Víkurfréttir - 14.12.1995, Blaðsíða 12
JÓLABLAÐ 1995
WK'UHPRÉTTIR
Texti og myndir: Hulda G. Geirsdóttir
Jólaundirbúningurinn er í fullum gangi þessa dagana.
Sumir hafa þegar lokið öllu, en flestir eru rétt að byrja.
Sigríður Kalmannsdóttir í Keflavík er mikil jólamanneskja
og hún er löngu búin að koma heimili sínu í jólabúninginn.
Tónlistarskóli Njarðvíkur
Jólatónleikar
Jólatónleikar
verða sem hér segir:
Laugardaginn 16. desember kl. 17:00
Fram kemur m.a. lúðrasveitin, eldri deild auk
annarra samleiksatriða.
Sunnudaginn 17. desember kl. 15:00
Ásamt þessum tónleikum koma fram m.a. forskóla-
og Suzuki nemendur auk annarra samleiksatriða.
Báöir tónleikarnir fara fram í Ytri-
Njarðvíkurkirkju og er aðgangur ókeypis.
Jólafrí hefst mánudaginn 18. desember.
Kennsla hefst aftur samkvæmt stundaskrá fimm-
tudaginn 4. janúar 1996.
Skólastjóri
Víkurfréttir heinisóttu Sig-
ríði í byrjun desember og
fengu að kynnast jólaundir-
búningi hennar..
Þegar maður keyrir í hlaðið
hjá Siggu er alveg ljóst hvaða
gluggar eru hennar. Margiit
jólaljósin og fallegar skreyt-
ingarnar lýsa manni leið að
litlu jólaveröldinni sem falin er
í íbúð í Heiðarholtinu.
Sigríður saumar mikið og
hefur búið til fjölda brúða,
bæði til jólaskrauts og annars
skrauts. „Það eru mörg ár síð-
an ég fór að hafa áhuga á að
sauma brúður. Ég hafði hins
vegar aldrei tíma til að sinna
þessu. Þegar ég bjó í Ameríku
keypti ég fullt af sniðum, ég
varð alveg sjúk þegar ég kom
inn í fyrstu búðina sem seldi
svona snið. Mörgum árum síð-
ar er ég svo að nota sniðin sem
ég keypti. Ég fæ lfka snið frá
vinum og kunningjum. Núna í
sumar fékk ég bók frá konu í
Toledo sem er heimsfræg í
dag. Hún byrjaði að teikna
snið mjög ung og vann út úr
bflskúmum hjá sér. Við urðum
miklar vinkonur og hún kveikti
svona í mér. Þarna var sér her-
bergi fyrir jólin, öll jólaefnin
þar, alls konar snið og efni.
Það var ofsalega gaman að
koma þar inn.“
Byrjaði að sauma 6 ára
-Hvenær byrjaðir þú að
sauma?
♦ Sigrtður í jólalandinu sínu í Heiðarholtinu.
„Ég var mjög ung þegar ég
byrjaði að sauma. Ætli ég hafí
ekki verið svona 6 ára þegar ég
saumaði fyrst á dúkkuna mína.
Ég klippti efnið til sjálf og
saumaði í höndunum.
Sigríður býr ekki aðeins til
brúður fyrir jólin, heldur líka
allt skrautið á trénu sínu. „Þetta
er nú bara eitthvað sem mér
datt f hug. Ég nota alls kyns af-
ganga, blúndu, hnetur, kart-
öflupoka og margt fleira. Ég er
líka mjög hrifin af þvf að
þræða poppkorn upp á band og
skreyta tréð þannig. Ég hugsa
alltaf sem svo að það hljóti að
vera hægt að nýta allt. Ut úr
einni gerð af blúndu fékk ég
t.d. þrjú munstur sem ég nota í
jólaskraut. Svo hekla ég líka
stjörnur á tréð. Galdurinn er að
nota ímyndunaraflið og sjá út
hluti sem ekki eru augljósir."
Meðfæddur hæfíleiki
Sigríður hefur aldrei lært
neitt í saumaskap nema af
sjálfri sér. Hún segir að senni-
lega sé þessi hæfileiki með-
fæddur. en bætir svo við að lík-
lega geti allir sem kunna á
saumavél gert þetta. „Ég hef
aldrei lært neitt, en áhuginn er
svo mikill. Ég er alltaf að
skoða tuskur og hugsa með
mér hvað ég geti gert úr þessu
og hinu.“
-Saumarðu bara fyrir sjálfa
þig?
„Mikið af þessu á ég sjálf, en
svo bý líka til t.d. jólagjafirnar
handa skyldfólki mínu. Ég hef
selt svolítið og fólk er mjög
Fiskverkendur - bændur - iðnrekendur
Framleiðum ódýra veggja- og loftklæðningu úr lituðu stáli.
Timbur og stál hf._,
5 Smiðjuvegi 11, Kópavogi, sími 564 2940 og 554 5544 , fax 554 5607
Sendum
vvbskiptavinum
okkar og
Suburnesjamömnum
öllum bestujóla- og nýársóskir.
Olafur Þorsteinsson og Co. hf.
Reykjavík.