Víkurfréttir - 14.12.1995, Side 26
JÓLABLAÐ 1995
VÍKURFRÉTTIR
Hörpuútgáfan sendir frá sér
tíu bækur fyrir þessi jól.
Hvíldarluus ferð inn í
drauminn eru smásögur eftir
Matthías Johannessen ritstjóra.
í bókinni eru 22 smásögur og
stuttir þætlir þar sem bestu
kostir Matthíasar sem skálds fá
notið sín.
Ragnar í Skaftafelli - frá-
sagnir og æviminningar.
Helga Einarsdóttir skráði. Bók-
in segir frá lífi og störfum
fólksins í einni afskekktustu
sveit þessa lands og þrotlausri
baráttu þess við óblíð náttúru-
öfl. Einnig frá náttúruperlunní
Skaftafelli, en Ragnar var fyrsti
þjóðgarðsvörðurinn og mikill
áhugamaður um stofnun þjóð-
garðsins og friðun hans. Fjöldi
mynda prýða bókina.
Skáldkonur fyrri alda, eftir
Guðrúnu P. Helgadóttur, ný út-
gáfa. Höfundur byggir verk sitt
á traustum sögulegum grunni
og ítarlegri könnun heimilda. A
látlausan og alþýðlegan hátt
tekst henni að skrifa listræna
bók, sem er í senn skemmtileg
aflestrar og girnileg til fróð-
leiks.
Lífsgleði, viðtöl og frásagn-
ir. Þórir S. Guðbergsson
skráði. Sex íslendingar líta um
öxl og rifja upp liðnar stundir.
Þau sem segja frá eru: Guð-
laugur Þorvaldsson, f.v. sátta-
semjari, Guðrún Halldórsdóttir,
skólastjóri, Úlfur Ragnarsson
læknir, Fanney Oddgeirsdóttir,
húsmóðir á Akureyri, Daníel
Ágústínusson f.v. bæjarstjóri á
Akranesi og Þóra Einarsdóttir
segir frá uppvexti sínum og
hjálparstarfinu á Indlandi.
Furður og feluleikir limrur
og Ijóð í sama dúr, nefnist ný
bók eftir Jónas Árnason, rithöf-
und. Hinir fjölmörgu lesendur
þessa vinsæla höfundar fá hér
nýja bók, sem ekki mun valda
þeim vonbrigðum.
Orð dagsins úr biblíunni,
Ólafur Skúlason biskup valdi. I
bókinni eru ritningargreinar
fyrir hvern dag ársins. Kær-
komin lesning og uppflettibók.
Litla skólahúsið, smásögur
eftir bandaríska höfundinn Jim
Heynsen, sem korn hingað til
lands 1994 og las þá úr verkum
sínum. Hann hefur sent frá sér
smásagnasöfn og ljóðabækur
sem njóta vaxandi vinsælda.
Gyrðir Elíasson valdi sögurnar
og íslenskaði.
Draumarnir þínir, ný ís-
lensk draumráðningabók. Þóra
Elfa Björnsson tók saman efni
bókarinnar. Þá eru einnig nýjar
þýddar skáldsögur eftir höf-
undana Jack Higgins og Bodil
Forsberg.
Helga K. Einarsdóttir
Endurmínninggr og Irúsugnir
11111,1 i ,4 ruiiíon
Furður og
feluleikir
Limrur og ijóú i sama dúr
Vistmenn
óska öllum þeim sem
sjnt hafa þeim vinarhug
°g glatt meö heimsóknum,
glebilegra jóla og farsœldar á njju ári.
Gub blessi ykkur öll.
Oskum öllum þeim sem sjnt
hafa okkur vinarhug og
glatt meb heimsóknum,
gledilegra jóla ogfarsœldar
á njju ári.
Gub blessi ykkur öll.
Vistmenn á
Hlévangi.
♦ Egill Ólafsson, umboðsmaður Samvinnuferða á Suðurnesjum var
einn afmörgum Suðurnesjamanna semfóru t golfferðir með Golf-
ferðaklúbbi SL. A myndinni er liann í svaka „svíngi" á hinum frá-
bæra velli Gahvay Bay á vesturströnd Irlands, en hann er í eigu
ltins kunna t'rska kylfings, Christy O’Connor jr.
Golfferð til Thailands
Samvinnuferðir Landsýn
bjóða nú í fyrsta sinn golf-
ferð til Thailands í janúar nk.
Um er að ræða þriggja vikna
ferð á mjög hagstæðu verði
og verður farið 18. janúar
1996.
Að sögn Kjaitans L. Pálsson-
ar, golfferðaklúbbsstjóra SL
verður gist á fyrsta flokks hót-
eli sem staðsett er í fallegum
garði, á hinni fögru strönd
Pattaya. Við hótelið eru tvær
sundlaugar, tennisvellir, mat-
sölustaðir, barir og fleira.
Fjölmargir golfvellir eru á
Thailandi og eru þeir einstak-
lega fallegir og vallargjöldin
eru mjög hagstæð.
Að sögn Kjartans mun SL
bjóða fjölbreytt úrval golfferða
á næsta ári, m.a. í vor. um og
eftir páska svo og næsta haust.
♦ Vallarkrakkarnir voru áltiigasamir íbakstrinum t Sigurjónsbak-
aríi.
Varnarliðskrakkar
í Sigurjónsbakaríi
Barnahópur ofan af Keflavíkurflugvelli kom í heimsókn í Sigur-
jónsbakarí nýlega. Fengu þau að skoða bakaríið og einnig að
reyna sig með deigið. Eins og sjá má á myndunum voru vallar-
krakkarnir áhugasamir í Islands-bakstrinum.
f
♦ Þessi unga dama cr ansi bakaraleg með Sigurjónsliiifti og útötuð í
hveiti. VF-myndir/libb.