Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.12.1996, Qupperneq 37

Víkurfréttir - 19.12.1996, Qupperneq 37
Látum Fríhöfnina í friði Enn gýs upp umræðan um sölu og einkavæðingu Fríhafnarinn- ar í Leifsstöð. Talsmenn þeirra sjónanniða bera gjama fyrir sig þeim rökum að með einkavæð- ingunni verði Fríhöfnin betur rekin og "eðlilegt" sé að ein- staklingar annist þann rekstur. Vogi einhver sér að vera á önd- verðum meiði er sá inn sami talinn gamaldags í hugsun og fom. Skoðum málið nánar. Segja má að Fríhöfnin eða sú verslun, sem fram fer í flugstöð- inni, hali hálfgildings einokun í þeirri merkingu að skattfríðind- in tíðkast ekki annars staðar í landinu og því ætti verð að vera lægra þar en annars staðar, sal- an meiri og hagnaður góður. Enda er það svo að Fríhöfnin er að skila um 600 milljónum króna í ríkiskassann til þjóðar- innar. Von er að margir ásælist þann hagnað og því má spyrja: Er það hann sem á að einka- væða? Hver er reynsla annarra þjóða? Bretar reka Kastrup Fyrir um tveimur ámm ákváðu Danir að einkavæða fríliafnar- verslun á Kaslrup. Mörg tilboð bárust en vegna ESB aðildar var ekki hægt að binda tilboö við Da'ni eina. Niðurstaða: Danir misstu rekstur sinnar eig- in fríhafnar í hendur breska íyr- irtækisins Allders. Og við emm í EES. Því er ekki óeðlilegt að spyrja sem svo: Er einhver ástæða til að ætla annað en Allders eða önnur evrópsk fyr- irtæki sækist eftir rekstri frí- verslunar í Leifsstöð. Em menn tilbúnir að taka slíka áhættu? Viljum við færa gróðann af þessar verslun í hendur útlend- inga? Svo mikið er víst að ekki er það vinsemdin ein sem vekur áhuga Allders á Leifsstöð. Eftir að Kastmp var einkavædd hefur ýmislegt komið í ljós. Þannig kaupir Allders vörur sín- ar ekki síst af breskum stór- kaupmönnum sem þýðir að danir sjálfir hafa misst viðskipti og um leið störf. A tveimur árum hefur verðlagið líka hækkað um 20%! Því skyldi þróunin ekki verða svipuð hér- Hjálmar Árnason þingmaður skrifar lendis? Og við höfum reyndar dæmi hér heima. Barinn í Leifsstöð er einkarekinn. Samt er verð á bjór þar svipað og gengur á kránum í Keflavík þrátt fyrir skattleysi fríhafnar. Hver borgar þessa góðu álagn- ingu aðrir en flugfarþegar. Þessi tvö dæmi benda eindregið til þess að við gætum átt von á hækkun verðlags í Leifsstöð frá því sem nú er. Afleiðing þess yrðu líklega minni viðskipti því fólk verslaði þá frekar í erlend- um fríhöfnum. Minni viðskipti leiða til samdráttar og fækkunar starfa. Hefur einhver áhuga á því? Skuldir Leifsstöðvar Frá því Flugstöð Leifs Eiríks- sonar var reist hefur aldrei verið gengið frá skulda stöðu hennar. Málin hafa verið látin velta áfram og hlaða utan á sig óheyrilegum vöxtum. Á þessu verður að taka og gæti Fríhöfn- in gegnt þar lykilhlutverki. Er því ekki rökrétt að halda óbreyt- tu fyrirkomulagi og nýta þá lekjulind sem Fríhöfnin sannar- lega er? Ekki má gleyma því að í Frí- höfninni starfa um 150 manns. Góð og vaxandi afkoma fyrir- tækisins byggir ekki síst á þeirri frábæru þjónustu sem þetta starfsfólk hefur skapað eins og allir flugfarþegar þekkja. í raun er það storkun við starfsfólkið að vekja einkavæðingardraug- inn reglulega til lífsins. Sá gjömingur skapar óöryggi og óvissu meðal starfsmanna sem eiga annað skilið fyrir farsælt framlag sitt. Þá er engin ástæða til að þjóðin sjálf verði af þeim tekjum sem þarna verða til. Gleymum því ekki að við eig- um í harðri samkeppni við ná- grannalönd um verslun af þess- um toga. Rask á núverandi fyr- irkomulagi getur haft óheppi- lega afleiðingar í för með sér, starfsfólki og þjóðinni til óþurftar. Látum Fríhöfnina bara í friði. Hún er að gera góða hluti. somsKiDíin á órínn m er Ke fla víkurverktakar Óskum SuÖurnesjomönnum gleðilegra jóla, árs og friðar Þökkum somstorfiö á árinu sem er oö líöa. i^J Bæjarstjórn Reykjanesbæjar Bæjarstjórn Crindavíkur Bæjarstjórn Sandgerðis llnjjj Hreppsnefnd Gerðahrepps ^ Hreppsnefnd Vatnsleysustrandarhrepps Víkurfréttir JOLABLAÐ 1996

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.