Morgunblaðið - 29.06.2016, Blaðsíða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 2016
INDEPENDENCE DAY 2 5:30, 8, 10:30(P)
LEITIN AÐ DÓRU ÍSL.TAL 3:30, 5:45
CENTRAL INTELLIGENCE 8, 10:25
WARCRAFT 8(2D), 10:30(3D)
FLORENCE FOSTER JENKINS 5
ANGRY BIRDS ÍSL.TAL 3:30
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
POWERSÝNING
KL. 22:30
Sambíóin og leik-
arinn Ólafur
Darri Ólafsson
halda sérstaka
frumsýningu á
kvikmynd Ste-
vens Spielbergs,
The BFG, í kvöld
kl. 18 í Sambíó-
unum í Egilshöll.
Ólafur Darri fer
með hlutverk í
myndinni sem byggð er á sam-
nefndri barnabók Roalds Dahls frá
árinu 1982. Almennar sýningar á
myndinni hefjast á föstudaginn í
Sambíóunum.
The BFG frumsýnd
í Egilshöll í kvöld
Ólafur Darri
Ólafsson
AF KVIKMYNDUM
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Fótbolti breytir öllu.Í fyrsta skipti má allt íeinu setja íslenska fánann á
bílinn sinn. Setja hönd á brjóst og
kyrja þjóðsönginn, þennan ynd-
islega sálm eftir Matthías Joch-
umsson, fá gæsahúð og mega segja
frá því. Það má dreifa íslenska fán-
anum á milli barna án þess að fá á
sig stimpilinn rasisti. Það má öskra
Áfram Ísland án þess að fólk haldi
að maður sé búinn að skrá sig í
stjórnmálaflokkinn Þjóðfylk-
inguna. Allir Íslendingar mega
þetta, út af fótbolta.
Það er margt sem leyfist í
íþróttum sem annars er algjörlega
bannað.
Margir kvikmyndagerð-
armenn hafa spilað inn á þessar
margbrotnu tilfinningar mann-
skepnunnar í listformi sínu.
Það er við hæfi að Íslendingar
búi sig undir leikinn gegn Frakk-
landi með því að horfa á nokkrar
þeirra.
Þeirra frægust er líklegast
„Victory“, stórmynd frá árinu 1981
þar sem leika menn einsog Michael
Caine, Sylvester Stallone og sjálfur
Pelé. Myndin fjallar um fótboltaleik
milli breskra og bandarískra stríðs-
fanga gegn þýskum sigurvegurum
sínum á vígvellinum. En þegar á
fótboltaleikvanginn er komið fara
hlutirnir öðruvísi en á vígvellinum.
„Bend It Like Beckham“ er
önnur stórskemmtileg bíómynd,
þar sem ung bresk stúlka af ind-
versku ætterni þráir að spila fót-
bolta og þessi litla sæta mynd um
fegurð boltans er skemmtileg upp-
rifjun fyrir landsleikinn á sunnu-
daginn.
„Goal! The Dream Begins“ er
mynd sem leyfir leikurum með
sjampóauglýsingaútlit, sem kunna
ekki neitt í fótbolta, láta eins og
þeir kunni eitthvað, og stilla sér
upp fyrir framan myndavélarnar.
Frekar slök mynd og arfaslakir
leikarar, en er ekki aðeins með að-
dáun á fallegu fólki heldur einnig á
fótbolta og því er það fyrirtaks upp-
hitun að horfa á þá mynd.
„Fever Pitch“ er víst skemmti-
leg mynd. Hef bara lesið bókina
hans Nick Hornby sem myndin er
gerð eftir og hún er algjör snilld og
það fólk sem á einhverja lausa
kvöldstund fyrir leikinn gegn
Frökkum ætti að nýta kvöldið í að
lesa þá frábæru fótboltabók. Mynd-
in er víst líka skemmtileg, en passið
ykkur á því að horfa ekki á banda-
rísku útgáfuna því hún fjallar víst
um hafnabolta. Þá fráleitu íþrótt
sem enginn heilvita maður vill
kannast við nú á dögum. Og enginn
heilvita maður fattar hvernig hægt
er að kalla það dútl íþrótt.
Meistaraverkið í sögu fótbolta-
mynda er að sjálfsögðu „The
Damned United“. Það þarf ekki að
hafa neinn knattspyrnuáhuga til að
falla fyrir þeirri mynd. Myndin seg-
ir frá ævi Brian Clough, sem var
einn þekktasti þjálfari í ensku
deildinni á áttunda og níunda ára-
tug síðustu aldar en fjallar fyrst og
fremst um breyska, komplexaða en
jafnframt sigursæla manneskju.
Kannski ekki peppmyndin sem við
Íslendingar þurfum á að halda fyrir
leikinn.
Það væri ábyggilega hollara að
rifja upp níðyrði Nelsons flotafor-
ingja um Frakka á meðan hann var
að brýna sína menn til orrustu. Eða
Wellingtons, en þeir voru ekki aldir
upp í pólitískum rétttrúnaði og létu
þvílík fúkyrði falla um andstæðinga
sína að ekki væri hægt að birta það
á prenti.
Við höldum okkur við fallegar
bíómyndir, það er nóg til af þeim.
Fótboltamyndir og stríð
David Beckham Þessar stúlkur trúðu á mátt sinn og fótboltans.
Stjarna Pelé, ein af goðsögnum knattspyrnunnar, lék smá hlutverk í bíómyndinni „Victory“ frá árinu 1981.
Virðing Bíómyndin um Clough er um ýmiss konar klúður hans, vonlausar
aðstæður, einlægan vinskap og mannlegan breyskleika en líka sigur.
Morgunblaðið/Eggert
Meiriháttar Magnað að hugsa til þess að þessi litla tuðra geti kallað fram
slíkar tilfinningar í brjósti fólks að það gersamlega missi sig í dramakasti.