Morgunblaðið - 29.03.2016, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 29.03.2016, Blaðsíða 13
Morgunblaðið/Kristín Heiða Heljarmenni Þeir eru engin fuglabein bræðurnir Benjamín og Guðjón Kristinssynir enda frá Dröngum á Ströndum. Hér líta þeir upp til fjalls þar sem þeir koma út úr fjárhúsinu sem þeir munu fljótlega ljúka við að endurbyggja. lífi. Heldur fannst bónda hennar að hlýnaði um of undir sænginni, þar sem frú hans og Fransmaðurinn voru komin á fullt í ástaratlotum. Bað þá bóndi konu sína um að segja Frakk- anum að hætta þessum strokum en allt hélt áfram við það sama. Öðru sinni krafðist bóndi þess að konan skipaði skipbrotsmanni að hætta þuklinu, án árangurs. Þegar eigin- maðurinn í þriðja sinni hóf upp raust sína sagði konan: „Góði segðu honum það sjálfur, ég kann ekkert í frönsku.“ Rútshellir Hér sést innan úr hellinum þar sem uppgengt er úr fjárhúsinu, og tvær hæðir aðrar taka við þegar gengið er lengra inn í hellinn. Steinhellur Nokkur tonn af grjóti eru komin á þakið og tyrft verður yfir. Listasmíð Tréverkið og hleðslan inni í húsinu eru fallegt handverk. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MARS 2016 Fannar Magnússon, bóndi á Hrútafelli, er fæddur þar og uppalinn, en hann segist ekki muna eftir því sjálfur þeg- ar fé var haldið í fjárhúsinu undir klettinum, enda var hann aðeins tveggja ára þegar því var hætt. „Afi minn var með sitt fé í þessu húsi og pabbi var líka með fé þar, allt fram til ársins 1970 þegar byggt var nýtt fjárhús hér á bæjarhlaðinu, þá var hætt að nota húsið undir klettinum. Það eru því ekki nema 46 ára síðan fjárhúsið var í notkun. Þetta var ágæt- is hús, heyrði ég, og þarna voru um fjörutíu fjár. Í tíð afa og ömmu var þvottur þurrkaður við klettinn ofan við fjárhúsið, því þar er opið í gegn og mikið loftstreymi í gegnum skarð sem kallað er Gjögur. Einnig eru ummerki um að vindur hafi verið nýttur til þurrkunar uppi í fjallinu, því enn hanga hrosshárareipi uppi í helli sem kallast Reipaból og þar við hliðina er hellir sem kallast Húðarból. Þar voru húðir strengdar við slétt bergið og þurrkaðar.“ Og í beinu framhaldi af því að horft er til fjallsins verður ekki hjá því komist að spyrja hvort fýllinn sem flögrar þar um í massavís sé nýttur. „Fýlseggin voru borðuð í pabba tíð, en fýllinn sjálfur var borðaður í afa tíð. Fólk hætti að borða hann þegar fýla- veiki var talin koma upp í Vest- mannaeyjum,“ segir Fannar og bætir við að hellirinn stóri inn af fjárhúsinu sé yfirleitt kallaður Rútshellir og að í honum hafi sennilega verið búið frá örófi alda. „Gömul saga segir að þrír þrælar hafi reynt að drepa húsbónda sinn sem hét Rútur, en tókst ekki. Í fram- haldinu elti Rútur þá uppi og drap þá, þann fyrsta við Stebbasteina, þann næsta við Högnaklett sem er við Rauðafell, og þann þriðja við Guðna- stein uppi á Eyjafjallajökli. Þrælarnir hafa þá væntanlega heitið Stebbi, Högni og Guðni.“ Fannar er með blandaðan búskap, bæði kindur og kýr, og hrossin sem hann gefur úti á túni við þjóðveginn fá mikla athygli frá ferðamönnum. „Það er þvílíkur straumur af fólki sem staldrar við til að skoða hrossin, mynda þau og klappa þeim. Þetta er ólán, því hrossin verða ágeng fyrir vik- ið, þau verða frek og vaða yfir mann. Það er ágangur af ferðamönnum hér og alveg ótrúleg traffík, bílaleigubílar þjóta hér framhjá stanslaust allan daginn, alla daga. Það liggur við að þetta sé ánauð. Til dæmis kom hér ný- lega lítil rúta inn fyrir pípuhlið og heim á hlað hjá okkur og allir komu út og fóru að taka myndir. Við bændur erum orðnir sýningargripir, þessir fáu sem eftir eru. Það vantar mikið upp á tillitssemi hjá ferðamönnum.“ Morgunblaðið/Kristín Heiða Bóndi Fannar sultuslakur í hlöðunni heima á Hrútafelli og hundur kíkir á gest. Rútur drap alla þræla sína GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA Láttu okkur létta undir fyrir næstu veislu Háaleitisbraut 58-60 • 108 Reykjavík • haaleiti@bjorg.is • Sími 553 1380 Serviettu- og dúkaleiga Gardínuhreinsun Dúkaþvottur Aðalfundur Skinneyjar - Þinganess hf. Aðalfundur Skinneyjar - Þinganess hf. fyrir árið 2016 verður haldinn á skrifstofu félagsins að Krossey, Hornafirði, miðviku- daginn 20. apríl 2016 og hefst hann stundvíslega kl. 13.30. Á dagskrá fundarins verða: 1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 14. grein í samþykktum félagsins. 2. Önnur mál, löglega fram borin. Framboðum til stjórnar skal skila til félagsins eigi síðar en fimm dögum fyrir aðalfundinn með þeim upplýsingum sem fram koma í 2. mgr. 63. gr. a í lögum um hlutafélög. Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað. Hluthafar eru hvattir til að mæta tíman- lega til að taka við fundargögnum. Hornafirði, 15. mars 2016 Stjórn Skinneyjar - Þinganess hf. Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.