Morgunblaðið - 29.06.2016, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 29.06.2016, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 2016 EM Í FÓTBOLTA KARLA Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Sigur íslenska landsliðsins í knatt- spyrnu á Englendingum í Nice í fyrradag hefur fallið Frökkum vel í geð, enda grunnt verið á því góða á íþróttasviðinu allt frá því Vil- hjálmur bastarður og jarl af Rúðu lagði heri Haralds Guðnasonar Englandskonungs að velli í Hast- ings árið 1066. Hafa Frakkar og Englendingar löngum hlakkað yfir óförum hvorra annarra og er engin undantekning þar á nú. Og þótt franska liðið teljist fyrirfram sig- urstranglegra í viðureigninni gegn Íslendingum í fjórðungsúrslitum EM í fótbolta næsta sunnudag biðja franskir fjölmiðlar landslið sitt að gjalda varhug við hinum baráttuglöðu víkingum sem komnir séu inn úr svalanum og hræðist engan í kappleik og séu með hættuleg vopn í farteskinu. Aldrei tapað fyrir Íslandi „Það kom á óvart að Íslendingar skuli mæta Frökkum næsta sunnu- dag í fjórðungsúrslitum EM. Franska liðið taldi að mótherjarnir yrðu Englendingar. Góða fréttin í þessu er að Frakkar hafa aldrei tapað fyrir Íslendingum. Ellefu sinnum hafa landsliðin mæst og Frakkar unnið átta sinnum en jafnteflin orðið þrjú,“ sagði frétta- maður sjónvarpsstöðvarinnar France2 í beinni útsendingu frá bækistöðvum franska liðsins utan við París í dag. „Les Bleus“ [þeir bláu, eins og franska liðið er jafnan nefnt] mæta því til leiks sem líklegir sig- urvegarar en það er staða sem oft þykir óþægileg. Þeir verða að gæta sín á Íslendingunum sem hafa staðið sig framar væntingum og hafa því engu að tapa. Franska liðið verður að taka þetta íslenska lið mjög alvarlega,“ sagði frétta- maðurinn sem hugðist fylgjast með æfingu franska liðsins í gær, en hún fór fram fyrir luktum dyr- um og sjónvarpsvélar fengu ekki að koma nærri, slík var leyndin yfir undirbúningi liðsins fyrir leik- inn gegn Íslendingum. Fyrsta frétt aðal kvöldfrétta- tíma stærstu sjónvarpsstöðvar Frakklands, TF1, í gærkvöldi, var helguð árangri Íslendinga á EM. Hafði stöðin sent blaðamann til Ís- lands þar sem hann tók viðtöl við fólk á förnum vegi og heimsótti fótboltaskóla í Fífunni þar sem ungir krakkar voru á námskeiði. Myndir voru birtar frá fagn- aðarlátum á Arnarhóli í gær og fjallað um hversu bergnumdir landsmenn væru vegna afreka liðs- ins. Hamrað var á fámenninu í samanburði við allt annað. t.d. að íslenskir atvinnumenn í fótbolta rétt fylltu hundraðið og heildariðk- endafjöldi á Íslandi væri ekki nema fimmtungur þeirra sem æfðu og spiluðu á Parísarsvæðinu einu. Þeir hræðast engan Franskir fjölmiðlar forðast allir að vanmeta íslenska liðið í skrifum sínum fyrir leikinn gegn Frökk- um. „Þeir hræðast engan,“ segir blaðið Le Monde og varar liðs- menn franska liðsins við að falla í gildru sjálfumgleði. „Les Bleus hafa unnið góða sigra en leikmenn vonast allir sem einn til að verða ekki næstu fórnarlömb þessara lygilega góðu fótboltamanna sem komnir eru inn úr kuldanum,“ bætir blaðið við. Þjálfarinn Didier Deschamps hafi án efa búist við Englendingum sem mótherjum en verði nú að búa liðið undir aðra mótherja og megi ekki vanmeta leikmenn litlu 330 þúsund manna norrænu eyjunnar. Íþróttadagblaðið L’Equipe hyllti sigur Íslendinga og lagði forsíðu sína undir hann, undir yfirskrift- inni „Afburðasnilld“. „Hinir dásamlegu Íslendingar slógu Eng- lendinga úr leik og spila næst í fjórðungsúrslitum gegn „þeim bláu“ komandi sunnudag,“ sagði blaðið. Risastórt afrek Á vefsvæði sínu leitast vikuritið l’Express við að setja árangur Ís- lands á EM í pólitískt samhengi til marks um hversu risastórt afrek sé um að ræða. Segir blaðið það jafn stórt og ef Francois Hollande forseti færi með sigur af hólmi í frönsku forsetakosningunum að ári. Um það eru allir stjórn- málaskýrendur sammála að ekkert sé fjarri lagi en að hann nái end- urkjöri. Í því samhengi sé árangur Íslendinga stærri en kraftaverk. Segir l’Express Íslendinga vera hetjur Evrópumótsins og rætt er um þá sem hina þrælsterku syni norræna þrumuguðsins Þórs. Blaðið Le Parisien birtir stóra mynd á forsíðu sinni af Aroni Ein- ari Gunnarssyni undir fyrirsögn- inni „Stórskelfirinn íslenski“. Seg- ir blaðið að hríslandi skjálfti hafi farið um margan Englendinginn fyrir þórdunur Íslendinganna. Þrælsterkir synir þrumuguðsins  Sigur Íslendinga á Englendingum féll Frökkum vel í geð  Franska landsliðið varað við sjálfumgleði Ísland á forsíðum Franskar blaðaforsíður voru helgaðar Íslandi í dag. Ein helsta sundstjarna Frakka um þessar mundir, Yannick Agn- el, er undrandi á frammistöðu Íslendinga á EM. Hrifningin fer ekki á milli mála á twitter-síðu hans. „Verði Íslendingar Evr- ópumeistarar mun ég synda hringinn í kringum Ísland,“ seg- ir hann. Út frá þessu mætti ætla að hann haldi Íslendinga verða Frökkum auðveld bráð. Enda eina leiðin til að losna undan eigin áskorun og komast hjá 4.988 kílómetra sundi í sjó sem í júlí verður vart heitari en 11°C er að franska liðið leggi Íslend- inga í París komandi sunnudag. Undrandi á Íslendingum SUNDÁSKORUN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.