Morgunblaðið - 02.06.2016, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 02.06.2016, Qupperneq 11
Björn Már Ólafsson bmo@mbl.is Meta verður pólitíska áhættuþáttinn vegna hugsanlegs sæstrengs á milli Íslands og Bretlands og leita leiða til að takmarka áhættuna. Þetta kemur fram í lokaverk- efni Andra Dans Traustasonar, viðskiptafræði- nema við Háskól- ann á Akureyri, sem hann vann undir leiðsögn Hilmars Þórs Hilmarssonar prófessors. Verk- efnið er unnið úr tveimur vísinda- greinum sem þeir unnu saman og hafa verið birtar í fræðiritum. Stefnubreytingar verða að deilumálum Í verkefninu er fjallað um það hvernig stefnubreytingar stjórn- valda geta haft áhrif á orkumarkað og verð. Verkefni á borð við sæ- streng er hefur langan líftíma. Bæði tekur lagningin langan tíma og er strengnum ætlaður langur endur- greiðslutími. Þegar pólitíska áhætt- an er metin verður því að líta marga áratugi fram í tímann. Í verkefni sínu fjallar Andri meðal annars um tvö tilvik þar sem innlend stefnu- breyting stjórnvalda varð til þess að upp spruttu deilur sem leysa þurfti úr á vettvangi alþjóðlegs gerðar- dóms. Sem dæmi nefnir Andri stefnu- breytingu þýskra stjórnvalda í kjöl- far slyssins í Fukushima-kjarnorku- verinu í Japan árið 2011. Ákváðu stjórnvöld þá að fasa út kjarnorku og loka kjarnorkuverum. Sænska fyrirtækið Vattenfall höfðaði þá mál fyrir gerðardómi vegna tapsins sem fyrirtækið varð fyrir. Svipað átti sér stað á Spáni á níunda áratugnum. Spænska ríkið hóf þá að niðurgreiða endurnýtanlegan orkuiðnað. Seinna þegar orkuverðið fór að hækka var ákveðið að hætta niðurgreiðslum og var iðnaðurinn skattlagður. Höfðuðu þá orkuframleiðendur mál fyrir al- þjóðlegum gerðardómi. Segir í rit- gerðinni að þótt þessi tilvik séu að einhverju leyti ólík lagningu orku- strengs, eigi svipuð sjónarmið varð- andi pólitíska áhættu við í báðum til- vikum. Engin töfralausn til Í ritgerðinni eru stjórnmálaleg samskipti Íslands og Bretlands rak- in. Er síðan farið yfir þær aðferðir sem hægt sé að nota til þess að tak- marka pólitíska áhættu við lagningu sæstrengs þótt engin töfralausn sé til í þeim efnum. „Eignarhaldið skiptir máli upp á það hvernig hægt er að leysa úr deil- um sem kunna að koma upp, og til að skýra réttarstöðu aðilanna,“ segir Andri. „Svo skiptir tekjutrygging gríðar- legu máli. Langtímasamningar um orkukaup yrðu helst að vera tryggð- ir af bresku ríkisstjórninni. Ríkis- stjórnin hefur verið að bjóða upp á slíkar tryggingar, reyndar ekki til aðila utan landsteinanna, en samt til aðila í erlendri eigu. Annar aðilinn í þessu verkefni er svo dvergvaxinn miðað við hinn. Það getur því verið erfitt að miðla pólitískri áhættu al- mennilega. Ísland hefur alltaf verið minni aðilinn í milliríkjadeilum, þótt það hafi gengið frekar vel hingað til.“ Tvíhliða samningur Andri nefnir einnig möguleikann á tvíhliða viðskiptasamningi við Bretland, en enginn slíkur samning- ur er í gildi. „Möguleikinn á að koma slíkum samningi á fót, mögulega fyr- ir þetta eina verkefni, er fyrir hendi. Sérstaklega þar sem Bretar virðast vera á krossgötum með ESB og gætu sagt sig úr sambandinu. ESB gæti líka haft áhrif þar sem Bretar eru að reyna að vinna í því að ná markmiðum ESB um notkun á end- urnýtanlegri orku fyrir árið 2020. Það hefur áhrif í þessum málum,“ segir Andri. Þá segir Andri að að- koma erlendra stofnana á borð við Evrópska fjárfestingabankann skipti máli. Orkusáttmálinn (Energy Charter Treaty) sem bæði Bretar og Íslendingar hafa fullgilt getur líka gegnt mikilvægu hlutverki. Dragi úr pólitískri áhættu  Orkuverkefni á borð við lagningu sæstrengs fylgir oft pólitísk áhætta  Við- skiptafræðinemi rannsakaði áhættuna í lokaverkefni við Háskólann á Akureyri Sæstrengur Andri segir tekjutryggingu í orkusamningum vera mikilvæga. Ríkistrygging frá bresku ríkisstjórninni geti verið raunhæfur möguleiki. Andri Dan Traustason FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 2016 Vertu upplýstur! blattafram.is VIÐ VILJUM GETA TREYST. ÞAÐ TRAUST ROFNAR AUÐVELDLEGA ÞEGAR HIÐ VERSTA GERIST. HVAÐ GERIR ÞÚ ÞEGAR TRAUSTIÐ ROFNAR? Póstsendum Mikið úrval af undirfatnaði Kíktu á heimasíðuna lifstykkjabudin.is LAUGAVEGI 82 101 REYKJAVÍK SÍMI 551 4473 www.lifstykkjabudin.is Ferðatöskur Sími: 528 8800 drangey.is Smáralind Stofnsett 1934 Töskur Hanskar Seðlaveski Ferðatöskur Tölvutöskur Belti Skart og skartgripaskrín Góðar vörur Sanngjarnt verð Persónuleg þjónusta Kíktu inn á drangey.is Tilvalin útskriftar- gjöf Ítarlegar upplýsingar á drangey.is/ferdatoskur Sumarsprengja 30% afsláttur af buxum, skyrtum og sumarblússum fimmtudag, föstudag og langan laugardag Laugavegi 47 – Sími 552 9122 Laugavegi 47 – Sími 551 7575 Elstu heimildina um hugmynd- ina um sæstreng til Bretlands er að finna í skýrslu Valgarðs Thoroddsens frá árinu 1954 en í þeirri skýrslu var því haldið fram að slík framkvæmd væri tæknilega ómöguleg. Nýrri skýrslur og ritgerðir hafa síðan þá litið dagsins ljós þar sem tal- ið er að slík hugmynd sé vel framkvæmanleg. Yrði slíkur sæ- strengur um 1.200 km langur, sá lengsti í heimi. Landsvirkjun og Landsnet unnu sameiginlega athugun á arðbærni sæstrengs árin 2009 og 2010 og komust að þeirri niðurstöðu að verk- efnið gæti orðið arðbært. Í júní 2012 setti þáverandi iðnaðar- ráðherra á laggirnar ráðgjaf- arhóp um að kanna nánar möguleikann á að leggja sæ- streng á milli Íslands og Evrópu. Ráðgjafarnefndin fól lögfræði- hópi að gera úttekt á lagaum- hverfi sæstrengs og skilaði hóp- urinn af sér skýrslu í júní 2013. október síðastliðnum áttu Sig- mundur Davíð Gunnlaugsson, þáverandi forsætisráðherra, og David Cameron, forsætisráð- herra Bretlands, fund fyrir ráð- stefnuna Northern Future For- um. Eftir fundinn var skipaður starfshópur til að finna út verð og magn raforku sem hægt væri að selja út í gegnum sæstreng. Sæstrengur ræddur í 60 ár RAFORKUFLUTNINGUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.