Morgunblaðið - 12.10.2015, Side 32

Morgunblaðið - 12.10.2015, Side 32
MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 285. DAGUR ÁRSINS 2015 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 488 ÁSKRIFT 5295 HELGARÁSKRIFT 3307 PDF Á MBL.IS 4696 I-PAD ÁSKRIFT 4696 1. Í haldi Ríkis íslams í 398 daga 2. Richard Gere þóttist vera … 3. Fundað með foreldrum í vikunni 4. Tyrkir hneykslast á tísti Alfreðs »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Möguleikhúsið er á leikferð um Austurland þessa dagana með leik- sýninguna Eldklerkinn. Höfundur handrits og leikari er Pétur Eggerz, leikstjóri Sigrún Valbergsdóttir, leik- mynd gerði Rósa Sigrún Jónsdóttir, búninga Thelma Björnsdóttir og hljóðmynd er eftir Guðna Franzson. Sýningin var á Djúpavogi í gærkvöldi, verður í Egilsstaðakirkju í kvöld, fé- lagsheimilinu Fjarðarborg, Borgar- firði eystra, annað kvöld, Vopna- fjarðarkirkju á miðvikudag og í Eski- fjarðarkirkju fimmtudaginn 15. október. Sýningarnar hefjast kl. 20. Morgunblaðið/Kristinn Eldklerkurinn á ferð um Austurland  Sýningin „SAGA – Þegar myndir tala“ var opnuð í KUMU; Samtíma- listasafninu í Tallinn, Eistlandi, um helgina. Halldór Björn Runólfsson, safn- stjóri Listasafns Íslands, og þýski sýningarstjórinn Norbert Weber völdu verkin á sýninguna, sem á að varpa ljósi á menningu þjóðar. Verk á sýningunni eiga Björk, Dieter Roth, Erró, Gabríela Friðriksdóttir, Helgi Þorgils Friðjónsson, Hrafnkell Sigurðsson, Hulda Hákon, Jóhannes S. Kjarval, Kristleifur Björnsson, Ólafur Elíasson, Ólöf Nordal, Ósk Vilhjálmsdóttir & Anna Hallin, Ragnar Kjart- ansson, Sig- urður Guð- mundsson, Steingrímur Eyfjörð og Þórður Ben Sveinsson. „SAGA – Þegar myndir tala“ í Tallinn Á þriðjudag Vestlæg átt, 5-13 m/s en S 13-18 austantil undir kvöld. Skýjað og víða nokkuð vætusamt en talsverð rigning SA- lands um kvöldið. Hiti 3 til 10 stig, hlýjast NA-lands. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Gengur í suðaustan 8-15 m/s með rigningu S- og V-til, fyrst SV-til. Styttir upp SV-til í kvöld en bætir í úrkomu SA-til. Hiti yfirleitt 2 til 7 stig en næturfrost N-til. VEÐUR Kvennalandsliðið í hand- knattleik fer ekki vel af stað í undankeppni Evrópumóts- ins. Stelpurnar okkar hafa tapað báðum leikjum sínum í undankeppninni. Í gær tók íslenska liðið á móti Þjóð- verjum í Vodafonehöllinni og mátti sætta sig við fimm marka tap, 22:17, eftir að hafa verið marki undir í hálfleik. Í síðustu viku tap- aði liðið fyrir Frökkum á úti- velli. »2 Annað tap hjá stelpunum „Ég lenti illa á olnboganum þegar ég var að skutla mér eftir boltanum. Hægri öxlin fór úr lið en sjúkraþjálf- ararnir og læknir landsliðsins kipptu henni í liðinn strax úti á vellinum,“ sagði landsliðsmarkvörðurinn Hann- es Þór Halldórsson sem verður frá keppni næstu mánuðina. »1 Fór úr axlarlið í sjötta sinn á ferlinum Lið Esjunnar trónir á toppi Ís- landsmóts karla í íshokkíi en liðið vann sætan sigur á liði Bjarnarins, 3:2, á skautasvell- inu í Laugardal. Með sigrinum náði Esja sjö stiga forskoti á toppi deildarinnar. Björninn komst í 2:0 en Esjumenn sneru taflinu við og tókst að knýja fram 3:2-sigur. »8 Lið Esjunnar með sjö stiga forskot ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Laufey Rún Ketilsdóttir laufey@mbl.is „Þetta er mikilvægt til að vekja okk- ur til umhugsunar um birtingar- myndir fötlunar í menningarefni því þar sjást aðallega neikvæðar myndir af fötluðu fólki eða aðstæðum fatlaðs fólks,“ segir Eva Þórdís Ebenezers- dóttir, þjóðfræðingur og einn fyrir- lesara á málþingi Jafnréttisdaga Há- skóla Íslands annað kvöld, í fyrir- lestri sem ber heitið Fötlun í fantasíum. Málþingið byggist að mestu á námskeiði sem Eva kenndi síðast- liðið vor í fötlunarfræði við Háskóla Íslands og eru tveir nemendanna einnig með framsögu. Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir fjallar um Harry Potter – fötlun og frík í galdrasamfélagi og svo fer Elín Ýr Arnar Hafdísardóttir yfir afbrigði, frík og hóruunga í Game of Thrones- þáttaröðinni. Illmenni og staðalímyndir Eva mun leggja áherslu á vel valdar teiknimyndir frá Disney og Pixar þar sem dæmi eru um fatlaðar persónur og birtingarmynd þeirra ýmist jákvæð eða neikvæð. „Við þekkjum öll illmennið sem er markað með sýnilegri skerðingu eins og til dæmis Kapteinn krókur. Það að hann hafi misst höndina er vitnisburður um að hann hafi gert eitthvað af sér og sé illa innrættur,“ segir Eva en að mati margra fræði- manna verður merking fötlunar til í frásögnum. Þegar menningin segir stöðugt sögur á þennan hátt er verið að leiðbeina okkur um hvernig okk- ur ber að skilja fötlun. „Staðal- ímyndirnar eru einfaldar og gefa óraunsæja mynd af því sem þær eiga að tákna,“ segir Eva og vill að barist sé gegn þessu. Hvetur hún foreldra til að tækla málið með börnum sín- um. „Þetta hefur meiri áhrif á börn- in en við áttum okkur á því þau end- urspegla samfélag sitt í meðal annars teiknimyndunum.“ Brýst undan viðhorfunum Heimur fer þó batnandi að mati Evu því nýjar teiknimyndir í dag taki mun betur á fötlun og skerð- ingum en þær eldri. Í myndinni Leitin að Nemó fæðist fiskurinn Nemó til dæmis með skerðingu, vis- inn ugga sem kallaður er happa- ugginn. „Hann brýst svo undan við- horfum samfélagsins og öðlast já- kvæðan og sterkan sjálfsskilning,“ segir Eva sem telur myndina skylduáhorf fyrir foreldra. Í mynd- inni Brave er hins vegar fötlunin eða skerðingin tengd við jákvæða og sterka sögu persónunnar um það hvernig skerðingin kom til. Happa-ugginn eða illmennin  Skoða birtingar- myndir fötlunar í fantasíumyndum Morgunblaðið/Árni Sæberg Fötlun Eva Þórdís Ebenezersdóttir skoðar fötlun í fantasíum á málþingi 13. október kl. 20 í Háskóla Íslands í tilefni jafnréttisdaga skólans. Birtingarmyndir fötlunar eru ýmist jákvæðar eða neikvæðar og móta skilning fólks á fötlun. Fötlunarfræði var kennd fyrst sem námsgrein við Háskóla Íslands fyrir rúmum tíu árum. Fræðasviðið er með sambærilegan bakgrunn og kynja- fræðin eða hinseginfræðin, að mati Evu, og er því fremur nýtt af nál- inni. „Þetta fag er í mjög sterkum tengslum við grasrótina og réttindabar- áttu fatlaðs fólks,“ segir hún en fagið hafi mótast í kjölfar þess að fatl- að fólk reis upp og krafðist þess að fötlun sín yrði skilin á annan hátt en verið hefur. „Þetta er því minnihluta-, baráttu- og pönkfag.“ Litið er á fötlun sem félagslegt fyrirbæri í fötlunarfræðinni. „Ástæða þess að manneskja með skerðingu er á jaðrinum í samfélaginu er ekki vegna skerðingarinnar heldur þess að samfélagið gerir ekki ráð fyrir margbreytileikanum sem felst í fólki með skerðingu.“ Minnihluta-, baráttu- og pönkfag FÖTLUNARFRÆÐI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.