Víkurfréttir - 14.12.1995, Page 18
JÓLABLAÐ 1995
VlK'URFRÉTTIR
Rotaryklúbbur Keflavíkur:
Menningar fyrir
hugvit og framtak
- á 50 ára afmæli klúbbsins
♦ Gtiðmundur Bjömsson varaforseti Itjá Rotary
afhendir Guðjóni Ormssyni viðurkenninguna fyrir
hugoit og framtakssemi.
♦ Gunnar Eðvarðsson tekur við viðurkenningu
fyrirhönd Hrafnhildar Njálsdóttur fyrir fram-
leiðslu á hársnyrtivörum úr íslenskum jurtum.
Rotaryklúbbur Keflavíkur
veitti nýverið þrjár við-
urkenningar fyrir hugvit og
framtak. Viðurkenningarnar
eru veittar í tilefni af 50 ára
afmæli klúbbsins sem var
stofnaður 2. nóvember 1945.
Hársnyrtivörur
úr íslenskum jurtum
Hrafnhildi Njálsdóttur er
veitt viðurkenning fyrir hugvit
og framtak við þróun og fram-
leiðslu hársnyrtivara úr íslensk-
um jurtum. Hrafnhildur er fædd
í Keflavík 18.október 1959 og
lauk námi í hárgreiðslu árið
1981. Hrafnhildur starfaði í
Danmörku árin 1986 til 1990
þar sem hún kynntist hársnyrti-
vörum sem einstaklingur fram-
leiddi og hún sá að fleiri en
stóru alþjóðarisarnir gátu fram-
leitt góða vöru. Hugmyndin að
þvf að prófa slíkt sjálf varð til á
þessum árum og mótaðist frek-
ar eftir að hún kom heim.
Með aðstoð Kolbrúnar
Björnsdóttur grasalæknis hefur
Hrafnhildur prófað sig áfram
með ýmsar jurtablöndur,
grunnsápur og olíur. Sem dæmi
um jurtir sem eru notaðar má
nefna vallhumal, blóðberg,
baldursbrá, fjallagrös og birki.
Fyrir tveirum árum fór þró-
unarvinna af stað í eldhúsinu
heima og í júní sl. kom fram- !
leiðslan fyrst á markað. Undir-
tektir hafa verið mjög jákvæðar
og nú framleiðir Hrafnhildur
fimm tegundir af sjampóum og
eina af hárnæringu undir heit-
inu Jurtagull. Fleiri tegundir
eru væntanlegar.
Mikið er lagt upp úr gæðum
vörunnar og eru gæði íslenskra
jurta talin meiri en sambæri-
legra jurta frá nágrannalöndum.
Smekklegar umbúðir, sem
Hrafnhildur hefur hannað sjálf
og framleiddar eru sérstaklega
fyrir jurtagull, hafa vakið at-
hygli.
Hrafnhildur hefur með
þessu framtaki sýnt mikinn
dugnað og frumkvæði, öðr-
um til eftirbreytni.
Hugvit og framtakssemi
á ýmsum sviðum
Guðjón Ormsson hlýtur við-
urkenningu fyrir hugvit og
framtakssemi til margra ára við
þróun og smíði fjölmargra
hluta.
Guðjón fæddist í Hafnarfirði
3. ágúst 1920 og er því nýlega
orðinn 75 ára. Hann er iærður
rafvirkjameistari og fluttist til
Njarðvíkur 1970.
Guðjón hefur í gegnum árin
unnið að ýmsum verkefnum og
verið þekktur fyrir að fara
ótroðnar slóðir í hönnun og
smíði og eftir hann liggja ýmis
Óskum félögum okkar
og oörum
Suðurnesjamönnum
ftlcöUcijt ú jólfl og
fntéflílfii liunifliiði ávs
meö þökk jyrir
samstarfiö á árinu
sem er að líða.
Tðnsveinafélag
Suðurnesja
♦ Valgerður
G. Eyjólfs-
dóttir og
Garðar
Ólafsson
taka við
viðurkenn-
ingunni fyrír
Grip-lásinn.
VF/myndir:
Oddgeir
verk sem munu gagnast landi
og þjóð um ókomin ár.. Eitt
meginverkefni Guðjóns undan-
farin ár hefur verið þróun líf-
rænnar gervibeitu til línuveiða í
samstarfi við Jóhannes Pálsson.
Danskur aðili hefur einnig að-
stoðað við verkið og prófanir
þar og hér heima lofa góðu. I
tengslum við við þetta hefur
Guðjón einnig unnið við þróun
beitingarvélar, öngulhlífar sem
kemur í veg fyrir að línuönglar
flækist saman og sérstaks spils.
Verkefni þetta er nú í uppnámi
sökum fjárskorts.
Ein af uppfinningum Guð-
jóns er sérstaklega einfalt og
snjallt lok á málningardósir til
þess að strjúka af penslum á.
Fjöldaframleiðsla á því fer nú
sennilega að fara af stað í Dan-
mörku. Þá hefur hann þróað
skaköngulinn Gretti, sem fram-
leiddur hefur verið á vernduð-
um vinnustöðum í Keflavík og
Akranesi og þannig hafa skap-
ast störf fyrir einstaklinga sem
eiga ekki auðvelt með að fá
vinnu við hæfi. Margt fleira
hefur komið úr smiðju Guðjóns
sem of langt mál er að telja upp
hér og hann er enn að.
Guðjón Ormsson hefur
sýnt djörfung og þor í sínum
verkum og Ijóst að hann hef-
ur sýnt fordæmi og elju öðr-
um til fyrirmyndar.
Griplásinn til hagræðing-
ar í sjávarútvegi
Valgerður G. Eyjólfsdóttir
og Garðar Olafsson hljóta við-
urkenningu fyrir hugvit og
framtak við þróun og fram-
leiðslu á lásnum Grip.
Valgerður er fædd í Njarðvík
4. mars 1955 og Garðar í
Keflavík 20. júní 1962. Þau
hafa búið og starfað hér á Suð-
urnesjum og bæði verið m.a. til
sjós. Sl. tíu ár hefur Garðar
starfað hjá Slökkviliðinu á
Keflavíkurflugvelli og frístund-
irnar farið í þróunarvinnuna.
Valgerður hefur ekki getað
unnið utan heimilis síðan 1991
að hún lenti í alvarlegu slysi.
Hún hefur tekið virkan þátt í
vinnu við þróun og framleiðslu
á Grip-lásnum.
Meginverkefni þeirra hjóna
hefur verið þróun og fram-
leiðsla á ýmsum gerðum lása
sem munu spara hagsmunaaðil-
um í sjávarútvegi ómældan
kostnað og auðvelda alla vinnu
í skipum er varðar splæsingar
og hnýtingar á flotteinum, lín-
um og fleiru. Náinn samstarfs-
maður þeirra frá upphafi hefur
verið Gestur Eyjólfsson, bróðir
Valgerðar.
Frumgerð af lásnum Grip var
send í hönnunarsamkeppni
árið 1991, við lítinn orðstýr.
Síðan þá hefur verð lögð mikil
vinna í þróun lássins og hann
breyst mikið. Hugmyndin er
snjöll og í dag birtist hag-
kvæmnin ekki síst í einfald-
leika lássins og margir munu
segja; því datt mér þetta ekki í
hug.
Mikill tími hefur farið í að
þróa og smíða tæki til fram-
leiðslunnar, því þó lásinn virð-
ist einfaldur þá er smíðin mikil
námkvæmnisvinna þar sem
brot úr millimetra skiptir máli.
Hampiðjan hefur sýnt lásn-
um mikinn áhuga og stutt vel
við bak þeirra hjóna að undan-
förnu. Lásar eru nú komnir um
borð í skip til prófunar á styrk-
leika og þoli og hafa reynst
mjög vel. Framtíðarmöguleik-
arnir virðast því miklir.
Ýmislegt fleira er á döfinni
hjá Valgerði og Garðari, m.a.
ýmsar útfærslur á lásnum, en
tíma- og fjármagnsskortur
hamlar frekari þróun um sinn
a.m.k.
Forsvarsmenn Grips hafa
sýnt dirfsku og þor og sýnt að
með vilja og elju er hægt að
skapa mikil verðmæti.
Félagar í Rotarýklúbbi
Keflavfkur er 59 í dag. Stjórn
skipa Guðni Jónsson forseti,
Grétar Grétarsson gjaldkeri,
Ólafur B. Ólafsson ritari, og
Þorvaldur Arnason stallari.
Fyrsti forseti klúbbsins var
Alfreð Gíslason og stofnendur
voru 13. Af þeim lifa fimm, en
það eru Karvel Ögmundsson,
Kristinn Reyr, Huxley Ólafs-
son, Egill Þorfinnsson og Ólaf-
ur Einarsson.
Sendum félagsmönnum okkar
og öðrum Suðurnesjabúum
bestu óskir um
gícöiícg jól,
gutt og ftvroivlí Uotnattiit áv
og þökkum samstarfið á árinu sem er að liða.
Verkalýðs- og sjómannafélag
Keflavíkur og nágrennis