Víkurfréttir - 14.12.1995, Page 23
VlffURPRÉTTIR
JÓLABLAÐ 1995
norðan bræluskratti þegar
þetta gerðist. Menn heyrðu
síðar að skipstjórinn hafi feng-
ið þau skilaboð að skipið ætti
ekki að koma aftur út“.
EKKI SALTKORN
UM BORÐ
- Það var slæmt ástand í
landi og saltleysið var farið að
koma illa við marga verkendur
enda mokfiskirí eins og þú
segir. Var ekki hægt að bjarga
salti úr skipinu?
„Eg komst um borð í skipið
kl. ellefu um morguninn. Þá
var gat á skipinu og ekki salt-
korn um borð. Það hafði þá
allt runnið út um gatið“.
- Hitt skipið sem þið keypt-
uð í flösinni?
„Það var skoskur lúðuveið-
ari, Invercould. Fyrst þegar ég
kom á staðinn viídu þeir ekk-
ert með mig né Þorsteinn Jó-
hannesson hafa og sögðust
ætla út á flóðinu. Skipið losn-
aði hins vegar aldrei alveg og
rak upp með rifinu. Þetta skip
var einn af gömlu línuveiður-
unum, um 200 tonna skip. Sig-
urbergur Þorleifsson bjargaði
úr skipinu um tveimur bíl-
förmum af lúðu.“
- Þið bræðurnir keyptuð
þessi tvö skip. Eftir hverju
voru þið að sækjast?
„Það þóttu mikil verðmæti í
þessu og aðallega var það nú
koparinn sem borgað var fyrir
hátt verð þá. Síðar var það
einnig brotajárn sem við
björguðum úr fjörunum".
ÆVINTÝRIN í JÓNI
BALDVINSSYNI RE
Það var óhemja af brotajárni
sem Guðni ók á trukknum úr
flösinni og upp á kambinn.
Það gefst hins vegar ekki tími
til að ræða um brotajárnið á
skaganum því ef þeir bræður
Guðni og Gvendur hafa ein-
hvertímann komist í hann
krappann þá var það úti á
Reykjanesi um borð í nýsköp-
unartogaranum Jóni Baldvins-
syni RE.
GVENDUR FASTUR Á
BAKVIÐ SVEIFARÁS
„Við vorum stundum komn-
ir að því að blotna í skóna. Það
stóð stundum tæpt og var
stundum fallið einum of mikið
að. Ákafinn var það mikill í
því að rífa. Dekkst var það
þegar Gvendur lokaðist á bak-
við sveifarásinn á Jóni Bald-
vinssyni RE. Skipið lá á
hvolfi. Allar legur voru úr
kopar og skipið lá það mikið
aftur að við komust aldrei að
því að berja aftasta legubolt-
ann úr. Það var mannhol til að
komast bakvið tappann og
Gvendi dettur í hug að fara í
gegn og komast þannig hinum
megin við tappann. Um leið
og hann slær leguboltann úr
snýst tappinn hálfhring og lok-
ar útgönguleiðinni.
SJÓRINN KOMINN
VEL UPP í MITTI
Það var hörkuaðfall og ég
alveg vitlaus. Við vorum fjórir
þarna og ég ákveð að hlaupa
upp og byrja að brenna fyrir
ofan hann til að reyna að kom-
ast niður á Gvend. Þegar ég
byrja að brenna kemur hins
vegar í Ijós að það er steypa
undir og það vissi enginn hvað
hún var þykk. Eg fór því niður
aftur og við reyndum að vega
tappann og fengum hann af
stað en aldrei nóg. Þá myndi ég
allt í einu eftir þvf að þar voru
gamlar tréblakkir í skipinu og
þarna var nóg af köðlurn. Ef
við fengjum nógu mikinn kraft
á tappann þá myndi þetta
takast. En þar sem tappinn
skorðaðist við stimpilstöngina
var mesta kúnstin að fá hana
frá. Eina leiðin var að brenna
gat fyrir stimpilstöngina og láta
hana ganga inn til Gvendar.
Þetta tókst og við sluppum en
þá var sjóinn kominn vel upp í
mitti á Gvendi en skipið fór á
kaf á flóðinu".
- Þið hafið ekki verið hrædd-
ir?
„Það heyrðist ekki múkk í
Gvendi allan tímann. Honum
var alveg sama þó hann vissi
það að allt færi í kaf‘.
SKRÚFANSPRENGD
AF MEÐ DÝNAMÍTI
Guðni sagði að þetta væri
ekki í eina skiptið sem það hafi
staðið tæpt um borði í Jóni
Baldvinssyni RE. Um tíma hafi
þeir verið með kláf úr fjörunni
og um borð í skipið og það hafi
oft brotið á tunnunni á leið í
land.
Það var ævintýri með skrúf-
una af Jóni Baldvinssyni RE.
Skrúfuna tóku þeir þannig að
skipinu að þeir brenndu rónna
aftanaf og skutu síðan skrúf-
unni af með dýnamíti. „Þetta
gekk eins og í sögu,“ segir
Guðni og bætir við:
„Það gekk hins vegar á ýmsu
þegar við vorum að flytja
skrúfuna í land. Við hengdum
skrúfuna neðan í fimmtán olíu-
tunnur og ætluðum að fleyta
henni til Grindavíkur. Það gekk
vel fyrstu tvo tímana en svo
brældi á suð-austan og var
beint í nefið. Svo fór að
dimma. Við vorum komnir fyr-
ir bergið og inn á Staðarvíkina
og sáum Ijósin f Grindavík
þegar það brotnaði þrýstilega á
skrúfunni á bátnum hjá okkur.
Það var ekki um neitt annað að
ræða en að stoppa. Við byrjuð-
um strax að kynda bál. Við fór-
um að veita því athygli að
tunnumar voru alltaf að lækka í
sjónum og við sáum koma
gusur upp úr þeim. Þá þoldu
tunnurnar ekki álagið og
spmngu. Skrúfan sem var 2970
kfió lyfti sér þá ekki nóg og
tunnurnar sprungu undan þrýst-
ingnum. Þegar allar tunnurnar
• Jón Baldvinsson RE á strandstað undir Keflavíkurbergi á Reykjanesi. Togarinn var aðeins tveggja
og Itálfs árs þegar liann strandaði. Brxðumir Guðni og Guðmundur lngimundarsynir keyptu skipið.
KOKKURINN SKILAR
SÉR Á MORGUN!
Menn drifu sig í land í hvelli
og þegar menn voru komnir vel
á veg upp flösina vildi skip-
stjórinn fullvissa sig um að allir
væru komnir frá borði. Þá vant-
aði kokkinn. Þeir sem vissu
betur sögðu að hann hafi dáið
áður en skipið strandaði. „Þá
skilar hann sér á rnorgun,"
sagði skipstjórinn. Allir komust
í land og Isak vitavörður tók á
móti mönnunum.
Daginn eftir var skipið horfið
en farmurinn allur kominn á
land en þar var timburfarmur
sem skipið flutti. Kokkurinn
kom einnig í leitirnar."
Þessa frásögn las Guðni í
Lesbók Morgunblaðsins á árun-
um upp úr 1950 en það sem að
sjálfsögðu vakti athygli Guðna
var að í skipinu voru jafnframt
tvö tonn af dýnamíti sem var
staflað inn á milli timburfarms-
ins. Það dýnamít hefði mátt
nota á margar klappir, hugsaði
Guðni með sér...
0Svona var Jón Baldvinsson RE þcgar þeir hræður voru að vinna við að rífa koparlegur og fleira úr
skipinu og þeir bræður komust íþað krappasta þegar Gvendur festist á bakvið sveifarásinn og það
dýpkaði liratt sjórinn inni í skipinu.
voru sprungnar var báturinn
kominn upp á endann. Ég hljóp
afturá með öxi og stóran slag-
hamar en í því slitnaði vírinn
og skrúfan sökk og er þarna
ennþá. Nokkru síðar fékk ég
Einar Dagbjartsson úr Grinda-
vík til að koma með mér með
slæðu til að slæða upp vírinn en
hann kom ekki upp. Menn
komu með þær tilgátur að
skrúfan og vírinn haft sokkið í
leir á þessum slóðum“.
GÁTUM GRAMSAÐ
í NETALESTINNI
- En ævintýrunum í kringum
togarann var ekki lokið?
„Nei. Við áttum fjóra
gaskúta um borð og ennþá voru
tveir þeirra fullir. Við fórum
því til að sækja kútana. Þegar
við Gvendur erum komnir um
borð vorum við vissir um að
við gátum eitthvað gramsað í
netalestinni. Þetta var gat um
fermetri í þvermál sem við fór-
um niður um. Við urðum varir
við það að það voru að koma
skvettur í gatið. Allt í einu
heyrðum við kvæs og fruss í
kviku og allt í einu gengur mik-
il skvetta yfir skipið og við sjá-
um skrúfuna á bátnum sem við
komum á yfir gatinu og það
kom góð gusa niður gatið á
okkur. Þarna vorum við öruggir
á að báturinn væri kominn upp
í grjót. Þegar upp var komið
kom í Ijós að allir spottarnir
voru slitnir en báturinn hékk á
einni keðju. Við vorum fljótir
að korna okkur í burtu“.
ÞETTA LÍKA
FERLÍKI STRANDAÐ
Á fyrrihluta aldarinnar og á
fyrstu áratugunum strönduðu
fjölmörg skip í fjörunum hér
við Garðinn. Þessa sögu kann
Guðni af strandi norska gufu-
skipsins Scandia sem strandaði
á flösinni 21. febrúar 1905:
„Maður nokkur var að koma
neðan úr Gerðum og á leið til
síns heima út í Garði. Þar sem
það var frost fór hann sýkið og
þegar hann kemur upp á Ut-
skálahólinn heyrir hann skips-
flaut. Manninum datt ýmislegt í
hug þar sem það var útsynning-
ur. Hann ákveður að hraða sér
heim og kemur við hjá Lauga á
Blómsturvöllum. Þeir heyra
flautið aftur og er ákveðið aða
fara niður f flös. Þegar þeir
koma í flösina sjá þeir þetta
líka ferlíki strandað. Þeir
komust að síðu skipsins en ekki
með nokkru móti um borð.
Laugi var forsjáll maður og
hafði tekið með sér band sem
hann hafði utan um sig miðjan.
Eftir að hafa barið dallinn að
utan án þess að fá svar koma
þeir þó bandinu um borð og ná
að komast upp á því. Þegar um
borð var komið urðu þeir ekki
varir við nokkurn mann og var
því farið að leita að mannabú-
stöðum sem fundust fljótt. Þar
voru allir sofandi og gekk illa
að vekja mannskapinn. Það
hafðist þó um síðir og var á-
kveðið að fara í land.
Skýringin á þessum fasta
svefni hjá allri áhöfninni var sú
að fjórum sólarhringum áður
hafði komið leki að skipinu og
höfðu áhafnarmeðlimir staðið í
austri þar til skipið strandaði.
Þegar skipið var komið í strand
og menn voru búnir að fullvissa
sig um að það gæti ekki sokkið
gátu menn lagt sig áhyggju-
lausir.