Morgunblaðið - 29.03.2016, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MARS 2016
...með nútíma
svalalokunum
og sólstofum
Skútuvogur 10b, 104 Reykjavík, sími 517 1417, glerogbrautir.is
Opið alla virka daga frá 9-17 og á föstudögum frá 9-16
• Svalalokanir
• Glerveggir
• Gler
• Felliveggir
• Garðskálar
• Handrið
Við færumþér logn & blíðu
Hinrik Gunnar Hilm-
arsson, fv. markaðs-
stjóri Golfsambands
Íslands, lést á líknar-
deild Landspítalans í
Kópavogi á skírdag, 57
ára að aldri.
Hinrik fæddist 28.
júlí 1958 í Reykjavík.
Foreldrar hans eru
Hilmar Eyjólfsson, f. 3.
janúar 1934, og Berg-
ljót Gunnarsdóttir, f.
23. febrúar 1938.
Golfíþróttin átti hug
Hinriks allan, en hann
starfaði fyrir Golfsamband Íslands á
árunum 2002 til 2007 sem markaðs-
stjóri en sinnti einnig dóm-
arastörfum.
Í tilkynningu á vef Golfsambands-
ins segir að Hinrik hafi
verið í fararbroddi um
golfreglur og dóm-
aramál á vegum sam-
bandsins, sérþekking
hans hafi verið einstök
og fært golfhreyfing-
unni mikla fagmennsku
á því sviði.
Hinrik var alþjóð-
legur golfdómari og
ræsir hjá heimaklúbbi,
sínum, Golfklúbbi
Reykjavíkur, og
dæmdi m.a. fjölmörg
Íslandsmót.
Hann var ókvæntur en lætur eftir
sig eina dóttur.
Minningarathöfn verður haldin
um Hinrik í Langholtskirkju á
fimmtudag klukkan 13.
Andlát
Hinrik Gunnar
Hilmarsson
Landsmenn nýttu frídagana um
páska vel til ferðalaga og útivistar.
Nóg var við að vera, hvort sem var í
þéttbýli eða dreifbýli. Flesta dag-
ana viðraði almennt vel á landinu
en ferðamenn lentu sums staðar í
vanda á hálendinu.
Skíðabrekkur landsins voru vel
nýttar og aðsókn mjög góð, t.d. í
Hlíðarfjalli, Bláfjöllum, Tindastóli,
Oddsskarði og á Ísafirði, Dalvík,
Siglufirði og víðar. Víða fóru fram
gönguskíðamót, eins og í Fljótum í
Skagafirði á föstudaginn langa. Þar
mættu um 140 keppendur til leiks
og létu smávegis úrkomu ekki
stöðva sig. Að móti loknu voru
kaffiveitingar og verðlaunaafhend-
ing í félagsheimilinu Ketilási.
Þúsundir manna skemmtu sér á
Ísafirði á tónlistarhátíðinni Aldrei
fór ég suður. Fjöldi tónlistarmanna
steig á svið og ýmsir aðrir við-
burðir fóru fram, auk skíðavik-
unnar árlegu. Dagur B. Eggertsson
borgarstjóri fór í opinbera heim-
sókn til Ísafjarðar, í tilefni af 150
ára afmæli bæjarins.
Ljósmynd/Feykir
Fljótin Árlegt gönguskíðamót fór fram í Fljótum í Skagafirði föstudaginn langa. Metfjöldi keppenda mætti til leiks, um 140 manns, á öllum aldri og af báðum kynjum. Vel tókst til í alla staði.
Morgunblaðið/Eggert
Reykholtsdalur Ferðamenn tóku upp símana við Deildartunguhver.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Bláfjöll Séra Pálmi Matthíasson mætti í Bláfjöllin á páskadag og flutti þar árlega páskamessu fyrir skíðaiðkendur.
Iðandi mannlíf
um páskahelgina
Fjölmennt á skíðasvæðum landsins