Morgunblaðið - 12.10.2015, Page 16

Morgunblaðið - 12.10.2015, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 2015 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Angela MerkelkanslariÞýskalands hefur haft sterka stöðu sem kanslari, og ekki búið við stjórnmálalega ógnun, hvorki innan eigin flokks, né frá stjórnmálalegum and- stæðingum. Þá hefur Merkel far- ið með hið óformlega forystu- hlutverk í ESB. Tveir síðustu forsetar Frakklands, Sarkozy og Hollande, voru svo veikir heima fyrir að þeir hlutu að fara vel í þeim taumi Merkel. Það létti þeim að halda andliti að Merkel forðast að halda yfirburðum sín- um á lofti. Það er óþarft. Allir vita hvernig landið liggur. Síðustu misserin ber meira á muldri vegna stjórnunarstíls og stefnu eða stefnuleysis kansl- arans. Evrukreppan kom Merkel í opna skjöldu. Halda þurfti á annan tug neyðarfunda í ESB til að koma sér niður á leið. Það varð loks Mario Draghi seðla- bankastjóri sem lagði línurnar. Þýskir áhrifamenn, sumir úr röðum kanslarans, hafa sagt opinberlega að Draghi hafi geng- ið lengra en lög um bankann heimili og einnig að þýsk lög heimili ekki Merkel að láta ákvarðanir bankastjórans ná fram að ganga. Þýski stjórnlaga- dómstóllinn hefur þó ekki enn fallist á að sýna þýskum stjórn- völdum rauða spjaldið en talar í aðvörunartón. Kanslarinn virtist ætla að standa þetta af sér. En Merkel var tekin í bólinu á ný, eins og flestir leiðtogar Evr- ópu, þegar að flóttamannaflóð- bylgjan brast á. Þó voru ýmsir fyrirboðar næsta augljósir. Ítalskir og grískir strandbæir höfðu verið að fyllast af flótta- fólki. Þúsundir manna höfðu drukknað í Miðjarðarhafi. Loks var svo komið að ríki ESB töldu sig ekki geta, af mannúðar- ástæðum, horft aðgerðarlaus á þennan óhugnað. Aukinn kraftur var settur í björgunarstörf og það fólk flutt til Ítalíu og Grikk- lands. Smám saman var talið óhjákvæmilegt að færa sig nær suðurströndum Miðjarðarhafs- ins en áður. Flóttamannasmyglarar sáu sér leik á borði og sendu nú fólk- ið af stað á enn varasamari fleyt- um en áður. Það hrópaði á að björgunarmenn færðu sig enn nær ströndinni. Á Vesturlöndum er gjarnan talað um sýrlenska flóttamenn. Framangreint fólk var ekki þaðan. Þeir voru, þegar þetta var, að safnast upp í flótta- mannabúðum í Líbanon, Jórd- aníu og Tyrklandi. Þeir eru þar í milljónavís. Hin opnu innri landamæri ESB og Schengen- samstarfið eru hrunin. ESB átti að vera eftirsóknarverður klúbb- ur betri borgara. Tollabandalag gagnvart umheiminum sem gagnast myndi vel innvígðum, svona eins konar SAGA-class í flugstöð. Auðvitað væri fal- lega gert og mann- úðlegt að hleypa allri flugstöðinni í Keflavík inn í Saga- class, líka þeim sem ekki hefðu greitt há fargjöld m.a. til að geta verið þar í næði við eftirsókn- arverðan aðbúnað. Væri það gert myndi ekkert Saga-class verða til eftir hálftíma. Ekki stór skaði skeður. En sama gæti gerst með velferðarklúbbinn ESB. Og því ættu þjóðir að burðast við að sækja þar um inngöngu þegar klúbburinn er í raun öllum opinn sem vilja, skilyrðislaust? Merkel hringsnerist í flótta- mannamálunum. Fyrst sagði hún að allir sem vildu væru vel- komnir til Þýskalands. Þegar flóttamennirnir brutu sér leið til Þýskalands tók fólk, sem hlýddi kalli kanslarans, á móti því með spjöld þar sem stóð VELKOM- IN – VELKOMIN. Það þurfti ekki að segja flóttafólki þetta tvisvar. Í framhaldinu varð allt óviðráðanlegt. Merkel reyndi að skella í lás aftur og samþykkt var að neyða öll ESB-ríki til að taka við flóttamönnum og bera þau ríki atkvæðum sem þrjósk- uðust við. Leiðtogum margra ESB ríkja var brugðið. ESB hefði sjálfsagt lítið gert með það, enda smáríki á alla aðra mæli- kvarða en þess íslenska. En nú er að hitna undir í Þýskalandi líka, þótt enn sé ekki soðið upp úr. Fylgi kanslarans hefur aldrei mælst jafn lágt í könnunum og nú. Systurflokkurinn í Bæjara- landi, sem fær mikla flótta- mannaágjöf, leggur nú opin- berlega til Angelu Merkel. Og leiðtogar Jafnaðarmanna í rík- isstjórninni eru teknir að gagn- rýna kanslarann harðar en áður. Forsætisráðherra Bæjaralands hótar að fara dómstólaleiðina, því að yfirlýsingar Merkel um að Þýskaland taki við flóttamönn- um án þess að setja á það há- mark brjóti stjórnarskrárákvæði um sjálfstjórnarrétt þýsku sam- bandsríkjanna. Merkel virðist brött enn sem komið er. Tímaritið Spiegel segir að hún hafi, á lokuðum fundi með þingmönnum í Brussel, vitnað til uppvaxar síns í Austur- Þýskalandi, en um þann þátt hef- ur hún verið fáorð hingað til. Hún líkti tilraunum til þess að verja landamæri ESB-ríkja við Berlínarmúrinn: „Ég ólst upp innan girðingar nógu lengi. Með slíkum má tefja þróun í fáein ár. En jafnvel hinn burðugi austur- þýski múr féll að lokum.“ Berlínarmúrinn og gaddavírs- girðingar kommúnismanns voru ekki til að marka landamæri gagnvart utanaðkomandi. Þetta voru fangelsisgirðingar til að halda mönnum innan alræðis gegn vilja sínum. Í tilviki Berl- ínarmúrsins hluta þjóðar frá frelsi hins vestan við. Róður kanslara Þýskalands þyngist}Hitnar í þýskum kolum Þ að kann að virðast af fullkominni tilfinningasemi sem fjöldi fólks virðist ósátt við það að stakt sundgjald sé að verða 900 krón- ur í sundlaugum Reykjavíkur- borgar, þrátt fyrir að á það hafi verið bent að árs- og fjölmiðakort hækki ekki, ekki heldur gjald barna og áfram sé ókeypis fyrir ellilífeyrisþega og öryrkja. Ég er samt ekki frá því að þessar tilfinningar eigi full- komlega rétt á sér. Kann að vera að sundlaugarnar eigi sér eitthvert dularfullt tilkall til sjálfsmyndar okkar? Svipað og pylsa með öllu? Það eru einhvers konar þjóðfélagsleg réttindi að geta hrist klink úr vösunum, sama hversu illa ár- ar, og farið í sund og boðið sér upp á pylsu þegar öll sund virðast lokuð. Það kostar víst mun meira á sundstaði annars staðar á Norðurlöndunum en ég efast samt um að Svíar, Danir eða Norðmenn væru svona argir eins og mörg hver okkar eru yfir einhverri hækkun í viðbót. Sundlaug er ekki hluti af þeirra sjálfsmynd. En er þetta ekki bara gott og gilt? Þeir óskipulögðu, sem dettur svona endrum og eins í hug að fara í sund, eiga þeir ekki bara að greiða þennan tæpa þúsundkall? Á þetta ekki bara að vera svolítið danskt? Danirnir kaupa sitt árskort í tívolí, sín árskort í lestina, einu sinni, þegar vídeóleigur voru til, voru þeir líka með miðakort á leigurnar. Alltaf allt reiknað þannig út að magnkaup borga sig. Þeirra sjálfsmynd er að vera séður. Þeir kvarta ekki yfir því að þurfa að sýna smáfyrirhyggju. Piff á þá sem eru það ekki. En þar komum við að því sem einkennir svolítið sundhegðun okkar. Sund er nefni- lega ekki bara lýðheilsusport þeirra sem ganga hnarreistir um með miða- eða árs- kort í vasanum. Það er líka sport þeirra sem þurfa að nurla aurunum saman og þar er til lögmál: Þeir sem þurfa að fara í alla vasa eftir klinki til að gera sér dagamun; fyrir þá er það nær án undantekninga of stór biti að punga út fyrir stærri magn- greiðslum, árskortum og fjölmiðakortum. Það er sjaldan eða aldrei stund eða staður til að festa kaup á stærri sneiðum. Það er farið einstaka sinnum í sund þegar eitthvað er afgangs. Mín nostalgíska æskuminning um sundferð í Laug- ardalslaugina fyrir fjöldamörgum árum er áhyggju- fullur heimilisfaðir með yfirdrátt, slitið seðlaveski og á sjúskuðum skóm með krakkaskara í eftirdragi, jafnvel þunur og almennt geðfúll. Þetta ámátlega foreldri fór jafnvel líka í Bláa lónið á þeim árum, sem er útópísk hugmynd meðallaunþegans í dag. Það er af fullkominni tilfinningasemi sem mér mun alltaf líða sem það eigi að vera réttur hans, krakkaskarans og allra að geta leyft sér að fara í sund. Alltaf. Sama hvað annað geng- ur á. julia@mbl.is Júlía Margrét Alexanders- dóttir Pistill Sundmiðuð sjálfsmynd STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Ef við viljum reiða okkur áinnanlandsflugið þarf aðfara að huga að því hvortekki sé hægt að finna betri stað fyrir flugvöll í stað þess sem er á Ísafirði,“ segir Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarð- arbæjar. Margir sveitarstjórn- armenn sem farið hafa með óskalista á fund fjárlaganefndar að und- anförnu hafa lagt áherslu á lagfær- ingar á flugvöllum og flugstöðvum. Það snýr bæði að endurbótum vegna aukinnar umferðar vegna millilanda- flugs og að bæta aðstöðu til innan- landsflugs. Skert þjónusta við farþega „Það eru veruleg þrengsli í flug- stöðinni þegar vélar eru í millilanda- flugi. Í tengslum við aukna umferð um flugvöllinn þarf að huga að stækkun flugstöðvar eða breyt- ingum, og allri annarri þjónustu í kring,“ segir Eiríkur Björn Björg- vinsson, bæjarstjóri á Akureyri. Í erindi Akureyrarbæjar til fjár- laganefndar er lögð áhersla á stækk- un flugstöðvarinnar. Einnig er vakin athygli á því að stöðugt vaxandi flug- verndarkröfur geri það nauðsynlegt að skilja algerlega á milli innanlands- og millilandafarþega. Hingað til hafi slíkt aðeins verið hægt með því að skerða verulga þjónustu við innan- landsfarþega. Það sé ekki ásætt- anlegt til lengri tíma. Eiríkur Björn segir að farþegar í innanlandsflugi hafi orðið að nota fremri salinn í flugstöðinni, þar sem innritunin fer fram, þegar millilanda- vél er einnig afgreidd. Hvorugur sal- urinn sé nógu stór. Eiríkur Björn segir að verið sé að auka millilandaflug um Akureyr- arflugvöll og því verði þetta verkefni meira aðkallandi. Vikulegt áætl- unarflug er að hefjast til Kaup- mannahafnar og rætt er um fleiri áfangastaði. Eiríkur telur að ekki þurfi að ráðast í umfangsmiklar framkvæmdir. Akureyringar herma einnig lof- orð upp á stjórnvöld um að kosta flutning á fyllingarefni úr Vaðlaheið- argöngum að flugvellinum þar sem nota á það til að stækka flughlöð. Ei- ríkur telur að ekki sé gert ráð fyrir þessum kostnaði í fjárlagafrumvarpi næsta árs. „Það er frekar verið að draga úr fjárfestingum til innan- landsflugs en að styrkja flugvellina og efla,“ segir Eiríkur Björn. Millilenda á Sauðárkróki Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar leggur áherslu á að fá „alvöru“ innan- landsflugvöll. Til að fá áreiðanlegar flugsamgöngur til Vestfjarða, sem standast tímaskipulagningu nútíma- fólks, þurfi að fá fullkominn innan- landsflugvöll, helst af öllu tveggja brauta, á norðanverðum Vest- fjörðum. Hann þurfi að hafa 90-95% nýtingu og réttindi til millilandaflugs. Sveitarstjórn Skagafjarðar vill láta endurskilgreina Alexand- ersflugvöll á Sauðárkróki sem milli- landaflugvöll. Tryggja þurfi að að- flugsgeisli sem nauðsynlegur er til að efla flug inn í landshlutann verði tek- inn í notkun. Einnig er lagt til að áætlunarflug verði hafið að nýju til Sauðárkróks. Sveitarstjórnir vilja fjármagn til flugvalla Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Akureyrarflugvöllur Tilraunir til að hefja reglulegt millilandaflug til Akureyrar hafa ekki gengið upp. Nú virðast meiri möguleikar á því. Eiríkur Björn Björgvinsson Gísli Halldór Halldórsson Gísli Halldór bæjarstjóri segir að flugið til núverandi Ísafjarð- arflugvallar sé ekki nógu áreið- anlegt í vondum vetrum eins og þeim síðasta. Þá hafi flug oft fallið niður. Það geri fyr- irtækjum og stjórnsýslunni erf- itt um vik í samskiptum við stofnanir í borginni. Hann telur rétt að gera heild- arúttekt á möguleikum þess að koma fyrir nýjum innanlands- flugvelli sem myndi virka. Til þess að hann nýtist þurfi hann helst að vera innan við hálftíma akstursleið frá Ísafirði. Þingeyr- arflugvöllur hefur oft verið nefndur sem hentugt flugvall- arstæði. Gísli segir að þann möguleika þurfi að athuga en ekki séu allir sannfærðir um að hann dugi. Þá segir hann að vegna uppbyggingar fiskeldis og aukins útflutnings á ferskum fiski þyrftu að vera möguleikar á vöruflutningum frá flugvelli á Vestfjörðum. „Það væri fínt að fá heildstæða skoðun á þessu.“ Innanlands- flugið virki BÆJARSTJÓRI ÍSAFJARÐAR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.