Víkurfréttir - 14.12.1995, Page 33
Wkurfréttir
JÓLABLAÐ 1995
Jólatréssala
Kiwanis hafin
Hin árlega jólatréssala
Kiwanismanna er haf'in
og er að venju i áhaldahúsi
Keflavíkur við Vesturbraut.
Boðið er upp á úrval trjáa og
Kiwanismenn stefna að því að
selja um þúsund tré eins og
undanfarin ár en gerðirnar eru
aðallega Norðmannsþynur frá
Danmörku og fslenskt rauð-
greni og stafafura úr Skorra-
dalnum. Einnig er fáanlegt
rauðgreni í potti sem mörgum
finnst fallegt að setja fyrir
framan hús sín. Greni til
skreytinga er í miklu úrvali,
jólatrésfætur og einnig er hægt
er að fá krossa á leiði sem
Sinavik-konur útbúa.
Það er opið á Vesturbraut-
inni alla virka daga kl. 17-22
en um helgar frá 13 til 22.
Allur ágóði af jólatréssöl-
unni rennur að sjálfsögðu til
líknarmála en skammt er síðan
Kiwanismenn afhentu gjafir
fyrir á fjórðu milljón króna á
25 ára afmæli klúbbsins.
Aösent:
Við hættum að rífast
Oftsinnis hefur það koniið
fyrir okkur hjónin að
deilur hafa sprottið án þess
að þær í raun gerðu boð á
undan sér og skönimu síðar
deildum við um ástæður þess
að deilur risu! Eg hygg að
flest hjón þekki þetta af eigin
raun og margir líti á að þetta
sem nánast náttúrulögmál -
óhjákvæmilegt. En svo er nú
aldeilis ekki.
I lok nóvember var ég svo
lánsöm að vinkona mfn færði
mér bókina „Karlar eru frá
Mars, konur eru frá Venus" að
gjöf. Ég varð satt best að segja
hálf hvumsa við og spurði
hvað ég ætti svo sem að gera
við vandamálabók. Hvort eitt-
hvað væri að mínu hjónabandi.
En það kom fljótt á daginn að
þarna er engin venjuleg bók á
ferð. Ég las hana á tveimur sól-
arhringum og maðurinn minn
hefur lesið hana - og hún hefur
satt best að segja gert krafta-
verk.
Einfaldar en áhrifarfkar leið-
ir dr. John Gray, sem skrifaði
bókina, hafa sannarlega hrifið -
og stóraukið skilning okkar
hjóna á tilfinningum hvors
annars. Við erum betur með-
viðtuð þegar við erum á leið í
skotgrafir rifrildis og stoppum
áður en byssukúlum er hleypt
af . Það hrífur svo sannarlega.
Við skiljum tillfinningar hvors
annars betur. Mig langar í lok-
in að vitna í Gray: „Astin
blómstrar þegar karlar og kon-
ur samþykkja og viðurkenna
það sem er ólíkt með þeim.
Það er sannleikur.
S.J.
Frábær matur á Glóöínni
Starfsfólk Þvottahallarinnar hafði samband við blaðið. Það fór í
jólahlaðborð á Glóðinni nýlega og vildi skila sérstökum þökkum
til Arnar og hans fólks á veitingastaðnum. Maturinn hefði verið
frábær og þjónustan eftir því.
Sendum starfsmönnum
okkar svo og öllum
Suburnesjamönnum
bestu óskir um
gleðileg júl,
og gott og fœréœlt
Íi0iimnbt ár
Þökkum samstarfió
á árinu sem er aö Ivöa.
Dverghamrar
♦ Kiwanismcnn og börti með sýnishom af jólatrjáaúrvalimt íár. VF-mynd/pkct.
Fallegir köflóttir
jóladúkar í úrvali
SATIN NATTFOT OG SERIÍIR
VERÐ FRÁKR. 3.100.-
SÆNGIRVERASETT
• gamaldags bróderub
Verd frá kr. 3.850.-
• satínsœngurverasett
Verbfrá kr. 4.750.-
• bóniullardanitisk
Verð kr. 2.950.-
DráumalanÁ
Tjarnargötu 3 - Keflavík - sínii 421 385.5