Morgunblaðið - 02.06.2016, Síða 20

Morgunblaðið - 02.06.2016, Síða 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 2016 Sjómannaheimilið Örkin í Reykjavík fagnar 25 ára afmæli. Það var hinn 2. júní ár- ið 1991 að Færeyska sjómannaheimilið við Brautarholt 29 var formlega tekið í notk- un þegar Jákup Kass, prestur í Færeyjum, vígði húsið að lokinni guðsþjónustu í Há- teigskirkju. Þá hafði húsið verið í byggingu í nokkur ár. Fyrir þann tíma starfrækti Færeyska sjó- mannatrúboðið sjómannastofu frá árinu 1958 að Skúlagötu 18 í Reykja- vík. Það var því mikil breyting í starfi sjómannatrúboðsins þegar nú- verandi aðstaða var tekin í notkun 1991. Sjómannaheimilið Örkin er búið öllum nútímaþægindum en þar eru herbergin með baði og salernisað- stöðu, sjónvarpi og nettengingu. Morgunmatur er innifalinn í verði gistingar. Færeyska sjómannaheim- ilið þjónar einnig samfélagi Fær- eyinga á Íslandi en þar fer fram vikuleg móðurmálskennsla á vet- urna, ýmis fundarhöld, samkomur og hátíðarsamverur fyrir Færeyinga og fjöl- skyldur þeirra. Fær- eyska sjómannaheim- ilið er ennfremur með samning við heilbrigð- isráðuneytið í Fær- eyjum um að sjúklingar á þeirra vegum gista á heimilinu. Í tengslum við 25 ára afmælið verð- ur færeysk guðsþjón- usta laugardaginn 4. júní kl. 14 í Háteigs- kirkju. Þar mun Jógvan Fríðriksson biskup þjóna fyrir altari og predika. Eftir guðsþjónustuna verður mót- taka í Örkinni frá kl. 15–18, þar eru allir hjartanlega velkomnir í afmæl- iskaffi. Sunnudaginn 5. júní kl. 16 verður almenn samkoma í Örkinni, þar eru einnig allir hjartanlega velkomnir. Sjómannaheimilið Örkin 25 ára Eftir Ragnar Snæ Karlsson Ragnar Snær Karlsson » Það varð mikil breyt- ing í starfi sjó- mannatrúboðsins þegar núverandi aðstaða var tekin í notkun 1991. Höfundur er forstöðumaður 25 ára Sjómannaheimilið Örkin er búið öllum nútímaþægindum. Ragnheiður Elín Árnadóttir, ráðherra atvinnuvega og ný- sköpunar, skrifar ný- lega í Morgunblaðið að hún kannist ekki við inntak erinda minna til hennar. Ég ber meiri virðingu fyrir ráðherranum en svo að ég trúi því að hin fjölmörgu erindi, skriflegu og munn- legu yfir margra ára tímabil, hafi ekki verið skilin af ráðherranum. Síðasta bréf var á númeruðu formi þar sem efnisatriði voru aðskilin. Erindið er enn það sama; nýsköpunarfyrirtækjum sem þróa lausnir fyrir raforkuflutningskerfi er ekki gert mögulegt að koma að nýjum lausnum á faglegum for- sendum sem byggjast á sam- keppnissjónarmiðum (liðir 1 til 3 í síðasta bréfi til ráðherrans). Það skortir innviði í kerfinu, leiðin er ekki til staðar. Dæmi um slíkt væri útboð um hönnun og lausnir. Annað dæmi væri rannsóknarsjóð- ur sem nýsköpunarfyrirtæki gætu sótt í og þróað í gegnum samstarf við Landsnet, slíkt þekkist hjá Landsvirkjun og Vegagerðinni. Þriðja dæmið væru leiðbeiningar eða skilgreindar kröfur (umfram staðla) sem ætlast væri til að ný- sköpunarfyrirtæki uppfylltu, til að eiga „samtalsrétt“ við Landsnet. Þetta er kjarni erindisins. Að tala um áhugaleysi Lands- nets er of varlega orðað af ráð- herranum. Hvað heitir það þegar forstjóri í ríkisfyrirtæki útdeilir verkefnum til vildarvina án útboðs og án samkeppni? Hvað heitir það þegar sami forstjóri gangsetur stærstu fjárfestingarhrinu Ís- landssögunnar – 100 milljarðar – stekkur svo yfir borðið og gerir sjálfur stórsamninga með vild- arvininum (þeim sama) við fyrr- verandi aðstoðar- mann sinn (núverandi forstjóra) um sneiðar af kökunni stóru? Hvað heitir það þegar forstjóri ríkisfyrir- tækis er dómnefnd- arformaður og vild- arvinurinn ráðgjafi í arkitektasamkeppni um ný háspennumöst- ur sem endar með því að dómnefndarfor- maðurinn og ráðgjaf- inn „hreppa hnossið“ og gera stórsamninga um tillögu úr sömu samkeppni; kynnt sem „ný kynslóð háspennu- mastra“? Hvað heitir svoleiðis, hæstvirtur ráðherra? Er þetta ekki vandamálið í hnotskurn? Það er í sjálfu sér umhugsunarefni ef ráðherrann telur slík mál ekki vera á sínu borði. Hvers borði þá? Einhver hlýtur að þurfa að taka ábyrgð á slíku háttalagi í ríkisfyr- irtæki og alveg sérstaklega þegar tekið er tillit til afleiðinganna. Iðja af þessu tagi þrífst sem stendur í skjóli ráðuneytisins og er samfélaginu ekki til fram- dráttar. Hugmyndafræði í ljómanum af „takmörkuðum ríkisafskiptum“ lít- ur mögulega vel út á blaði en hljómar ekki vel nú á sama tíma og ráðherrann greiðir leiðina fyrir Landsnet með valdboði; heimilun á upptöku lands. Áhugi ráð- herrans á nýsköpun endurspegl- ast ekki í fyrirhuguðum 100 millj- arða fjárfestingum, einn auka- milljarður í Tækniþróunarsjóð er gott framtak en hverfur því miður í stóru myndinni. Með tilliti til hagsmuna skatt- greiðenda og allra nýsköpunar- fyrirtækja sem hyggja á tækniþróun á sviði raforkuflutn- ingskerfa er kallað á breytingar. Kerfið er gallað, það virkar ekki. Alveg eins og bankakerfið fyrir hrun, það virkaði ekki vel en menn hlustuðu ekki – of upp- teknir við að fá sér. Að framfarir og tækniþróun á slíku kjarnasviði sé undir því komin að forstjóri Landsnets spinni leikreglur eftir eigin geðþótta hverju sinni er óviðunandi staða. Við höfum slæma reynslu af því að kynna hugverk okkar og hugmyndir fyr- ir Landsneti. Allir sjá sem vilja að sú ómögu- lega staða sem upp er komin á þessu lykilsviði samfélagsins er afleiðing stöðnunar. Flest stór- verkefni byggjast nú á lausnum sem eiga ekkert erindi í samfélagi 21. aldarinnar en hafa samt verið keyrð áfram á hnefunum, með vondum afleiðingum. Menn hlustuðu ekki því þeir þurftu ekki að hlusta. Þetta er afleiðing af fá- keppni sem bitnar á áhrifamikinn hátt á samfélagsþegnum. Kerfið hamlar eðlilegri framþróun. Að lokum, hafi ráðherrann raunverulega misskilið; ég hef ekki áhuga á því að fyrirtæki á mínum vegum fái framgöngu sem byggist á því að „kippt sé í spotta“ eða verði „vel skoðað“ af einum manni/konu á réttum stað í kerfinu. Ég á engan rétt umfram aðra, ég á rétt á því að starfa að mínu fagi og verða að gagni. Það á að leggja fagleg sjón- armið til grundvallar samkvæmt þekktu skilgreindu ferli en ekki það hvort viðkomandi séu í réttu tengslaneti. Engin fagleg sjón- armið hafa verið lögð fram í mál- efnum Línudans, bara geðþótta- ákvörðun ríkisforstjóra sem nú hefur stungið sér á bólakaf í 100 milljarða sundlaugarpartí sem hann skipulagði sjálfur, að því er virðist. Svokallað áhugaleysi Landsnets á lausnum Línudans getur auk þess varla staðist skoðun þegar hin nýja kynslóð háspennumastra hinna innvígðu einkavina end- urspeglar sömu hönnun og sömu hugmyndir um ásýnd og aðlögun. Myndir í fréttum RÚV þann 17.4. tala sínu máli. Nýsköpun er ekki villta vestrið heldur markviss vinna að skil- greindum markmiðum. Fjárvana nýsköpunarfyrirtæki sem byggja viðskiptalíkön á þekkingu þurfa að geta varið sig fyrir sérhagsmunagæsluliðum í kerfinu sem telja sig eiga rétt umfram aðra. Sú vernd er ekki til staðar þar sem innviðina skortir. Meðal annars þess vegna erum við með vandamál sem hæstvirtur iðn- aðarráðherra þarf að leysa úr. Um flutningskerfi raforku og nýsköpun: Skilaboð til iðnaðarráðherra Eftir Magnús Rannver Rafnsson »Nýsköpunarfyrir- tæki sem byggja við- skiptalíkön á þekkingu þurfa að geta varið sig gagnvart aðilum í kerf- inu sem telja sig eiga rétt umfram aðra. Magnús Rannver Rafnsson Höfundur er verkfræðingur og starfar að nýsköpun á sviði raforkuflutningskerfa. Davíð Oddsson sagðist telja við hæfi að þjóðin fengi hann frítt. Eft- irlaun hans kæmu þó til frádráttar yrði hann forseti að því marki að hann myndi þó afsala sér um 1,4 milljón í laun á mánuði, segir í frétt á vefsíðu Moggans þann 17. maí sl. Ég vil vekja athygli á því að eng- inn hinna frambjóðendanna hefur boðist til að lækka launin við sig, hvað þá afsala sér þeim öllum. Það- an af síður bauðst nokkur til að borga með sér af einskærri ætt- jarðarást. Því stendur Davíð eftir sem sigurvegari hvað þennan þátt varðar. Meir en það, ég man ekki eftir að neinn forseti Íslands hafi boðið slíkt fram, né forseta- frambjóðandi og hvorki hér né er- lendis … nema jú Pútín sem boðaði 10% niðurskurð á launum sínum vegna nýlegs efnahags samdráttar. Það þýðir að Davíð toppaði sjálfan Rússlandsforseta og bauð tífalt bet- ur. Davíð skoraði því mark og það svo um munar. Guðmundur Rafn Geirdal Bragason. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Davíð einn vinnur frítt fyrir þjóðina Forsetaframboð Davíð afsalar sér laun- um nái hann kjöri. Fræðslufundir Ís- lenska vitafélagsins á síðasta ári fjölluðu um sjóslys og mannskaða við Íslandsstrendur og forvarnir gegn þeim. Einn af þeim sem fluttu mjög athygl- isvert erindi á einum þessara funda var hinn kunni blaðamað- ur og rithöfundur Steinar J. Lúðvíksson. Þar fjallaði hann um þær miklu mann- fórnir sem Íslendingar hafa fært gegnum aldirnar í sjósókn sinni. Niðurstaða athugana hans er að á árunum 1900-1974 hafi 3.576 far- ist í sjóslysum, um 48 manns á ári. Lokaorð erindis hans voru: „Stórþjóðir heiðra minningu her- manna sinna með áletruðum minningarskjöldum eða krossum sem reistir eru í minningarreitum hvort sem líkamsleifar hvíla undir þeim eða ekki. Tilburðir okkar Ís- lendinga til þess að viðhalda nöfn- um þeirra sem féllu hafa verið heldur fátæklegir. Ég hef lengi alið með mér þá von að einhvern tímann komi sá tími að settar verði á einn stað minningartöflur sem hafi að geyma frumupplýs- ingar um þá hermenn Íslands, ef svo má að orði komast, sem fallið hafa í stríðinu við Ægi konung hinn mikla, þótt hún næði ekki nema til tuttugustu ald- arinnar. Þar yrðu væntanlega skráð um 3.500 nöfn, sem væru þá í leiðinni tákn þess að við hefðum ekki gleymt nafnlausum fórn- arlömbum fyrri tíma. Íslenskir sjó- menn allra tíma ættu slíkt skilið því það voru þeir öllum mönnum fremur sem sáu þjóðinni fyrst fyrir lífsbjörg sinni í gegn- um aldirnar og lögðu síðar grunninn að þeirri velsæld sem við búum nú við með starfi sínu.“ Í viðtali á RÚV í tengslum við erindi hans kom fram hjá Stein- ari að hvergi á landinu væri sér- stakt minnismerki um alla þá ís- lensku sjómenn sem farist hafa við Ísland og það væri í raun al- veg ótrúlegt. Ég veitti þessum ummælum hans sérstaka athygli og fór að velta því fyrir mér hvar á landinu mætti koma slíku minnismerki fyrir. Kom þá upp í huga minn Breiðin á Akranesi, syðsti hluti Akraness. Af hverju Breiðin? Jú, Breiðin teygir sig til hafs út í Faxaflóann með tveimur vitum nánast hlið við hlið. Sjórinn um- lykur Breiðina á þrjá vegu og það hefur sýnt sig á und- arförnum árum að þessi staður og vitarnir hafa mikið aðdráttarafl og draga gesti að alls staðar úr heiminum. Því má segja að Breið- in með sínu umhverfi sé ákjósan- legur staður fyrir slíkt minnis- merki. Því til viðbótar má nefna að Akraneskaupstaður hefur stað- ið að uppbyggingu á Breiðinni, sem hefur m.a. þann tilgang að gera söguna sýnilegri á svæðinu og styrkja menningarlegt gildi þess. Veglegt minnismerki myndi sóma sér vel á þessum einstaka stað. Nú er sjómannadagurinn á næsta leiti og með þessum skrif- um mínum leyfi ég mér að koma þessari hugmynd um staðsetningu minnismerkis á framfæri og hvet félög og fyrirtæki, t.d. tengd sjáv- arútvegi, að framkvæma verkið. Það yrði þeim til mikils sóma. Minnismerki um sjómenn Eftir Viðar Vésteinsson » Í viðtali á RÚV í tengslum við erindi hans kom fram hjá Steinari að hvergi á landinu væri sérstakt minnismerki um alla þá íslensku sjómenn sem farist hafa við Ísland Viðar Vésteinsson Höfundur bjó á Akranesi í 35 ár.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.