Víkurfréttir


Víkurfréttir - 08.12.1988, Blaðsíða 12

Víkurfréttir - 08.12.1988, Blaðsíða 12
VIKUR mun 12 Fimmtudagur 8. desember 1988 Fimmtudagur 8. desember 1988 13 Byggingamál aldraðra: IVIiklar bygginga- framkvæmdir framundan? Skýrsla sú sem fjárhags- nefnd SSS hefur iagt fram virðist vera mjög vel unnin og þar er tekið á öllum þeim mál- um er skipta einhverju í sam- starfi sveitarfélaganna sex er aðild eiga að Dvalarheimilum aldraðra Suðurnesjum, þ.e. allra sveitarfélaganna nema Grindavíkur sem stendur fyrír utan samstarf þetta. Helstu þættir skýrslunnar eru eftirfar- andi: D-álman Nefndin leggur til að leitað verði eftir því við heilbrigðis- ráðherra og fjármálaráðherra að þeir tryggi fé á fjárlögum til byggingar D-álmu Sjúkra- hússins í Keflavík á árinu 1989 og næstu sex árum eftir það, þ.e. aðunnið verðijafntog þétt að byggingunni í sex áföngum á næstu sjö árum og verði hún tilbúin til notkunar árið 1996. Garðvangur í ljósi þess neyðarástands sem í dag ríkir í þessum mála- flokki leggur nefndin til að leítað verði eftir því við heil- brigðisráðherra og fjármála- ráðherra að þeir tryggi fé á fjárlögum ársins 1989 til að byggð verði viðbótarálma við hjúkrunarheimilið Garðvang. Um er að ræða byggingu er bjóði upp á 30 sjúkrarúm sem tilbúin verði til notkunar 1. janúar 1990. Þá er gert ráð fyr- ir aðstöðu fyrir sjúkraþjálfun og starfsfólk Garðvangs. Einnig er gert ráð fyrir að fallið verði frá þeim hugmynd- um um viðbyggingu sem fyrir- huguð var, en þær hugmyndir falla eins og áður segir inn í þessa nýju leguálmu. Hlutdcildaríbúðir Nefndin leggur til að á næstu sex árum verði byggðar 100 hlutdeildaríbúðir samtals í öllum sex aðildarsveitarfélög- unum. Eru íbúðir þessar fjár- magnaðar og byggðar af svip- aðri fyrirmynd og átti sér stað þegar íbúðir aldraðra að Kirkjuvegi 11 í Keflavík voru byggðar. En þær voru teknar í notkun nú í sumar. Heildarstjórn hjá DS Gert er ráð fyrir að allar fram- kvæmdir og allur rekstur á þessu sviði verði undir stjórn D.S., sem tryggi að ein heildar- stjórn verði á þessum málum. Hlévangur Nefndin leggur til að hönn- unarforsendur fyrir viðbygg- ingu við Hlévang í Keflavík verði endurskoðaðar. Þess verði gætt að viðunandi lausn fáist og verði samþykkt af að- ildarsveitarfélögunum á eftir- töldu áður en ráðist verði í framkvæmdina. Helstu þættir sem taka þarf til endurskoðunar er stærð herbergja, þ.e. að þau stækki úr 19 fermetrum í 35 fermetra. Dyr og gangar verði breikkað- ir svo flytja megi rúm um hús- ið án vandkvæða. Bílastæða- fjöldi við húsið fullnægi lág- markskröfum. Núverandi teikning verði í takt við tím- ann s.s. vegna ofantalinna at- riða. Núverandi íbúar verði ekki fyrir röskun á bygginga- tímanum. Gerður verði samningur um kaup D.S. á eldra húsi af Keflavíkurbæ. Auk þessa eru ýmsir aðrir liðir er snúa að liagkvæmni, kostnaðaráætlun o.ll. Kostnaður sveitarfélaganna Eins og fram kemur á for- síðu er tekið á fjármögnunar- þættinum. M.a. er gert ráðfyr- ir samningi við stjórn Lífeyris- sjóðs verkalýðsfélaga á Suður- nesjum um fjármögnun á móti framlögum sveitarfélaganna í verkefninu. Er stjórn sjóðsins tilbúin að beita sér fyrir því að á næstu fjórum árum fáist allt að 100 milljóna króna lán úr sjóðnum til allt að 15 ára til framkvæmda á sviði öldrunar- mála á Suðurnesjum. lagjöf sjómannsins + + „Stolt siglir fleyið mitt“ ísfisktogaramynd, veiðar og vinnsla um borð í frystitogara - humarveiðar. „íslendingurinn og hafið“ Loðnuveiðar, netaveiðar og síldveiðar. Þessar tvær myndbandsspólur eru eftir Heiðar Marteinsson. Upplýsingasími: 91-20408. „Mikið af viðskiptavinum af höfuðborgarsvæðinu’ - segir Nanna Jónsdóttir, kaupkona í Draumalandi Aðventuhátíð Á morgun, föstudaginn 9. des. kl. 20:30 í Safnaðarheimilinu Blikabraut 2, Keflavík. Fjölbreytt tónlist, helgileikur og hugvekja. Æskulýðskór og kirkjukórar Aðventsafn- aðarins og Útskálakirkju syngja. Komið og upplifið jólastemninguna. Allir velkomnir. Sr. Þröstur og sr. Hjörtur Magni Nokkur hreyfing hefur verið á verslunum í Keflavík undanfarið. Sumar flytja upp Hafnargötuna og aðrar niður. Ein þeirra sem flutt hefur niður Hafnargötuna er verslunin Draumaland, sem áður var að Hafnargötu 37 en er nú komin niður á 21. Draumaland er verslun með heimilisvöru, s.s. efni, rimla- gardínur, rúmteppi, sængur, sængurfatnað og baðsloppa. Eigandi er Nanna Jónsdótt- ir. Við heimsóttum Nönnu í nýju verslunina, sem er tölu- vert rúmbetri en sú eldri. „Viðtökurnar hafa verið mjög góðar hér á nýja staðn- um,“ sagði Nanna þegar hún var spurð um viðbrögð fólks við þessum flutningum. Verslunin Draumaland hefur verið í stöðugri sókn frá því Nanna tók við henni fyrir um tveimur árum síðan. „Hingað kemur mikið af fólki af höfuðborgarsvæðinu og ég sendi þó nokkuð af mínum vörum út á land.“ -Þú hefur ýmsar vörur til heimilisins á boðstólum, eins og til dæmis gardínuefni? „Já, það er ágæt sala í gar- dinuefnum og ég hef reynt að stíla inn á efni í stíl við rúm- fatnað.“ -Nú líður að jólum og fólk er farið að versla gjafir handa fjölskyldu og vinum. Er mik- ið notað af greiðslukortum fyrir jólin? „Það er tvímælalaust meiri notkuná kreditkortum i jólamánuðinum, heldur en aðra mánuði ársins." -Leitar fólk mikið út fyrir svæðið til þess að versla? „Ekki í þessum vöru- flokkum sem ég er með, en það er alltaf eitthvað um það.“ -Að lokum. Ert þú bjart- sýn á framtíðina? ,,Ég er bjartsýn, því ann- ars væri ég ekki búin að gera þetta,“ sagði Nanna Jóns- dóttir að lokum. Nanna Jónsdóttir í verslun sinni, Draumalandi. Ljósm.. hbb. lokunarinnar ,,Ég tel mig ekki vera for- svarsmann lokunar á götu- stubb þeim sem er á milli Smáratúns og Hátúns í Kefla- vík. I umferðarnefnd Kefla- víkur eru 5 menn og þar var málið samþykkt samhljóða. Málið tafðist hins vegar í bæjarráði og bæjarstjórn og óskuðu þeir eftir áliti íbúanna í formi undirskriftasöfnunar. Því bauðst ég til að ganga með listann í hús,“ sagði eigandi vöruflutningabifreiðarinnar sem gagnrýndur var í síðasta blaði. En þar kom fram að um- rædd lokun væri hans einka- mál.' Síðan sagði hann: „Frá því lokun þessi varð að veruleika hefur umferð um Smáratúnið minnkað til muna en hún var mjög mikil, sérstaklega upp í Hátúnið, þar sem nú er lokað. Þegar listi þessi var borinn í hús skrifuðu allir í Hátúninu nema tveir undir hann. I Smáratúni skrifuðu allir þeir, þar sem bankað var upp á. Um stöðu vöruflutningabílsins vil ég segja að honum er alls ekki lagt ofan í hlið leikvallarins eins og best sést á myndinni sem fylgdi greininni. Varðandi Hátúnið þá er rétt að hafa það hugfast að sú gata er ekki þröng, a.m.k. ekki þrengri gata en Smáratúnið. Hinu er ekki að leyna að það virðist víða vera þyrnir í aug- um fólks ef þessir bílar sjást ut- an vinnutíma. Það eitt er mikið vandamál hér á staðnum. Þá er líka rétt að hafa það hugfast að liðin eru rúm tvö ár síðan þetta var samþykkt með lokunina í bæjarstjórninni, en það eru ekki liðnir nema tveir og hálfur mánuður síðan að ég ákvað að kaupa vöruflutn- ingabílinn umrædda. Virðist því mál bréfritara stangast eitthvað á í þessum efnum,“ sagði umræddur aðili að lok- um í samtali við blaðið. JOLALJOS I R.Ó Jólaseríur frá kr. 560.- Jólastjörnur - og englar í glugga kr. 685,- Þú getur bæði fengið 40 ljósa útiseríu á kr. 1.425.- eða með 80 ljósum og auð- vitað fylgir spennir. Utbúum seríur eftir máli. Aðventuljós frá kr. 1.290,- Verslið við fagmanninn - þar er þjónustan Gefið vandaðar jólagjafir - Verð við allra hæfi. Rafbúð feR.Ó. Hafnargötu 52, Keflavík, sími 13337 Nytsamar jólagjafiv á jólaverði $t PROXXON Verkfærasett troðfull af tólum sem alltaf þarf að vera að taka i... Frábært jólavcrð Kr 8.991.- WO L F slípirokkur Gott jólaverð 6.900.- WOLF borvél Kr. 5.994.- TENG TOOLS skrúfvél Nauðsynlegt undratæki Kr 3.960,- ^ MAKITA hefill Kr 9.981.- STANLEY bílskúrshurðaopnari Þægindi á frábæru verði Stgr. kr. 18.900.- Otrúlegt jólaverð kr. 3.210.- MAKITA frasari Kr. 9.999.- ...og svo margt fleira t.d.... borvélahulstur fyrir belti (jólagjöfin hans pabba) Kr. 930.- og kr. 1.11 6.- MAKITA borvél Kr 4.995. BLACK& ryksuga Lítil, létt og hreinsar upp óhrcinindi og smádrasl á svipstundu Jólaverð Kr 2.997.- Járn & Skip Gjafabréf 5 % afsláttur Ef þú ert í vand- þá er gjafabréf rtrðum með að finna stórsniðug lausn. réttu jóla- eða inn- 5% afsláttur fylgir flutningsgjöfina hverju gjafabréfi. Eigandi vöruflutningabílsins í Smáratúni: „Tel mig ekki vera forsvarsmann

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.