Víkurfréttir - 14.12.1995, Page 19
WKURFRÉTTIR
JÓLABLAÐ 1995
löavöllum 3 - Keflavík - sími 421 5959
Nýtt umhverfisskipulag í gamla bænum
og á Hafnargötu í Keflavík:
Fjölmennt á
♦ Frú kynningarfundinum í
KK-salnum þar sem nýtt um-
liverfisskipulng t gntnla liænuin
og við Hafnargötu var kynnt.
VF-inynd/pket.
kynningarfundi
Um eitthundrað manns
nuettu á kynningarfund
um nýtt umhverfisskipulag í
gamla bænuni og á Hafnar-
götu í Keflavík, sem fram fór
í KK-salnum sl. fimmtudag.
Kynnt var verðlaunatillaga
Arkitektastofu Suðurnesja og
skýrðu arkitektarnir Bjarni
Marteinsson og Kjartan Jóns-
son tillögur sínar á stórum skjá.
Ellert Eirfksson, bæjarstjóri
flutti inngangsorð og sagði frá
undanfara og ástæðum hug-
myndasamkeppninnar. Þar
sagði hann m.a. að oft hafi ver-
ið sagt að Hafnargatan í Kefla-
vík væri ein Ijótasta verslunar-
gata í heimi en með þessum
framkvæmdum ætti það að
breytast.
Margir verslunar- og fyrir-
tækjaeigendur á Hafnargötunni
voru meðal fundargesta en
einnig bæjarbúar úr gamla
bænum og víðar.
Það kom fram á fundinum að
þessi tillaga væri ekki endanleg
og þess vegna væri verið að
kynna hana.
Arni Stefánsson, formaður
skipulagsnefndar sagðiað fram-
kvæmdir hæfust í vetur en ekki
væri ákveðið hvar yrði byrjað,
á Hafnargötunni eða í gamla
bænum.
Anton Jónsson frd Húsagerðinni afhenti Skúla Skúlasyni, fortn.
Húsnæðisitefndar Reykjanesbæjar, lyklana að íbúðunum að
Hjallavegi. VF-ntynd/Hiltnar Bragi.
** Tjarnargötu 17 • Keflavík • sími 4212061
Síðustu
íbúðirnar fyrír
húsnæðisnelnd
Njarðvíkur
Húsagerðin afhenti á föstu-
dag tjórar félagslegar fbúðir í
nýju húsi að Hjallavegi 15 í
Njarðvík. Um er að ræða
samskonar hús og Húsagerðin
byggði við Vatnsholt í
Keflavfk. 1 húsinu eru fjórar
félagslegar íbúðir sem hús-
næðisnefnd Reykjanesbæjar
hefur þegar úthlutað. Húsið er
það síðasta setn húsnæðis-
nefnd Njarðvíkurbæjar samdi
um byggingu á. Það var Skúli
Skúlason, formaður húsnæðis-
nefndar sem veitti íbúðunum
viðtöku og tók við lyklavöl-
dum af Antoni Jónssyni verk-
taka.
8315?»®'
m t-.wí
lim ia
•®83 y&3®83
☆
f
RAFBIIÐ R0
Hafnargötu 52
Sími 421 3337