Morgunblaðið - 02.06.2016, Síða 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 2016
Iðnaðarmenn
Þjónusta
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ýmislegt
Gæði í gegn !
Úrval af vönduðum þýskum her-
raskóm úr leðri, skinnfóðruðum, í
stærðum frá: 39 til 48. Gott verð.
Til dæmis þessir:
Teg: 205204 Mjúkir og þægilegir
herraskór. Fáanlegir bæði reimaðir og
óreimaðir. Verð: 14.850.-
Teg: 204203 Mjúkir og þægilegir
herraskór. Verð: 14.850.-
Laugavegi 178
Sími 551 2070.
Opið mán.-fös. 10–18,
laugardaga 10–14.
Sendum um allt land
Erum á Facebook.
TILBOÐ 50% AFSLÁTTUR !!
Þægilegir dömuskór úr leðri,
skinnfóðraðir. Stærðir: 36 - 42.
Verð nú: 7.345.-
Þægilegir dömuskór ú leðri,
skinnfóðraðir. Stærðir: 36 - 42.
Verð nú: 7.750.-
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Sælureitur í sveitinni!
Til sölu glæsilegar lóðir í Fjallalandi í
Landsveit. Veðursæld, fjallasýn og
ægifögur náttúra. Gönguleiðir
meðfram Ytri-Rangá. Aðeins 100 km
frá Reykjavík.
Uppl. s. 8935046 og á fjallaland.is
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD .
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
Smáauglýsingar 569 1100
fasteignir
mbl.is
alltaf - allstaðar
Mig langar að
minnast mömmu
minnar, Lilju
Sveinsdóttur, með
örfáum orðum, sem lést 11. febr-
úar sl. en í dag, 1. júní, hefði hún
orðið 91 árs. Mamma var kennari
að mennt og kenndi alla sína
starfsævi. Hún var yfirveguð
kona, hógvær, glettin og sjálf-
stæð. Mamma var músíkölsk,
spilaði á orgel og hafði fallega
söngrödd. Hún var organisti og
stýrði kirkjukórum. Tónlist var
því hinn eðlilegasti hlutur heima
hjá mér og ég var svo heppin að
alast upp við að syngja og hlusta
á tónlist. Með mömmu fór ég
stundum á söngæfingar og sat og
hlustaði, en einstaka sinnum voru
æfingarnar heima og þá var alltaf
gott kvöldkaffi sem mér þótti
ekki verra. Að kenna var mömmu
eðlislægt, ég held að það hafi ver-
Lilja Sveinsdóttir
✝ Oddný KristínLilja Sveins-
dóttir fæddist 1.
júní 1925. Hún lést
11. febrúar 2016.
Útför Lilju fór
fram 22. febrúar
2016.
ið samofið hennar
persónu. Við hvert
tækifæri sem gafst
var hún að gauka að
mér fróðleik, hún
kenndi mér hvað
jurtirnar hétu,
steinarnir og benti
mér á margt í nátt-
úrunni sem var at-
hygli vert. Þegar við
ferðuðumst um
landið benti hún
mér á sögustaði og Íslandssagan
lifnaði við. Þegar ég eltist ræddi
hún líka við mig um samfélagsleg
málefni eins og réttindi kvenna
og hvatti mig til að mennta mig.
Hún var mjög lifandi alla tíð í
því að fræða. Við mig talaði hún
af virðingu alveg frá því ég man
eftir mér og hún hafði sérstakt
lag á að umgangast börn. Á
löngum ferli hennar sem kennara
var ég svo heppin að fá að vera
með henni í þónokkur ár. Mest
man ég eftir árunum sem hún
kenndi vestur í Króksfjarðarnesi.
Minningar mínar þaðan eru glað-
ar og ljúfar og ótrúlega mikil for-
réttindi sem ég hlaut að geta ver-
ið svo nálæg mömmu þennan
tíma. Þegar við systkinin eltumst
og eignuðumst okkar eigin börn
var mamma boðin og búin til að
aðstoða okkur og passa litlu
barnabörnin sín. Eða taka á móti
okkur og bjóða okkur gott að
borða.
Hún hafði mikinn áhuga á
hvernig barnabörnunum gekk í
skóla og lífinu. Fjölskyldan var
hjarta hennar næst. Mamma var
trúuð kona og lifði trú sína. Trúin
á Guð var hluti af daglegu lífi,
hún treysti og vonaði á hann í
gleði og sorg. Hún kenndi mér
um Guð og sú trú sem fékk að
vaxa og þroskast hefur reynst
mér það haldreipi sem mest hald
er í og dýrmætur grundvöllur í
lífi mínu. Mamma og pabbi voru
aðventistar og héldu hvíldardag-
inn. Ljúft er að minnast þess þeg-
ar hvíldardagurinn gekk í garð
en þá höfðum við stutta stund
með bæn og gjarnan lesið ritn-
ingarvers. Þá kom eins og ein-
hver friður og helgi yfir heimilis-
lífið sem var alla jafna annasamt.
En hún lagði sig fram við að gera
daginn þannig að hann hentaði
okkur börnunum.
Síðustu árin ágerðust veikindi
sem gengu á minnið og persónu-
leika hennar og höfðu mikil áhrif
á hennar líf. Það var henni erfitt
að finna sig rænda af minni sem
hún hafði ávallt getað treyst sem
og skýrri hugsun. Þessi orð hér á
blaði ná takmarkað að lýsa
mömmu og hennar lífi en hún var
svo sannarlega ljós í lífi mínu og
fjölskyldunnar minnar. Fyrir
hana er ég ósegjanlega þakklát
og ég hlakka til að hitta mömmu á
ný á efsta degi. Blessuð sé minn-
ing hennar.
Signý Harpa Hjartardóttir.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Minningargreinar
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni
sjálfri, sem hér segir:
Gyðufell 2, 205-2444, Reykjavík , þingl. eig. Bolanle Rebecca Akpaette
og Daniel Inyieobong F Akpaette, gerðarbeiðandi Gyðu-, Iðu- og
Fannarfell,húsfél, mánudaginn 6. júní nk. kl. 10:00.
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
1.júní 2016
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar 4 Smíðar og útskurður með leiðbeinanda kl. 8.30-16.30,
helgistund á vegum Seljakirkju kl. 10.30-11, handavinna með
leiðbeinanda MS fræðslu- og félagsstarf kl. 14.16.
Boðinn Handavinna kl. 9, botsía kl. 10.30 og brids/kanasta kl. 13.
Bolstaðarhlið 43 Leikfimi kl. 10.40.
Garðabær Handavinnuhorn kl. 13, heitt á könnunni í Jónshúsi kl.
9.30, meðlæti selt með síðdegiskaffinu frá kl. 14-15.50.
Gjábakki Handavinna kl. 9.
Gullsmári Handavinna kl. 9, ganga kl. 10, handavinna og brids kl. 13.
Hraunbær 105 Kaffiklúbburinn, allir velkomnir í kaffi kl. 9, opin
handavinna, leiðbeinandi kl. 9–14, hádegismatur kl. 11.30.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og
spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, morgunleikfimi kl.
9.45, spilað botsía kl. 10, matur kl. 11.30, baðþjónusta fyrir hádegi. spi-
luð félagsvist kl. 13.15, kaffisala í hléi. Minnum á vorferðina okkar
sem farin verður miðvikudaginn 8. júní að Byggðasafninu að Görðum
á Akranesi, skráning stendur yfir á staðnum eða síma 535-2720.
Hæðargarður 31 Við hringborðið kl. 8.50, leikfimi með Guðnýju kl.
10, lífssöguhópur með Helgu Margréti kl. 10.50, síðdegiskaffi kl. 14.30.
Vorferðin er í dag, mæting kl. 12.30, nánar í síma 411-2790.
Langahlíð 3 Kl. 9 opin handverksstofa, kl. 10.15 upplestur, kl. 11
leikfimi kl. 13.30 botsía kl. 14.30 kaffiveitingar. Verið velkomin!
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja / listasmiðja með
leiðbeinanda kl. 9-12, morgunleikfimi í borðsal kl. 9.45, bókabíllinn kl.
10-10.30, upplestur kl. 11, opin listasmiðja með leiðbeinanda kl. 13-16,
ganga með starfsmanni kl. 14, tölvu- og snjalltækjakennsla kl. 15.30.
Uppl. í s. 4112760.
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 7.15, Billjard í Selinu kl.
10, kaffispjall í króknum kl. 10.30, Jóga í salnum Skólabraut kl. 11,
félagsvist í salnum Skólabraut kl. 13.30, karlakaffi í safnaðarheimili
kirkjunnar kl. 14.
Sléttuvegur 11-13 Kaffi á könnunni kl. 8.30-10.30, hádegismatur kl.
11.30-12.30, samverustund, hlustað á hljóðdisk kl. 13.30-14.30,
síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30, dagblöð o.fl. til afþreyingar.
Allir velkomnir.
Félagslíf
Sálarrannsóknarfélag
Reykjavíkur
Síðumúla 31,
s. 588 6060
Miðlarnir, spámiðlarnir og
huglæknarnir Þórhallur Guð-
mundsson, Ólafur Hraundal
Thorarensen talnaspekingur
og spámiðill, Ragnhildur
Filippusdóttir, Símon Bacon,
Guðríður Hannesdóttir
kristalsheilari auk annarra,
starfa hjá félaginu og bjóða
félagsmönnum og öðrum upp á
einkatíma.
Upplýsingar um félagið, starf-
semi þess, rannsóknir og
útgáfur, einkatíma og tímapant-
anir eru alla virka daga ársins frá
kl. 13-18. auk þess oft á kvöldin
og um helgar.
SRFR
Raðauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
SUMARHÚSALÓÐ í Öndverðarnesi
til sölu á besta stað innst í botn-
langa með glæsilegu útsýni yfir
golfvöllinn og nærsveitir. Vörður og
sundlaug allt árið. uppl. í síma
8661712 eða plommi61@gmail.com
Bílar
SKODA OCTAVIA AMBIENTE
COMBI 5 dyra. Árg. 7/2012,
Ek: 102þ Sk:2018, 1600 Diesel-bsk.
Ný sumardekk og nagladekk
fylgja. Dráttarbeisli. Ný tímareim og
vatnsdæla. Nýlegir diskar og klossar.
Þjónustubók. Bíllinn er til sýnis hjá
Bílasölunni Bílfang Malarhöfða 2.
Uppl. í síma: 615-8080.
Húsviðhald
Smáauglýsingar
– með morgunkaffinu
- með morgunkaffinu