akureyrarspítala er gróflega áætl- aður fimm milljarðar króna. Talið er að til að halda áfram með undirbún- ing að byggingunni og hefja vinnu við hönnun og áætlanagerð þurfi minnst 500 milljónir króna fjárveit- ingu á næstu tveimur árum. Setja ný viðmið Heilbrigðisráðherra sagði þegar hann tók við skýrslunni að tímabært væri að setja viðmið um hvernig upp- byggingu sjúkrahússins á Akureyri yrði háttað. Næst væri því að fara yf- ir tillögur sem fyrir liggja og huga að fjármögnun. sbs@mbl.is Nýbygging er eini kosturinn  Kostar 5 milljarða  Þröng á Sjúkrahúsinu á Akureyri Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Norðurland Sjúkrahúsið á Akureyri þarf bæði að stækka og bæta.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.