Morgunblaðið - 02.06.2016, Page 1

Morgunblaðið - 02.06.2016, Page 1
F I M M T U D A G U R 2. J Ú N Í 2 0 1 6 Stofnað 1913  127. tölublað  104. árgangur  Glæsileg tilboð í allan dag Skoðaðu dagskrána og tilboðin á smaralind.is Miðnæturopnun 24 SÍÐNA SÉRBLAÐ UM SUMARTÍSKUNA TÍSKA HUGLEIÐSLA AÐGENGILEG Í SÍMANUM VIÐSKIPTAMOGGINN Í nýrri skýrslu sem Samtök iðnaðar- ins fengu Lars Christensen hag- fræðing til að vinna eru lagðar til róttækar breytingar á umhverfi orkufyrirtækja á Íslandi. Telur hann að yfirburða markaðshlutdeild Landsvirkjunar á sviði orkufram- leiðslu hamli eðlilegri samkeppni og valdi því að verðmyndun á markaði kunni að skekkjast. Af þeim sökum gerir hann tillögu um að tilteknar virkjanir verði seldar út úr fyrir- tækinu og þannig verði til fleiri og smærri fyrirtæki á sviði orkuvinnslu í landinu. Þar að auki leggur hann til að Landsvirkjun, í breyttri og smækk- aðri mynd, verði seld til einkaaðila. „Eignarhald þjóðarinnar á orkuauð- lindunum sem slíkum verður þó að sjálfsögðu áfram tryggt og að fyr- irtækin sem þær hagnýti greiði ákveðinn hluta þess arðs sem af þeim skapast til þjóðarinnar,“ segir Lars Christensen í samtali við Morgunblaðið. Í fyrrnefndri skýrslu, þar sem fjallað er um raforkumarkaðinn á Íslandi, samkeppni hans greind og rýnt í þær áskoranir sem framund- an eru á honum, varpar hann einnig fram þeirri hugmynd að hagnaður- inn af sölu Landsvirkjunar verði lagður í sérstakan auðlindasjóð í eigu þjóðarinnar. Arður sem greidd- ur verði út úr honum muni hins veg- ar ekki renna í ríkissjóð heldur verði greiðslum úr honum dreift jafnt á alla Íslendinga í formi peninga- greiðslna. Segir hann að sækja megi í reynsluna af slíkum sjóði í Alaska, ef þessi leið verði farin. Landsvirkjun verði skipt upp  Leggur til að hagnaður af sölu orkurisans renni í auðlindasjóð í eigu þjóðarinnar MViðskiptaMogginn Götuleikhús Hins Hússins hefur tekið til starfa að nýju og lék listir sínar í fyrsta skipti í gær á göngu- götunni á Laugaveginum, þar sem það gladdi gesti og gangandi. Götuleikhúsið er starfrækt árlega í tvo mánuði yfir sumartímann en það er skipað níu ungmennum á aldrinum 17-25 ára. Verður leikhúsið með ýmsar leikrænar uppákomur á götum og torg- um borgarinnar í sumar, meðal annars 17. júní. Morgunblaðið/Eggert Grímuleikur gladdi gesti og gangandi Merki um sumarið í miðbæ Reykjavíkur Bjarni Steinar Ottósson bso@mbl.is Eftir mikil vanskil í kjölfar hrunsins hefur einstaklingum skráðum á vanskilaskrá stöðugt fækkað frá miðju ári 2013. Fjölgun varð þó á milli mánaða frá apríl fram í maí þegar fjöldi einstaklinga í vanskilum jókst úr 25.226 í 25.353. Alls hefur þeim þó fækkað frá árs- byrjun 2015 um 1.664 eða 6,2%. Mest velta er á síst alvarlegu van- skilunum, segir forstöðumaður áhættustýringar hjá CreditInfo, Gunnar Gunnarsson, en fyrirtækið heldur utan um vanskilaskrá. Hann segir það ekki áhyggjuefni að fjöldinn taki kipp milli einstakra mánaða, það sé eðlileg sveifla og geti skýrst af ein- stökum aðgerðum fárra aðila, enda mark- aðurinn á Íslandi ekki stór. „Það eru bara sveiflur í þessu og vanskil eru ekki stöðug yfir tímann.“ Árstíðabundin sveifla hefur þó ekki verið sterk þegar kemur að van- skilaskrá að sögn Gunnars en hann segir hagsveiflur almennt slíkum áhrifum yfir- sterkari. »4 Vanskil tóku kipp í apríl  Mikil fækkun á vanskilaskrá frá 2013 Vanskil » Í byrjun síð- asta mánaðar voru 25.353 á vanskilaskrá CreditInfo. » Fjöldinn hefur hægt og rólega farið minnkandi frá 2013.  Frumvarp um breytingar á LÍN verður ekki tekið á dagskrá þings- ins fyrir sumarleyfi þess. Illugi Gunnarsson segir í samtali við Morgunblaðið að sér finnist sem stjórnarandstaðan hafi tekið ranga ákvörðun við meðferð málsins. Samstaða virðist á meðal þing- flokkanna um að hlé verði gert á þingfundum í dag fyrir sumarið. Birgitta Jónsdóttir, þingflokks- formaður Pírata, segir það hafa komið sér á óvart hversu vel þing- störfin hafi gengið síðustu daga. Þá segist hún ánægð með þing- flokksformenn meirihlutans. »2 Samstaða um sum- arhlé síðdegis í dag Alþingi Nefndarfundir verða í næstu viku.  „Þetta er fín lína og við sem starfsfólk Há- skóla Íslands og opinberra stofn- ana verðum að gæta hlutleysis. Ég legg mikla áherslu á það,“ segir Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, aðspurður hvort hann telji eðlilegt að einn forsetaframbjóð- enda, Guðni Th. Jóhannesson, flytji erindi á málþingi háskólans á með- an hann er í framboði. »4, 18 Rektor telur fyrir- lestur á fínni línu Jón Atli Benediktsson  Allt bendir til að netverslun fyrir- tækisins Icewear muni á næsta ári verða næstveltumesta eining fyrir- tækisins, á eftir verslun fyrirtækis- ins í Vík í Mýrdal. Þetta kemur fram í viðtali við Ágúst Þór Eiríksson, for- stjóra og eiganda fyrirtækisins, í ViðskiptaMogganum í dag. Fyrir- tækið hefur vaxið gríðarlega á síð- ustu árum og er nú með 10 verslanir á Íslandi. Þá selur það vörur í gegn- um verslun Amazon í Bandaríkjun- um, Bretlandi og Frakklandi og stefnir einnig á strandhögg í Japan á grundvelli sömu tækni. Netverslun Icewear að verða næststærst

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.