Morgunblaðið - 29.06.2016, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 29.06.2016, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 2016 Við hittum hann fyrst um Jóns- messu 2005, þegar hann var gestgjafi í stórafmæli Svövu, systur sinnar og stórvinkonu okkar, á Þingeyri, en Svava bjó þá erlendis. Þetta voru dýrðardagar. Dýrafjörðurinn skartaði sínu fegursta, töfrar vestfirskrar náttúru, höfðinglegar móttökur gestgjafans og gleði gestanna, sem flestir höfðu komið um lang- an veg, gerðu þennan mannfagn- að eftirminnilegan. Hvað okkur hjónin varðaði urðu afleiðing- arnar þær að við ákváðum að fara hvergi, fyrr en útséð væri um að við eignuðumst athvarf á þessum stað, þar sem Þórhallur taldi mannlíf vera fegurst á Ís- landi. Þegar við minnumst þessa góða drengs koma nokkrir þætt- ir margbrotins persónuleika hans upp í hugann. Það er ást hans á tónlist og matar- gerðarlist, manngæska hans og áhugi á samferðafólki og síðast en ekki síst lifandi kímnigáfan. Þórhallur var framúrskarandi næmur flytjandi tónlistar, lék á gítar af snilld og söng með sinni fínu, lágstemmdu rödd svo unun var á að hlýða. Það var alltaf mikið gleðiefni þegar hann birt- ist með gítarinn og það gerði hann oft. Þórhallur naut þess að gefa vinum að borða og það var eft- irsóknarvert að borða hjá hon- um. Í hvert sinn sem við komum til Þingeyrar var boðið beint í mat og það voru þakklátir gestir sem komu ökulúnir eftir fimm til sjö tíma akstur frá höfuðborg- inni – alltaf agndofa yfir fegurð fjarða og fjalla. Ekkert var spar- að til að gestum liði sem best. Þórhallur elskaði börn og þau löðuðust að honum. Góð vinátta tókst með honum og barnabörn- um okkar, sem hrifust af glað- værð hans og uppátækjum. Hann hvatti þau og eitt árið unnu þau Melkorka okkar Söngvakeppnina, sem árlega er haldin á Þingeyri 17. júní. Það voru ekki aðeins vinir og börn þeirra sem nutu gestrisni hans, heldur einnig ýmsir ferða- langar, innlendir sem erlendir, sem hann hitti, hýsti og nærði Þórhallur Arason ✝ Þórhallur Ara-son fæddist 14. janúar 1954. Hann lést 19. júní 2016. Þórhallur var jarðsunginn 28. júní 2016. um lengri eða skemmri tíma og kynnti fyrir kostum Dýrafjarðar. Síðustu mánuðir hafa verið Þórhalli og ástvinum hans erfiðir; líkamlegir kraftar voru á þrot- um en andinn flaug hátt og toguðust á lífslöngun og for- vitni um hvað tæki við. Það er auðvelt að halda áfram en við látum þetta duga að sinni og þökkum góðum vin samfylgd- ina, manni sem sannarlega hafði veisluna í farangrinum. Við sendum einkasyninum Þráni, Klöru, Dalí litla og Svövu okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Svala og David Pitt. Nú kveðjum við kæran félaga okkar, Þórhall Arason. Glaður og reifur skyli gumna hver, uns sinn bíður bana. (Úr Hávamálum) Þórhallur var einmitt alla jafna glaður og reifur. Hann var hugmyndaríkur og óhræddur að takast á við vandasöm verkefni og hrinda þeim í framkvæmd. Gestrisni hans var viðbrugðið og hvers manns hugljúfi var hann. Hann skoðaði lífið frá sín- um dálítið sérstaka sjónarhóli og átti gjarnan til að koma fólki á óvart með óvæntum spaugsyrð- um. Þórhallur glímdi af æðruleysi við veikindi þau er hrjáðu hann undanfarið og hvarf af vettvangi sáttur við guð og menn. Sendum vinum og ættingjum hugheilar samúðarkveðjur. Björn Hafberg, Guðbjartur Finnbjörnsson, Ingvi Þór Kormáksson. Mig langar að minnast í fáum orðum mikils öðlings sem fallinn er frá allt of fljótt. Ég man fyrst eftir Þórhalli þegar hann kom sem uppátækjasamt barn með foreldrum sínum, brottfluttum Dýrfirðingum, til Þingeyrar á sumrin. Þótti okkur sveitapilt- unum þetta forframaða borgar- barn mjög spennandi. Mikil vin- átta var milli foreldra okkar, og algengt að við færum í matarboð í Skipasundið þegar við vorum í heimsókn í höfuðstaðnum. Ófáar ferðir keyrði ég föður minn út á Granda til að hitta Ara föður Þórhalls sem þar rak fyrirtæki, en þeir voru báðir fyrrverandi skipstjórar og höfðu um margt að spjalla. Samskipti okkar Þórhalls urðu ekki mikil næstu áratugina fyrr en hann, þreyttur á soll- inum í stórborginni, flutti vestur á Þingeyri, um miðjan aldur, þar sem hann byrjaði að vinna og hóf síðar eigin atvinnurekstur. Þórhallur féll algerlega fyrir þessum fallega firði forfeðranna. Hann keypti æskuheimili mitt, „Þorbergshús“, og bjó þar í nokkur ár en keypti síðan annað hús og rak þá gamla húsið sem gistihús. Við fjölskyldan gistum þar nokkrum sinnum og fengum hann loks til að selja okkur hús- ið. Í þessum ferðum okkur vest- ur höfðum við mikil samskipti við Þórhall, fengum hjá honum ófáa kaffisopa og margar mat- arveislur, enda hafði hann mikla ástríðu fyrir matargerð og að bjóða fólki að njóta með sér. Gestrisni og höfðingsskapur Þórhalls var með eindæmum, og yfirleitt var margt um manninn í húsinu fallega á Nesinu. Meiri Dýrfirðing var vart hægt að hugsa sér, ást hans á firðinum og fólkinu þar var ósvikin. Það var mikill happafengur fyrir þessa litlu byggð, sem á í vök að verjast, að fá þennan drífandi hugmyndaríka mann á staðinn, ekki síður en þegar forfeður hans, Propparnir, komu í fjörð- inn þrem kynslóðum áður. Þór- hallur kom að mörgum fram- faraverkum í þorpinu og var potturinn og pannan í mörgu í félagslífinu þar. Því miður komst ég aldrei í hinar víðfrægu skötuveislur sem hann hélt fyrir jólin. Þórhallur var með miklar hugmyndir að nýjungum í at- vinnulífinu, sérstaklega hvað varðaði ferðaþjónustu og veit- ingarekstur. Hann sýndi okkur t.d. teikningar af lúxusveitinga- stað sem hann ætlaði að gera í húsinu sínu, með fallega útsýn- inu við fjörðinn, fyrst og fremst til að geta fengið útrás fyrir matargerðarástríðuna. Missir fólksins fyrir vestan er mikill en mestur er þó missir fjölskyld- unnar og litla afabarnsins sem Þórhallur dáði jafnvel meira en fjörðinn sinn fagra. Þorbergur Steinn Leifsson. Ferðahópurinn, eða Milljóna- félagið, er vinahópur sem hefur ýmislegt brallað í gegnum tíð- ina. Við kynntumst Hóa þegar nóttin var ung og menn væru- kærir þegar þeir gengu um gleð- innar dyr. Upp úr því fæddist ferðahópur sem hittist einnig við aðra viðburði sem Hói lét helst ekki framhjá sér fara. Við fórum á Snæfellsnesið um verslunarmannahelgar þar sem við byggðum okkur vistarverur og nutum samverunnar við bál- köst, hittumst í stórveislum um áramótin en fasti punkturinn í tilveru hópsins er haustlitaferð í Bása sem hefur verið tilhlökk- unarefni okkar allra – og það fjölgar stöðugt í hópnum, nýjar kynslóðir bætast við. Hlutverk Hóa í hópnum var á tónlistarsviðinu og að lauma frá sér óborganlegum gullkornum sem komu öllum í gott skap. Alltaf var gítarinn innan seiling- ar og Hói fékk alla með í söng, litlu börnin gripu tennisspaða til að spila á og pottar og pönnur voru slegin í takt. Upp úr stendur hvað Hói var mikill vinur barnanna. Hann gat leikið við þau heilu dagana og náði einstaklega vel til þeirra, enda elska þau hann öll. Hann spilaði og söng fyrir okkur bæði frumsamin eðallög og „öll góðu lögin okkar“. Einnig gaf hann sér tíma til að kenna þeim, sem höfðu áhuga á að nema, af ótrú- legri natni. Ætlar Hói ekki að koma með? var algeng spurning frá börn- unum og ef hann kom ekki var viðkvæðið: Æ, æ ef þeim var sagt hann ætti ekki heiman- gengt. Síðan er það óborganlegur húmorinn, sögurnar sem hann var óspar á og allt það yndislega mannlega sem hann var óhræddur við að sýna og miðla. Þannig setti hann mark sitt á hópinn. Í Þórsmörk vorum við stund- um ein í heiminum, sem gerði það að verkum að við gátum ver- ið nokkuð heimarík. „Farið út af lóðinni minn“ hrópaði Hói eitt sinn í hálfkæringi á ferðamenn í fjarska. Allt í góðu gríni sagt. Nú á ljúfmennið Hói ekki lengur heimangengt á lóðina okkar. Lóðina sem hann fyllti af glettni og gleði í hvert skipti sem hann lét sjá sig. Eftir stönd- um við full trega en minningin um góðan dreng mun lifa áfram í hjörtum okkar. Menn kætast er þeir kynnast og kröfur saman tvinnast saman sigrar vinnast svo ræktar hver sinn garð. Er höfuðhárin þynnast oft hugir aftur spinnast og merkilegt að minnast hve margt var gott sem varð. (Þ.E.) Innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldu Hóa, Þráins, Klöru, Dalí og Svövu. Ferðahópurinn Milljónafélag- ið, Rósa Marta, Sævar og Helga. Með kærleik og virðingu Útfarar- og lögfræðiþjónusta Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Ellert Ingason Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Við önnumst alla þætti undir- búnings og framkvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR KRISTJÁNSSON húsasmíðameistari, Sléttuvegi 19, áður Teigagerði 6, Reykjavík, lést 21. júní. Útförin fer fram frá Grensáskirkju föstudaginn 1. júlí klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð. Þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarstofnanir. . Guðrún Eiríksdóttir, Þórunn Sigurðardóttir, Thor Klippen, Birgir Sigurðsson, Sigrún Jóhannesdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og eiginkona, INGIGERÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR, Brekkubraut 9, Keflavík, lést þann 19. júní sl. Útför verður frá Ytri-Njarðvíkurkirkju miðvikudaginn 29. júní kl. 13. Fyrir hönd fjölskyldunnar, . Friðrik Már Valgeirsson, Ingi Garðar Friðriksson, Magnea Friðriksdóttir, Sandra Dögg Friðriksdóttir. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÓLAFUR BRAGI JÓNASSON rafvirkjameistari, Sléttuvegi 23, áður Árlandi 1, Reykjavík, lést 25. júní á Landspítalanum. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 8. júlí klukkan 13. . Fríða Ingvarsdóttir, Jón Ingi Ólafsson, Jóna Bjarnadóttir, Jónas Ólafsson, Valdís Ella Finnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BIRGIR KRISTJÁNSSON verslunarmaður, sem lést 21. júní sl. á hjúkrunarheimilinu Sóltúni, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 1. júlí klukkan 13. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug. . Sigríður Birgisdóttir, Sigurður Hafsteinn Steinarsson, Kristján Birgisson, Þórhildur Ásgeirsdóttir, Björn Birgisson, Grace Lai, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÁRNI INGÓLFSSON læknir, lést 24. júní. Útför hans fer fram frá Háteigskirkju föstudaginn 1. júlí klukkan 13. Blóm og kransar afþökkuð. Þeim sem vilja minnast hans er bent á minningarsjóð Kristjáns Eldjárns. . Margrét Þóra Jónsdóttir, Ingólfur Árnason, Guðrún Agnes Sveinsdóttir, Jón Árnason, Sigurveig Stefánsdóttir, Marta Árnadóttir, Helga Árnadóttir, Grímur Garðarsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, amma og langamma, MARÍA KRISTINSSON, Sandvík á Melrakkasléttu, lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga á Húsavík 27. júní. Jarðarförin fer fram frá Snartarstaðakirkju laugardaginn 9. júlí klukkan 14. . María Kristjánsdóttir, Hans Alfreð Kristjánsson, barnabörn og barnabarnabörn. Bróðir minn, BJARNI ELLERT BJARNASON, fyrrum bóndi, Litla-Ármóti, lést í Sunnuhlíð 24. júní. Útförin fer fram frá Hraungerðiskirkju laugardaginn 2. júlí klukkan 14. Fyrir hönd aðstandenda, . Sigríður Bjarnadóttir. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.