Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.12.2001, Qupperneq 47

Víkurfréttir - 13.12.2001, Qupperneq 47
Þann 25. febrúar settu Elín og Þóra upp bakpokana og kvöddu fjölskyldunar og héldu til hinnar fjarlægu heimsálfu Asíu. „Við lentum um miðja nótt í Delhi og létum leigubílstjórann keyra okkur á hótel sem við höfðum valið af hálfgerðu handahófi. Þegar við fórum svo út á götu næsta dag eftir ágætissvefn beið okkar ótrúleg mannmergð, enda hótel- ið staðsett við eina helstu markaðsgötu í Delhi. Við vorum fljótar að átta okkur á því að höfuðborgin er ekki góður stað- ur til að byrja svona ferðalag... þetta mikla áreiti á Indlandi hafi komið mér mest á óvart. Indveijamir vildu sífellt selja eða sýna okkur eitthvað sem gat verið dálítið þreytandi og erfitt," segir Elín. Fjall- og frumskógaganga í Nepal Næstu fjórar vikumar dvöldu þær stöllur í Nepal sem Elín segir að sé mjög túristavænt og íbúar Nepal kunni betur á túris- tana og séu því ekki eins ágeng- ir og Indveijamir. „I Nepal er mjög mikið í boði fyrir túrista og við ákváðum að nýta okkur það. Ég fór m.a. í 8 daga fjall- göngu sem endaði í 4800 metr- um. Þetta var eifið en jafhframt mjög skemmtileg ganga þó kuldinn hafí ofl verið ógurleg- ur. Við sváfiim ávallt í tjöldum og eina nóttina í 4300 m. hæð við allt að 5 gráða frosti. Það var mjög köld nótt. Ég fór ann- ars ein í þessa ferð með ágætis- hópi þar sem Þóra hafði snúið upp á ökklann á sér og gat ekki farið í fjallgöngu," segir Elín. Þóra fór aftur á móti með Elínu í spennandi frumskógargöngu þar sem þeim vom settar lífs- reglur frumskógarins. „Leið- sögumaðurinn sagði okkur að fara á bakvið tré ef nashyming- ur kæmi, vera kyrr ef bjöm væri sjáanlegur en ef tígrisdýr kæmi gætum við lítið gert og fæmm því til himna,“ segir Elín hlæjandi sem ákvað þrátt fyrir þessar reglur að halda af stað inn í frumskóginn þar sem leið- sögumaðurinn sannfærði þær um að möguleikinn á að hitta tígrisdýr væri sáralítill. Á hásléttum Tíbet Aður en Elín og Þóra lögðu af stað í þetta ferðalag vom þær búnar að tala um að fara upp á háslétturTíbet. Það reyndist nokkuð erfitt þar sem Kinveijar loka oft landamærunum ef þeim sýnist svo þá stundina. Um það leiti sem þær hugðust fara til Tíbet vom flugvéladeilur Kinveija og Bandaríkjamanna í hávegum og landamærin því lokuð. En eftir rúmlega viku- langa þolinmóða bið tókst Elínu og Þóm að komast inn í 8 daga skipulagða hópferð upp á há- sléttuna sem þær sjá aldeilis ekki eftir að hafa farið í. „Tíbet er alveg stórkostlegt land og stendur svo sannarlega upp úr allri ferðinni okkar. Þetta er ótrúleg þjóð. Þama var gífurleg- ur kuldi þrátt fyrir að við höfum verið í byijun sumars þar. Það er því oft erfitt að skilja hvemig fólkið getur lifað þama, það á varla neitt og sefiir oft á tíðum í skinntjöldum í þessum kulda,“ segir Elín sem heimsótti nokkra bæi í Tíbet ásamt höfðuborginni Lhasa. „Við skoðuðum mikið af klaustrum en þau er ansi mörg þama. Trúin er einnig mjög sjáanleg hjá þessari búd- dísku þjóð. Allsstaðar má sjá fólk með bænahjól og talna- bönd sem labbar oft hring eftir hring í kringum klaustrin sem á víst að boða gott. Mér finnst ótrúlegt að þeir haldi enn svona sterkt í trúna þar sem áhrifin frá Kína og Nepal verða ávallt meiri og meiri.“ Elín segir annars að erfitt sé að lýsaTíbet með orðum, fólk verði hreinlega að fara þangað til að geta skilið og skynjað þessa einstöku þjóð. Kinverskur stórborgarrúntur Elín og Þóra flugu niður af tí- besku hásléttunni til Chengdu í Kina og tóku smá stórboigar- rúnt í hrísgijónalandinu. „Við fórum til Shian, Peking, Shang- hai, Gangshu og Hong Kong en eftir að hafa verið á Indlandi og sérstaklega í Tíbet fannst okkur Kína ekkert merkilegt. Þetta var nokkum veginn stökk inn í vestræna menningu en þessar stórborgir em orðnar ansi vest- rænar,“ segir Elín sem hafði líka orð á því hversu dýrt væri að ferðast í Kina samanborið við Indland. „Á Indlandi boig- uðu við að meðaltali um 200 ísl.krónur fyrir hótelherbeigi en í Kina fengum við engin her- bergi undir 1500 ísl.krónum og gistum því vanalega í sveftisöl- um.“ Elín segir að það hafi einnig verið mjög erfitt að hafa sam- skipti við Kinveijana og það eitt að fá lestarmiða gat verið helj- arinnar mál. Kinversku lestam- ar vom aftur á móti algjör lúxus samanborið við frekar fátæk- legar indverskar lestar. „Það var samt að sjálfsögðu mikil upplifun að sjá Kínamúr- inn, standa á toigi hins himnes- ka friðar og sjá terra cotta wari- ors styttumar, sem er stærrsti fomleifafundur á 20. öld,“ segir Elín sem endaði tæpa fjögurra mánaða asíuferð sína í Hong Kong. Aðspurð segist Elín ekki vera farin að skipuleggja næstu ferð en hana langar mikið til suður- Ameríku og er þá staðráðin í að velja sama ferðamátann; fijáls með bakpokann á herðunum. JÓLABLAD VÍKURFRÉTTA 2001 47
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.