Víkurfréttir - 14.12.1995, Page 22
JÓLABLAÐ 1995
VÍKURFRÉTTIR
Guðna Ingimundarson þekkja
allir Garðmenn. Hann er
þjóðsagnarpersóna í lifanda
lífi. Guðni hefur tekið sér
ýmislegt fyrir hendur um
dagana og oftar en ekki á
trukknum með bómuna.
Gemsinn er búinn að snúast
í gegnum árin og á dögunum missti að-
komumaður, sem hafði verið í Garðinuni
fyrir áratugum, það út úr sér; „Er þessi
ennþá á ferðinni“. Við hittum Guðna að
máli í bílskúrnum að Borgartúni. Betta er
aðeins meira en bílskúr því þarna hefur
Guðni gert upp fjöldann allan af gömlum
vélum sem eru eins og nýjar og fara allar
í gang við fyrsta snúning. Guðni sam-
þykkti viðtal og því var blaðamanni og ,
Ásgeiri Hjálmarssyni, sem var í för með
blaöamanni, boðið inn í kaffi. Viðtalið var
tekið fyrir afmælisblað Björgunarsveitar-
innar Ægis sem kom út síðasta vor og er
hér birt með góðfúslegu leyfi þar sem
blaðinu var eingöngu dreift í Garði og
vilji til að fleiri fengju að njóta viðtalsins
við Guðna.
OFT VERU NÆRRIÞVÍ
AÐ RLOTNA í SKÓNA
♦ Guðni t „aksjón" á trukknum
í Snndgcrði.
VF-myndlHilmar Bragi.
í kaf.
Þegar eldurinn hafði kraum-
að lengi í skipinu fóru að heyr-
ast hvellir. Þá var eldurinn
kominn í skotfærin. Það stóð
síðan yfir skothríð í hálfan
mánuð og setja þurfti vörð við
skipið. I eldinum brann hell-
ingur af timbri sem Bragi var
búinn að búnta og ætlaði að
flytja upp á land“.
- Guðni Ingimundarson í hressilegu spjalli um ævintýrin
í kringum strönduð skip á Garðskaga og Keykjanesi
Viðtal: Hilmar Bragi Bárðarson
SKELKAÐUR SKIP-
STJÓRI MISSTI
FLUTNINGASKIP í
FLÖSINA
Það er ekki komið að tóm-
um brunninum þegar Guðni er
annars vegar og þar sem hægt
væri að skrifa heila bók um
það sem á daga Guðna hefur
drifið var ákveðið að tala um
skipsströnd og ævintýrin í
kringum þau.
Eitt stærsta skipið sem
strandaði hér í Garðinum á
öldinni var flutningaskipið
Hontenströmm. Það var í
ttutningum fyrir breska herinn
og var að koma með kox til
landsins. Guðni man vel eftir
öllum aðdragandanum að
strandinu og söguna í kringum
skipið. Gefum Guðna orðið:
„Þetta var á vertíðinni 1943 og
á því tímabili sem skipin
sigldu með öll Ijós slökkt útaf
stríðinu. Skipið er að koma
utan úr heimi með koxfarm og
er rétt komið fyrir flösina þeg-
ar það mætir flota af skipum
undir fullum Ijósum. Þegar
skipstjórinn sér alla Ijósadýrð-
ina bregður honum og slær af
en missir þá skipið upp í flös-
ina. Þetta reyndust þá vera
línubátarnir úr Keflavík á leið í
róður. Skipið strandaði í miðri
flösinni norðan við hausinn.
ÞRÍR TUNDURSPILL-
AR REYNDU
AÐ LOSA SKIPIÐ
Þetta var 3000 tonna skip og
þrír breskir tundurspillar
reyndu mikið til að bjarga því
en það tókst ekki. Það var síð-
an ekki fyrr en um sumarið
sem menn keyptu skipið til að
bjarga úr því verðmætum en þá
var framendinn farinn af því í
briminu. Það var Vélsmiðjan
Hamar í Reykjavík sem keypti
♦ Valborgá strandstað í Garðskagaflös.
Þetta cr eina myndin sem er til af strönduðu
skipi á flösimti.
Mynd: Ásgcir Hjálmarsson.
♦ Innfellda inyndin cr af tmkknum lians
Gtiðua íflösini fullum'af jámi.
skipið og bjargaði úr því skrúf-
unni, öxli og katli og tveimur
til þremur bílhlössum af dósa-
mat.
Bragi Einarsson í Nýjabæ
var með trillubát í flutningum
fyrir Hamar og hann keypti
síðan skipið af vélsmiðjunni.
Hann var meira og minna allt
sumarið í skipinu að rífa og
Urðarfell er t.a.m. byggt úr
timbri úr skipinu. Þá var
óhentju af koxi ekið úr skipinu
en það var notað til kynding-
ar“.
TÓK KVEIKJULOKIÐ
AF OG BÍLLINN
FÓR í KAF
- Það er til fræg saga af mik-
illi skothríð úr skipinu. Hvern-
ig vildi hún til?
„Þannig var að í lest skipsins
voru skotfærabirgðir. Þegar
Bragi var að rífa timbrið úr
skipinu kom undan því mikill
korkur sem var einangrun
skipsins. Hún féll að sjálf-
sögðu niður og yfir skotfærin.
Eitt sinn vildi það til að það
komu Ameríkanar út á skaga
og höfðu með sér bát. Þetta
voru tveir strákar og tvær
stelpur. Þau fóru á bátnum yfir
í skipið. Það vissi síðan enginn
fyiT en um nóttina, að það fór
að leggja reyk frá skipinu og
síðan eld, að kveikt hafði verið
í skipinu. Bragi hafði hins veg-
ar frétt af ferðum Kananna og
þeir geymdu bílinn í fjörunni.
Hann tók því kveikjulokið úr
bílnum svo þau komust ekki
burtu á bílnum og hann flæddi
KEYPTU
TVÖ SKIP ÁRIÐ 1950
Guðni og Guðmundur bróðir
hans festu kaup á tveimur skip-
um í Garðskagaflös. Þau
strönduðu bæði árið 1950. Það
eru að sjálfsögðu sögur í kring-
um þau skip.
•Giíðm' flutti tugi tonna af
brotajámi úr flösinni. Hér er
trukkurinn fullur afjámi „á
leið í land".
„Fyrra skipið sem við keypt-
um í flösinni var Sundswall,
þýskt flutningaskip frá Ham-
borg. Þetta var garnalt skip
byggt árið 1886. Þannig var að
þetta skip var fullt af salti sem
átti að fara til saltfiskverkenda
við Faxaflóasvæðið. Menn
voru farnir að bíða eftir skip-
inu. Það var mokveiði og allt
orðið saltlaust í landi. Skipið
var nokkra daga á eftir áætlun
og mönnum létti því mikið
þegar fréttist af því utan við
Grindavík og síðan mættu
menn á Voninni, sem voru að
fara í línuróður, skipinu við
Stakkinn en það átti að fara til
Keflavíkur. Tveimur tímum
síðar fréttist síðan af skipinu
þar sem það er strand á
flösinni. Skipið hafði þá snúið
við og siglt í strand. Það var