Víkurfréttir - 14.12.1995, Side 42
JÓLABLAÐ 1995
VÍKORFRÉTTIR
MuniO
eftir hvíta
stafnum í
jólaösinni
Það óhapp vildi til við pósthúsið
í Keflavík í vikunni að aldraður
maður sem þarf að nota blindrastaf
þar sem hann er með mjög litla
sjón, hrasaði til skammt hjá inn-
ganginum. Hann missti af sér
skóna og meiddist aðeins við fall-
ið. A11 nokkrir gengu framhjá
manninum án þess að veita honum
hjálparhönd. Eftir nokkra stund
fann hann báða skó sína og komst
á fætur og lauk erindi sínu á póst-
húsinu.
Dóttir mannsins hafði samband
við blaðið og vildi hvetja fólk til
að fylgjast mcð fólki með blinda
stafinn og taka tillit til þess í miðri
jólaösinni.
fréttir
Síðasti heilunardagur læknamiðla
Sálarrannsóknarfélags Suðurnesja
verður laugardaginn I6. desember
kl. 13-16 og eru allir hjartanlega
velkomnir.
Skrifstofa félagsins verður lokuð
frá I5. desember lil I0. janúar 1996.
Óskum öllum félagsmönnum og
velunnurum félagsins gleðilegrar jóla-
hátíðar og friðsældar á komandi ári.
Góð þjónusta í Exó
Hjón í Keflavík hringdu:
„Okkur langar að koma á fram-
færi ánægjulegum viðskiptum okk-
ar sem við áttum við verslunina
Exo í Kcflavík. Við keyptum rúm
hjá fyrirtækinu sem við síðan vild-
um skipta. Það reyndist ekkert mál
og við fengum nýtt rúrn sem við
erum mjög ánægð með. Liðlegheit
og lipur þjónusta var allsráðandi
hjá Skúla Rósantssyni þegar þessi
kaup fóru fram og viljum við færa
honum okkar bestu þakkir fyrir.“
Gjafavara ur sandi
eftir brottflutta
Keflvíkinga
Jónas Hörðdal Jónsson í
Breiðavík á Vestfjörðum hef-
ur sett á markað gjafavörur,
sem eru handunnar úr fjöru-
sandi. Um er að ræða salt og
pipar-par og vasa í þremur
litabrigðum.
Kona Jónasar er Árnheiður
Guðnadóttir og eru þau bæði
fædd og uppalinn í Keflavík
en hafa búið í Breiðavfk síð-
an 1977. Þau eiga þrjá syni.
Sonur þeirra Samúel Hörðdal
Jónasson hannaði salt og pip-
ar staukana, þegar hann
stundaði nám í Hönnunar-
deild Iðnskólans í Hafnar-
ftrði, og hlaut hann verðlaun
fyrir.
Staukarnir voru þá gerðir
úr málmi og tré, þar sem
Jónas hefur fengist við að
þróa vinnslu úr sandi í nokk-
ur ár, var ákveðið að nota þá
aðferð.
Jónas hefur fengist við að
höggva í stein og hefur tekið
þátt í þremur samsýningum
m.a. í Keflavík fyrir tveimur
árum.
Jónas og Adda hafa nú
stofnað fyrirtæki sem þau
nefna Fjörugull, sand og
steiniðja, en á sumrin reka
þau gistiheimili í Breiðavfk,
sem er mjög stutt frá Látra-
bjargi. -Þar er hvít og falleg
sandfjara og þaðan er mest-
allur efniviður iðjunnar feng-
inn. Suðurnesjabúar eru
hvattir til að koma þar við á
leið sinni um Vestfirði, þar er
alltaf heitt á könnunni.
Munirnir eru til sýnis og
sölu í Blómabúðinni Kósý í
Keflavík og á tveimur stöð-
um í Reykjavík, þ.e. í Te &
Kaffibúðinni við Laugaveg
og í Listhúsinu í Laugardal.
Afmæli
Sextugur er í dag Ólafur Gam-
alíelsson, fiskverkandi í
Grindavík. Eiginkona Ólafs er
Guðbjörg Thorstensen. Þau
taka á móti gestum laugardag-
inn 16. des. milli kl. 18 og 22.
Tvíbökurnar á Vallargötu 20
verða 30 ára laugardaginn 16.
des. Til hamingju með afmælið.
Bræður.
Hún María Guðmundsdóttir
verður 45 ára laugardaginn 16.
des. I tilefni dagsins setur hún
upp þessa hárgreiðslu.
Til hamingju.
Börn og barnabörn.
Vantar þig
áhugaverða gjöf?
Ég er umboðsinaður og söluaðili
á mynduerkum á striga, pappír
og grjóti eftir listamanninn
Verið uelkomin í heimsókn
Sigurlaug Gunnarsdóttir
Fagragarði lO, Keflauík
Sími 421-2411
íff wf? ^2^ t^i rtvi■ys'ivir
Til leigu
2ja herberRja
íbúð í Keflavík, laus strax. Uppl. í
sfma 422-7112 eftirkl. 19:00.
2ja herbergja
íbúð í Heiðarholti tímabundið frá
janúar. Leiga kr. 30.000.-
m/rafm. hita og hússj.
Uppl. í síma 421-4510.
eða sölu
mjög góð 2ja herbergja íbúð, laus 1.
janúar 1996. Uppl. ísíma
421-2764 og 896-5502.
2ja herbergja
íbúð við Fífumóa 5a, laus 1. janúar.
Nánari uppl. hjá Eignamiðlun
Suðumesja (Böðvar).
3ja herbergja
íbúð við Faxabraut 27, 1. hæð og ein-
býlishús í Garði við Garðbraut, einnig
atvinnuhúsnæði í Höfnun. Uppl. í
símum 896-1848 og 845-8085.
3ja herbergja
herbergja íbúð, sérinngangur. Uppl. .í
síma 421-2835.
eða sölu
í Grindavík, 270 ferm. iðnaðarhúsnæði
góð lofthæð og stórar aðkeyrsludyr.
155 ferm. beitningaraðstaða og veiðar-
færageymsla og einnig 40 ferm. beitn-
ingaraðstaða og frystigámur. Uppl. í
síma 426-7099.
Til sölu
1,40 á breidd með krómbogum, mjög
lítið notað. Uppl. í síma 422-7302.
Óskast keypt
notuð uppþvottavél
fyrir lítinn pening. Uppl. í síma 421-
1256 eftir kl. 17:00 föstudag og alla
helgina.
Atvinna
Flísalagnir
Tek að mér flísalagnir. Vönduð vinna,
gott verð. Uppl. 421-4753, Hermann.
Fyrir jólin ATH!
Tek að mér jólaskreytingar með og án
sería á húsum, jafnt utan sem innan.
Get einnig skreytt jólatré. Vinna og
efni c.a. 1.000.- til 2.000.-sem fer eftir
stærð húsa. Væri nú ekki tilvalið að
skreppa í bæinn og á meðan væri húsið
skreytt fyrir þennan pening? ATH. er
löggiltur rafvirki. Uppl. í síma 896-
4034 (GSM) og 422-7199 (heima),
Guðmundur Jens Knútsson.
Tapað-fundið
tapast
hefur svört biblia í hvítum plastpoka.
Finnandi vinsamlegast hafið samband
við blaðið.
fundist
hefur stór gulbröndóttur og hvítur
fressköttur. Hann fannst á Heiðarholti,
og dvelur nú í Kattholti í síma 567-
2909.
Iþróttahúsið í Keflavík:
DHL deildin
Fimmtudagur 14. desember kl. 20:00
Keflavík- Njarðvík
Landsbanki
íslands
Útibúin á Suðumesjunum
m tSHe-
AFRAM KEFLAVIK!