Víkurfréttir - 14.12.1995, Qupperneq 40
JÓLABLAÐ 1995
VÍKURFRÉTTIR
Glæsilc? nærföt á dömuna
Einni? babydoll sett á ?óðu verði
Semelíu- o? perluskart í mjö? miklu úrvali.
Mi, slæður, töskur, seðlaveski o? handtöskur.
34 - ’Kefámá - <úttú 42/ 50/9
Keflavík og Njarðvík
í undanúrslit!
♦ Veronica Cook og Sigurður Ingimundarson, þjálfari Keflvíkinga.
Það verður nágrannaslagur í bikarúrslitum kvenna, en þá mætast
Njarðvík og Keflavík. VF/mynd-Hulda.
Lið Keflvíkinga og Njarð-
víkinga eru komin í 4ra
liða úrslit í bikarkeppni
kvenna. Þar með eiga stelp-
urnar góðan möguleika á því
að bæta upp skertan híut
Suðurnesjaíiða í bikarúrslit-
um þetta árið, því ekkert
karlaliðanna á svæðinu kom-
ust áfram.
Njarðvíkurstúlkur áttu ekki í
erfiðleikum með Valsara og
sigruðu 58-37 í tjögurra liða
úrslitunum sl. þriðjudagskvöld.
Njarðvíkurstúlkur hafa svo
sannarlega komið á óvart og
verður gaman að fylgjast með
hinu unga og efnilega liði
þeiiTa í toppslagnum.
I Grindavík mættust heima-
menn og Keflavík og sigruðu
gestirnir með yfirburðum, 54-
79. Jafnræði var með liðunum í
fyrri hálfleik og virtist leikur-
inn ætla að verða æsispenn-
andi. I lok fyrri hálfleiksins
tóku Keflavíkurstúlkur þó af
skarið og náðu forystunni.
Staðan í hálfleik var 36-22
Keflavík í vil. Keflavíkurstúlk-
ur komu ákveðnar til síðari
hálfleiks og má segja að þær
hafi tryggt sér sigur á fyrstu
mínútum þess hálfleiks með
því að raða niður körfunum, en
ekkert gekk upp hjá Grindavík.
Lykilmenn Keflavíkur, þær
Björg Hafsteinsdóttir, Anna
María Sveinsdóttir og Veronica
Cook sýndu frábær tilþrif á
köflum, en liðið lék allt vel,
sérstaklega í síðari háltleik. Hjá
Grindavík var Penny Peppas at-
kvæðamikil að venju, en þó
mátti sjá að hún átti í erfiðleik-
um gegn Cook. Peppas var
stigahæst hjá Grindavík með 21
stig, en Svanhildur Káradóttir
kom næst með 11. Hjá Kefla-
vík skoraði Björg Hafsteins-
dóttir 23 stig, en Veronica
Cook 19.
Cook var að leika annan leik
sinn með Kefiavík og við
spurðum hana hvernig henni
litist á?
„Mér líst mjög vel á aðstæð-
ur í Keflavík og mér hefur ver-
ið vel tekið. Satt best að segja
líður mér eins og heima hjá
mér, ég fell vel inn í hópinn.
Ég stefni að því að gera mitt
besta fyrir liðið og ég held mér
muni líka vel.“
-Ferðu heim um jólin?
„Nei, ég er svo nýkomin að
ég reikna ekki með því. Ég
mun líklega eyða jólunum með
liðinu og kynnast íslenskri
jólastemmingu. Mér líst vel á
það.“
-Hvað finnst þér um boltann
hér, er hann ólíkur þeim körfu-
bolta sem þú spilaðir í Banda-
ríkjunum?
„Háskólaboltinn úti er mun
grimmari og því finnst mér
ekki erfitt að koma inn í þenn-
an bolta hér. Mér líst vel á liðin
hér og sýnist efniviðurinn góð-
ur."
-Heldur þú að Keflavík muni
hampa titlum í vetur?
„Já, tvímælalaust. Þetta er
gott lið og þrátt fyrir að ég sé
aðeins búin að vera hér í stuttan
tíma sé ég hversu metnaðarfull-
ar þær eru. Þetta eru stelpur
sem eru vanar að vera í topp-
baráttunni."
Sigurður Ingimundarson,
landsliðsþjálfari hefur valið
landsliðshóp íslands fyrir
landsleikina gegn Eistlandi
milli jóla og nýárs. Sex Suður-
nesjastúlkur eru í hópnum,
fjórar frá Keflavík, þær Anna
María Sveinsdóttir, Björg Haf-
steinsdóttir, Erla Reynisdóttir
og Erla Þorsteinsdóttir. Frá
UMFN kemur Pálína Gunnars-
dóttir og frá Grindavík Júlía
Jörgensen.
SÍMTÆKI - ÚTVARPSKLUKKIR - HANDÞEYTARAR - KAFFIVÉLAR
, BRAUÐRISTAR - SAMLOKUGRILL - HÁRBLÁSARAR - KRULLUJÁRN
x „uaWÓs SIEMENS - TENSAI
^ GRUNDIG - KOLSTER
YóAaset'^voSsav sjónvörp, myndbandstæki og útvarpstæki
,e'uV
WWaóav V
YoswWasvata ]
meðó\eVta«
FERÐATMI
með geislaspilara
Verð frá kr. 13.900.- stgr.
VERSLUN
SIGURÐAR IAGVARSSOAAR
III IOMMIM 2 4.\ltm SÍAII 422 7103
VJtvaAaí^f
\óm\>ant